Halldóra Gyða Matthíasdóttir Proppé
  • Heim
  • Daglegt líf
    • Daglegt líf

      Grænland D6 þriðjudagur 29. apríl 2025

      apríl 29, 2025

      Daglegt líf

      Grænland D5 mánudagur 28. apríl 2025

      apríl 28, 2025

      Daglegt líf

      Grænland D4 sunnudagur 27. apríl 2025

      apríl 27, 2025

      Daglegt líf

      Grænland D3 laugardagur 26. apríl 2025

      apríl 26, 2025

      Daglegt líf

      Grænland D2 föstudagur 25. apríl 2025

      apríl 25, 2025

  • Fjallahlaup
    • Fjallahlaup

      ITRA HLAUP FRÁ 2011-2024

      júlí 31, 2024

      Fjallahlaup

      TMR D8 Ferðadagur

      ágúst 4, 2023

      Fjallahlaup

      TMR D7

      ágúst 3, 2023

      Fjallahlaup

      TMR D6

      ágúst 2, 2023

      Fjallahlaup

      TMR D5

      ágúst 1, 2023

  • Keppnissaga
    • Keppnissaga

      Íþróttaferilskrá eftir árum frá 2011

      júlí 31, 2024

      Keppnissaga

      Vasavikan 2024

      mars 6, 2024

      Keppnissaga

      New York City maraþon 2023

      nóvember 5, 2023

      Keppnissaga

      Ironman Italy 2023 16.09.2023

      október 16, 2023

      Keppnissaga

      Berlínarmaraþon 2022

      september 26, 2022

  • Þríþraut
    • Þríþraut

      Ironman Italy 2023 16.09.2023

      október 16, 2023

      Þríþraut

      Kópavogsþrautin 2021 (keppnissaga)

      maí 9, 2021

      Þríþraut

      Bláfjallaþríþraut Relive

      maí 10, 2020

      Þríþraut

      Bláfjallaþríþraut 2020

      maí 10, 2020

      Þríþraut

      50 ÁRA AFMÆLISÁRIÐ 2019

      desember 31, 2019

Halldóra Gyða Matthíasdóttir Proppé
  • Heim
  • Daglegt líf
    • Daglegt líf

      Grænland D6 þriðjudagur 29. apríl 2025

      apríl 29, 2025

      Daglegt líf

      Grænland D5 mánudagur 28. apríl 2025

      apríl 28, 2025

      Daglegt líf

      Grænland D4 sunnudagur 27. apríl 2025

      apríl 27, 2025

      Daglegt líf

      Grænland D3 laugardagur 26. apríl 2025

      apríl 26, 2025

      Daglegt líf

      Grænland D2 föstudagur 25. apríl 2025

      apríl 25, 2025

  • Fjallahlaup
    • Fjallahlaup

      ITRA HLAUP FRÁ 2011-2024

      júlí 31, 2024

      Fjallahlaup

      TMR D8 Ferðadagur

      ágúst 4, 2023

      Fjallahlaup

      TMR D7

      ágúst 3, 2023

      Fjallahlaup

      TMR D6

      ágúst 2, 2023

      Fjallahlaup

      TMR D5

      ágúst 1, 2023

  • Keppnissaga
    • Keppnissaga

      Íþróttaferilskrá eftir árum frá 2011

      júlí 31, 2024

      Keppnissaga

      Vasavikan 2024

      mars 6, 2024

      Keppnissaga

      New York City maraþon 2023

      nóvember 5, 2023

      Keppnissaga

      Ironman Italy 2023 16.09.2023

      október 16, 2023

      Keppnissaga

      Berlínarmaraþon 2022

      september 26, 2022

  • Þríþraut
    • Þríþraut

      Ironman Italy 2023 16.09.2023

      október 16, 2023

      Þríþraut

      Kópavogsþrautin 2021 (keppnissaga)

      maí 9, 2021

      Þríþraut

      Bláfjallaþríþraut Relive

      maí 10, 2020

      Þríþraut

      Bláfjallaþríþraut 2020

      maí 10, 2020

      Þríþraut

      50 ÁRA AFMÆLISÁRIÐ 2019

      desember 31, 2019

Category:

Fjallahlaup

Daglegt lífFjallahlaup

La Palma – Dagur 3 – 03.12.2018

by Halldóra desember 3, 2018

Við lögðum af stað um klukkan 09 frá gistiheimilinu, búnar að skila Duffel Bags í lobbýinu og svo var farið strax upp brekkuna. Áttum bókaðan morgunmat á Miami Bar sem við vorum báðar viss um að væri í Los Sauces. Þegar þangað kom þá komumst við að því að barinn var í Sanandreas um 2,5 km neðar (beint niður), vorum sem sagt bara búnar að klífa upp brekku, þessa 2,5 km og datt ekki í hug að snúa við.

Því fundum við bara næsta kaffihús, þar sem við gátum fengið rúnstykki með osti og kaffi og keyptum svo djús og banana í SPAR búðinni, þar sem það var ekki til á kaffihúsinu 🙂

Héldum svo áfram upp fjöllin upp í Los Tilos og svo upp í Laguna de Barlovento mjög falleg en krefjandi leið. Fórum svo aðeins til baka áður en við héldum áfram til Barlovento, þar sem okkur beið gisting á Rómantíska hótelinu.

Hlupum 23 km með um 1.500 metra hækkun.

Náðum mjög stuttu sólbaði við sundlaugina áður en sólin settist, en sólin sest auðvitað fyrr á austurströndinni.

Við fengum mjög góðan kvöldmat á hótelinu og flotta þjónustu og vorum með mjög fínt hótelherbergi. Bresku hjónin voru þarna líka og þau ætluðu að gista þrjár nætur þarna á hótelinu.

En ég svaf ekki vel þar, það var svo mikill hiti og raki í herberginu að ég endaði á aukarúminu sem var í herberginu, var svo hrædd um að allar byltunar mínar myndu vekja Betu.

desember 3, 2018 0 comment
0 FacebookTwitterPinterestEmail
Daglegt lífFjallahlaup

La Palma – Dagur 2 – 02.12.2018

by Halldóra desember 2, 2018

Sváfum mjög vel á hótelinu. Vöknuðum í tæka tíð, til að gera okkur klárar í daginn og klára að pakka öllu niður í Duffel bag töskurnar, því það kom bílstjóri að sækja þær klukkan 09:00. Samkvæmt planinu sem við vorum með átti hann að sækja okkur líka og keyra okkur frá Santa Cruz de La Pama til Puntallana, þaðan sem við áttum að hlaupa/ganga til Los Sauces eða réttara sagt til San Andrés.

Við breyttum plönunum, sendum leigubílstjórann með töskurnar og bresku hjónin fóru með leigubílstjóranum til Puntallana, en við ákváðum að hlaupa alla leið.

Eftir að hafa loksins komið leigubílstjóranum í skilning um þetta, þá fórum við í morgunmat á hótelinu og lögðum svo í hann.

Maginn var ennþá ekki alveg nógu góður hjá mér, þó ég hafi ekki verið búin að drekka kaffi í heila viku, þá var ég ennþá með þessa niðurgangskveisu, sem er ekki gott í hlaupaferð.

Þá var eins gott að vera með nóg af Immodium, til að stoppa pestina, en þá líður manni samt ekkert sérstaklega vel á hlaupum, svo fyrstu kílómetrarnir og klukkutímarnir voru ekki góðir.

En fallegt umhverfi, sól og hiti breyttu líðaninni fljótt og upp úr hádegi var ég orðin mun betri.

Við stoppuðum og fengum okkur að drekka RedBull og fylltum á vatnsbirgðarnar í Puntallana og svo héldum við áfram

Þetta var alveg krefjandi leið en einstakleg fallegur dagur meðfram ströndinni. Við nutum fallegu blómanna, allra ávaxtatrjánna og yndslegs útsýnis út á hafið. Á tíma sáum við meira að segja til Teide á Tenerife.

Hlupum 26 km með um 1.200 metra hækkun.

Fengum flotta penthouse íbúð á gistiheimilinu í Charco Azul, mjög flott íbúð með risa svölum á efstu hæð. Útsýnið var stórkostlegt, en því miður var skýjað um daginn, svo við gátum ekki tekið sólbaðið á svölunum eins og okkur langaði til. Í staðinn hvíldum við lúin bein og fórum svo í göngutúr til San Andreas í kvöldmat.

desember 2, 2018 0 comment
0 FacebookTwitterPinterestEmail
Daglegt lífFjallahlaup

La Palma – Dagur 1 – 01.12.2018

by Halldóra desember 1, 2018

Við lentum á flugvellinum í Santa Cruz á Palma um hádegisbil. Þetta var ótrúlega þægilegt, að fljúga með EasyJet til London Gatwick á föstudagskvöldi, engin asi á flugvöllunum hvorki í Keflavík, né á Gatwick. Sváfum í litlu hótelherbergi á flugvallarhóteli og vöknuðum svo eldsnemma og tékkuðum okkur inn í flugið til La Palma.

Flugvöllurinn er mjög lítill og kósý, en það var löng röð í vegabréfaskoðunina. Þegar við komumst þar í gegn, voru töskurnar okkar komnar á brettið og hinum megin við tollhliðið beið okkur leigubílstjóri sem keyrði okkur á hótelið í Santa Cruz.

Continue Reading

desember 1, 2018 0 comment
0 FacebookTwitterPinterestEmail
Daglegt lífFjallahlaup

D11 = Pangboche – Khumjung (3.780 m) (1.nóv.)

by Halldóra nóvember 1, 2018

Leið miklu betur í morgun þegar ég vaknað en þegar ég fór að sofa, þökk sé einni parkódín töflu, þá svaf ég til klukkan 01 þegar ég þurfti að fara á klósettið😊

Það var miklu hlýrra núna en síðustu nótt en ég er búin að hósta mikið síðustu tvær nætur.

Við erum alveg hætt að taka Diamoxið en erum samt ennþá í rúmlega 4.000 m hæð.

Guðrún og Kristín eru líka báðar hóstandi. Guðrún og Elli fóru því aðra leið til Khumbung en við, þar sem það var mikil hækkun á dag leiðinni.

Við fórum aftur fram hjá klaustrinu sem við heimsóttum í gær á leið okkar.

Það var mjög gaman þegar við sáum aftur stóra klaustrið hinum megin við ána og dalinn, og sáum líka gistiheimilið Paradise sem við gistum á, á leiðinni uppeftir.

Tókum nestiapasu (mars/snickers/hnetur og harðfiskur) í fjallinu og nutum útsýnisins.

heldum svo áfram niður og upp en það var ágætis ganga upp að veitingastaðnum þar sem við borðuðum, hrísgrjón og kartöflur.

Það var mikið stuð í hádegismatnum þar sem við fæ dönsuðum undir styrki stjórn Hrannar.

Svo var önnur brekka efir hádegismat, 2 klst brekkan,  þegar ég átti ekki eftir mikið af henni fékk ég hræðilegt asmakast. Ég náði ekki andanum en sem betur fer þá var ég með púst frá Ingu (mitt hafði orðið eftir fyrir mistök í niðurskurðinum) og það hjálpaði  er að klára brekkuna.  Rétt áður en ég lagði af stað þá var Sammi vinur minn að spila tónlist,og það var eitthvað þvílíkt rapplag sem var að gera mig gráhærða en hann var með okkur síðustu göngurunum. Ég á endanum bað hann vinsamlegast að slökkva hahah 😉 fyndið þegar maður er alveg að gefast upp hvað svona getur pirrað mann.

Þegar við vorum komim uppa hæðina stoppuðum við í tei á tehúsi sem var á þessum tímapunkti vel þegið eftir puðið upp.

Svo tók við smá niður kafli eftir teið og inn dalinn en alltaf sáum vip klaustrið hinum  megin.

Sco sáum við Serba æfa sig í klettaklifri en það er bjöegunarskoli þarna í nágrenninu.

Svo Fengum við líka brekkuna, þá bauð Aðal sjerpinn mér að bera bakpokann minn fyrir Sig

eg Þrjoskaðist fyrst við og bar hann sjálf en svo þáði ég það og þvílíkur léttir, enda andardráttur inn eftir asma kastið ekki góður 😉

komum svo í þetta fallega litla þorp Sem heitir Khumjung sem er nauðsynlegur viðkomustaður því þarna er skóli sem Edmund Hillary stofnaði árið xxxx

Sturta 3 skipti á 12 dögum – forum og keyptum svuntu – góður matur – dansað og spilað á spil

nóvember 1, 2018 0 comment
0 FacebookTwitterPinterestEmail
Daglegt lífFjallahlaup

Everest – fróðleiksmoli

by Halldóra október 30, 2018

Everest eða Sagarmatha eins og það heitir á nepölsku er hæsta fjall jarðarinnar heilir 8.848 metrar og liggur á landamærum Nepals og Tíbets. Nepalska heitið Sagarmatha hefur skemmtilega þýðingu – Himnahöfuð – sem er öllu gagnsærra en heitið Everest sem mælingamenn Konunglega

Breska Jarðfræðafélagsins gáfu fjallinu árið 1856. Áður en Hillary og Tenzing Norgay náðu á hátind þess árið 1953 höfðu margir aðrir reynt. Frægastur þeirra er trúlega Georg Mallory sem reyndi við fjallið 1929 ásamt félaga sínum Andrew Irvine og fórust báðir á fjallinu. Ekki er vitað hvort þeir náðu á toppinn en lík Mallorys fannst árið 1999 í 8530 metra hæð og þótti ýmislegt benda til þess að hann hefði haft erindi sem erfiði.

Aðal fjallamennskutímabilið fyrir Everest er apríl – maí og yfirleitt er aðeins örstutt tímabil sem gefst til þess að reyna við toppinn sjálfan en mikilvægt er að hafa öðlast nægilega hæðaraðlögun þegar stóra stundin rennur upp svo að flestir leiðangrar taka uþb 6 vikur. Fyrstu Íslendingarnir sem klifu fjallið voru þeir Björn Ólafsson, Einar Stefánsson og Hallgrímur Magnússon árið 1997 og síðan þá hafa nokkrir aðrir landar staðið á toppnum þar á meðal fararstjóri ferðarinnar Leifur Örn. Hann fór þó ekki hefðbundna leið upp heldur norðan megin þar sem grunnbúðirnar eru í 6.400 metra hæð. Ein íslensk kona, Vilborg Arna hefur klifið fjallið í þriðju tilraun árið 2017.

Heimild: Íslenskir fjallaleiðsögumenn.

október 30, 2018 0 comment
0 FacebookTwitterPinterestEmail
Daglegt lífFjallahlaup

D4 =Namche Basar – Tengboche – Deboche (3820m) (25.okt)

by Halldóra október 25, 2018

Í morgun kvöddum við Namche Basar eftir að hafa gist á sama gistiheimilinu í tvær nætur. Virkilega góður matur og fín gisting.

Fórum upp úr bænum um sannkallað fjallalandslag. Fórum fram hjá manni sem er að vinna að stígagerð og styrktum hann, Tóti kvittaði í bókina hjá honum.

Fengum mjög bragðgott sítrónu/engiferte í morgunkaffinu og nutum góða veðursins.

Héldum svo áfram upp dalinn og gengum fram hjá tað-þurrkun virkilega vel skipulagðri.

Þegar við fórum svo yfir hengibrúnna þá var einn risastór og reiður Uxi næstum því búin að ráðast á okkur. Sherpinn okkar réð ekkert við hann og öskraði á okkur að drífa okkur yfir.

Borðuðum mjög gildan hádegismat, soðbrauð og steiktar kartöflur og grænmeti.

Eftir hádegismat var mjög brött endalaus brekka. Óla kveið mikið fyrir henni, en svo fórum við bara jafnt og rólega upp, svo uppgangan gekk mjög vel.

Þegar upp var komið blaði Tengboche, einn helgasti staður Nepal og þar var glæsilegt klaustur þaðan sem við nutum útsýnis til hinna tilkomumiklu tinda AmaDablam, Lhotse og Everest. Við fylgdumst aðeins með messu munkanna sem var utandyra og það snjóaði örlítið á okkur, enda orðið mjög kalt þarna uppi. Fórum svo á kaffihúsið, fékk mér eplaköku og kaffi.

Eftir að hafa notið útsýnisins og skoðað klaustursvæðið gengum við niður í litla þorpið Deboche.

Auðvitað væru teknar teygjur, og svo var bara haldið til í matsalnum þar sem hann var upphitaður en við frostmark inní herbergjunum. Reyndi að halda mér vakandi, ætlaði ekki að gera sömu mistökin og deginum á undan þe að leggja mig og sofna svo allt of seint því þá er maður bara þreyttari daginn eftir.

Fengum í kvöldmat gufusoðna grænmetiskodda með kartöflum, mjög góða en Óli var orðinn slæmur í maganum ;-(

Lögðumst til hvílu klukkan 21 með heita Nalgene brúsa sem hituðu vel kaldar tær.

október 25, 2018 0 comment
0 FacebookTwitterPinterestEmail
Daglegt lífFjallahlaupKeppnisKeppnissaga

UT4M – 169 km – 11.000 m hækkun – keppnissaga

by Halldóra ágúst 24, 2018

DEPART SEYSSINS 24.08. – 15:56:11 – það voru 470 manns sem byrjuðu hlaupið
CP1 St Nizier du Moucherotte 3:02:14 = 411 sæti
CP2 Lans en Vercors 4:48:01 = 420 sæti

FYRSTI POKINN
CP3.1 Vif entrée 8:49:23= 355 sæti (inn)
CP3.2 – Vif sortie 9:39:22 = 345 sæti (út) STOPP 49:59 = Íþróttahúsið inni- skipti um föt, þvoði mér og hlóð úrið og símann, gerði mér ekki grein fyrir að ég hefði stoppað svona lengi .. var svo mjög hrss eþgar ég lagði af stað .. man ég sagði shit- ég stoppaði í 49 mín .. en var ennþá 1 kk
CP4 – Laffrey – 12:23:09 – 324 sæti
CP.5.1 – La morte entreé 14:59:40 – 290 sæti
CP.5.2. – La morte sortie – 15:13:32 – 249 sæti – STOPP 13:52
Stoppaði stutt – en fékk mér mitt kaffi, annað var búið, það var komið myrkur .. og ég hélt svo áfram einupp fjalllið – þá byrjaði þetta bölvaða lungnavesen og allir fóru svo fram úr mér á leiðinni upp .. fjallið …
CP.6 – Lac du Poursollet – 19:04:31 – 263 sæti
CP.7 – Chalet Barriere 21:19:20 – 256 sæti

POKI NÚMER TVÖ
CP.8.1 Riouperoux entree 22.46.40 – 257 sæti
CP.8.2. Riouperoux sortie 23:32:41 – 231 sæti STOPP 46 mín
CP9 – Arselle – 26:13:14 – 227 sæti –
CP11 – Refuge de la Pra – 31:13:50 – 244 sæti
Hérna á leiðinni hingaðupp eftir bugaðist ég næstum því .. héld við þyrftum ekki að fara þarna upp eftir.. orðið kalt ..
Á l eiðinni niður eftir eftir Refuge – áttum vi ðað elta alla endurskinsborðana, eins og ég hefði gert þetta áður – þ.e. farið þessa leið .. mikið myrkur og endalaust niður um 10 km leið ..
CP12 – Freydieres – 33:33:28 – 237 sæti (Lagði mig í 15 mín).
Hérna á eftir kom malbikskaflinn..

POKI NÚMER 3 = Flotta íþróttahúsið þar sem ég lagði mig aftur ..
CP13.1. St. Nazaire les Eymes entree – 37:12.54 – 219 sæti (lagði mig í 20 mín)
CP 13.2 St. Nazaire les Eymes sortie – 38:30:19 – 221 sæti STOPP 1:17:25
CP14 – Habert de Chamechaude – 38:30:19 – 221 sæti
CP 16.1 Le Sappey entree 44:51:56 – 220 sæti
CP 16.2 Le Sappey sortie 45:05.23 – 216 sæti
CP 17 – Col de Vence 47:02:50 – 214 sæti
Arrivee – Grenoble 48:58:03 – 209 sæti

TÖLFRÆÐI
Þátttakendur í hlaupinu voru 470 og  269 sem klára eða  57%  – þ.a.l. 43% sem hætta = 201 þátttakandi.
Konurnar voru 27 sem tóku þátt eða 5,7% og það voru 17 konur sem kláruðu (63%), þar af 15 innan 51 klst tímamarka.
Lágmarkshraði á mér var 3,2 km klst og hámarkshraði var 4,2 km klst.
Lakasti árangur var 420 sæti og besti árangur var 209 sæti sem var niðurstaðan, vann mig því upp um 211 sæti
Var í 8 sæti í flokknum V1F, og 13 kona í mark. Var í 210 sæti overall af þessum 269 sem klára.

Sjá úrslit hér

(P: 00:53:17) Refsing þar sem 2 fjöllum var sleppt.
16:09:28
48:58:03
21:39:55

Hlaupið UT4M Xtreme 100 mílur er ræst frá Seyssins, í François-Mitterrand-garðinum.  Í garðinum eru stórar grasflatir umkringdar háum trjám, sem sumar eru flokkaðir sem söguleg tré. Þaðan fóru hlaupararnir framhjá stað þar sem haldinn var leiðtogafundur Moucherotte vegna Ólympíuleikana áður en þeir ná í skíðastaðinn frá Lans til Vercors. Eftir að hafa klifrað upp í Pic Saint Michel, koma hlaupararnir að fyrsta „drop-poka staðnum“ Vif eftir að hafa farið yfir fjallið Uriol.

Umskipti til seinni massans liggur í norðurhveli svalir Connex. Síðan bíður lengi klifra á eftirvögnum til Pas de la Vache, hæsta punktur Ut4M í massanum Oisans-Taillefer, sem áður hefur farið í gegnum Laffrey Lake og úrræði Alpe du Grand Greenhouse. Hlauparnir fara síðan niður á Poursolet-vatnið. Að lokum fara þeir aftur á Platau des Lacs, þar sem flóru og andrúmsloftið gerir þeim kleift að halda að þeir séu í miðri steppunni og Tundra, áður en þeir ráðast á annað duglegan uppruna til annarrar lífveru Rioupéroux.

Næsta áfangi tekur þá til Croix de Chamrousse í Belledonne massifinu og hefur klifrað lóðrétta km Ut4M. Hér er það hátt fjallið og steinin þar til hlíðin Pra til mölva loksins leiðtogafundurinn í stóru Colon. Glæsilegt útsýni yfir alla leiðina í aðdraganda. Eftirvagnarnir halda áfram ferð sinni með lengstum uppruna Ut4M niður hlöðu Freydières. Þeir krossa þá dalinn Grésivaudan þar til St Nazaire-the-Eymes, þriðja grunn líf.

Þeir fara aftur að lokum með Manival, framhjá Faita, þá er Emeindras að efstu Chamechaude yfirburði síðustu Massif, Chartreuse. Þeir munu hafa brugðist við að endurreisa matinn á Habert de Chamechaude, frægur fyrir fjallatrjáminn. Allt sem eftir er fyrir knapana er að klifra í St Eynard eftir að hafa farið yfir Sappey í Chartreuse. Þeir halda áfram þar til Col de Vence, þá Rachais til Bastille sem dyrnar tilkynna síðustu kílómetra fyrir komu í sögulegu miðbæ Grenoble.

ágúst 24, 2018 0 comment
0 FacebookTwitterPinterestEmail
Daglegt lífFjallahlaup

8 tindar í Mosó „girlpower“

by Halldóra júlí 28, 2018

Toppaði 8 tinda í Mosó í dag í frábærum félagsskap. Myndbandið segir meira en 1000 orð, en við Beta enduðum í rétt rúmum 37 km og 6 klst á fótum.  Takk fyrir yndislegan hlaupadag stelpur.

júlí 28, 2018 0 comment
3 FacebookTwitterPinterestEmail
FjallahlaupKeppnisKeppnissaga

Keppnissaga: Dyrfjallahlaupið 2018

by Halldóra júlí 21, 2018

Tók þátt í Dyrfjallahlaupinu í dag í yndislegu veðri og skemmtilegum félagsskap. Hlaupið gekk mjög vel en ég kláraði það á 3:17:55 og var 10 konan í mark og 44 samtals. Leiðin er ofboðslega falleg og ég að sjálfsögðu stoppaði nokkrum sinnum til að taka myndir, sjá nánar í myndbandinu hér að neðan.

júlí 21, 2018 0 comment
0 FacebookTwitterPinterestEmail
Daglegt lífFjallahlaup

Tindahlaupið í Vestmannaeyjum

by Halldóra júní 30, 2018

Fór með Laugavegshópi Náttúruhlaupa til Vestmannaeyja í morgun.  Veðurspáin alla vikuna var mjög góð, breyttist samt á síðustu stundu, í rigningu og þoku.

Sameinuðumst í bíla í Olís við Rauðavatn og fórum með Herjólfi frá Landeyjahöfn og það gekk mjög vel.

Ferðin yfir tók bara um 35 mínútur. Þar tóku á móti okkur eðalhjónin Róbert Marshall og konan hans Brynhildur Ólafsdóttir, sem bæði eru fararstjórar hjá Ferðafélagi Íslands og hafa leitt Landvættahóp Ferðafélagsins.

Við byrjuðum svo á að hlaupa frá höfninni í gegnum bæinn og upp á Eldfell. Eftir það fórum við upp á Helgafell og Sæfjall. Eftir Sæfjall tókum við aukakrók upp á Stórhöfða. Síðan var hlaupið að golfvellinum og inn í Herjólfsdal.

Upp úr Herjólfsdal var farið upp á Dalfjall. Við slepptum Blátind i vegna veðurs, en héldum áfram eftir Eggjum, á Molda og niður um Sprönguna. Þar sýndi Róbert Marshall okkur hvernig á að spranga. Hlupum svo um hafnarsvæðið að Heimakletti sem var síðasta fjallið og ansi bratt.

Þegar við komum niður af Heimakletti, hlupum við í sund, þar sem sundtaskan beið okkar.

Eftir sund var kíkt á ölhús Vestmannaeyja og svo borðuðum við saman á Slippnum.

Fórum svo með bát til baka klukkan 19:30.

Frábær dagur í Vestmannaeyjum, en ég þarf klárlega að koma aftur til að upplifa þennan fallega og skemmtilega hring í betra veðri.

júní 30, 2018 0 comment
0 FacebookTwitterPinterestEmail
  • 1
  • …
  • 8
  • 9
  • 10
  • 11
  • 12
  • 13

Nýlegar færslur

  • Grænland D6 þriðjudagur 29. apríl 2025
  • Grænland D5 mánudagur 28. apríl 2025
  • Grænland D4 sunnudagur 27. apríl 2025
  • Grænland D3 laugardagur 26. apríl 2025
  • Grænland D2 föstudagur 25. apríl 2025

Nýlegar athugasemdir

  • Björk Ólafsdóttir um Vasavikan 2024
  • Sif Helgad. um Langjökull þveraður 17.júní 2020
  • Helga Bryndís um New York City maraþon 2023
  • Ingvar Þóroddsson um Free to Run Ambassador í New York maraþoninu 2023

Færslusafn

  • apríl 2025
  • júlí 2024
  • maí 2024
  • apríl 2024
  • mars 2024
  • nóvember 2023
  • október 2023
  • september 2023
  • ágúst 2023
  • júlí 2023
  • apríl 2023
  • janúar 2023
  • desember 2022
  • nóvember 2022
  • september 2022
  • ágúst 2022
  • júlí 2022
  • júní 2022
  • maí 2022
  • apríl 2022
  • mars 2022
  • febrúar 2022
  • janúar 2022
  • desember 2021
  • október 2021
  • september 2021
  • ágúst 2021
  • júlí 2021
  • maí 2021
  • apríl 2021
  • mars 2021
  • febrúar 2021
  • janúar 2021
  • nóvember 2020
  • október 2020
  • september 2020
  • ágúst 2020
  • júlí 2020
  • júní 2020
  • maí 2020
  • apríl 2020
  • mars 2020
  • janúar 2020
  • desember 2019
  • nóvember 2019
  • október 2019
  • september 2019
  • ágúst 2019
  • júlí 2019
  • júní 2019
  • maí 2019
  • apríl 2019
  • mars 2019
  • febrúar 2019
  • janúar 2019
  • desember 2018
  • nóvember 2018
  • október 2018
  • september 2018
  • ágúst 2018
  • júlí 2018
  • júní 2018
  • maí 2018
  • apríl 2018
  • janúar 2018
  • janúar 2017
  • september 2016
  • ágúst 2016
  • júlí 2016
  • júní 2016
  • mars 2016
  • nóvember 2015
  • ágúst 2015
  • júní 2015
  • febrúar 2015
  • nóvember 2014
  • ágúst 2014
  • október 2013
  • september 2013
  • ágúst 2013
  • júní 2013
  • maí 2013
  • apríl 2013

Flokkar

  • Daglegt líf
  • Fjallahlaup
  • Fjallaskíði
  • Fjallgöngur
  • Gönguskíði
  • Hjól
  • Hlaup
  • Ísklifur
  • Kajak
  • Keppnis
  • Keppnissaga
  • Sjósund
  • Skíði
  • Sund
  • Veiðar
  • Þríþraut

Um mig

Um mig

Halldóra Gyða

Halldóra hefur mjög gaman af því að fara út að leika. Markmiðið hjá henni er að njóta lífsins hvern einasta dag, brosa, hafa gaman og hún er þakklát fyrir góða heilsu.

Verum í sambandi

Facebook Twitter Instagram Pinterest Tumblr Youtube Bloglovin Snapchat

Nýlegar færslur

  • Grænland D6 þriðjudagur 29. apríl 2025

    apríl 29, 2025
  • Grænland D5 mánudagur 28. apríl 2025

    apríl 28, 2025
  • Grænland D4 sunnudagur 27. apríl 2025

    apríl 27, 2025
  • Grænland D3 laugardagur 26. apríl 2025

    apríl 26, 2025
  • Grænland D2 föstudagur 25. apríl 2025

    apríl 25, 2025

Um mig

banner
Halldóra Gyða elskar að vera úti að leika. Hér er hún í Dólómítunum í Lavaredo fjallahlaupinu 2016.

Vinsæl innlegg

  • 1

    Eco Trail Reykjavík – 22 km

    júlí 6, 2018
  • 2

    Ironman Texas 2018

    apríl 28, 2018
  • 3

    Buthan – dagur 1 – hæðaraðlögun og skoðunarferð

    maí 26, 2018

Síðustu æfingar

  • Morning Ride
    On maí 9, 2025 10:13 f.h. went 20,80 km during 02:08:57 hours climbing 81,00 meters burning 840 calories.
  • Evening Ride
    On maí 8, 2025 6:13 e.h. went 6,97 km during 00:43:20 hours climbing 18,00 meters burning 484 calories.
  • Afternoon Ride
    On maí 8, 2025 3:49 e.h. went 7,36 km during 00:44:30 hours climbing 17,00 meters burning 361 calories.
  • Afternoon Walk
    On maí 8, 2025 2:00 e.h. went 1,35 km during 00:19:03 hours climbing 2,00 meters burning 109 calories.
  • Hjóluðum til Millu og Tóta með Dóru og Grétari/
    On maí 4, 2025 10:27 f.h. went 21,05 km during 02:00:15 hours climbing 274,00 meters burning 566 calories.
  • Facebook
  • Twitter
  • Instagram
  • Linkedin
  • Snapchat
  • Vimeo

@2017 - PenciDesign. All Right Reserved. Designed and Developed by PenciDesign


Back To Top