Camp1: Punakha (1.209 m hæð – gistum í tjaldi)
Stage 1: 30,7 km / hækkun 1.263m / lækkun 729 m
BUTHAN THE LAST SECRET 200 km hlaupið er ræst fyrir utan klaustrið Punakha Dzong sem hópurinn skoðaði í gær.
Það voru grunnskólabörn úr skólum í Punakha héraðinu sem tóku á móti hlaupurunum og sungu fallega þjóðsöng Konungsdæmisins Bhutan rétt áður en hlaupið var ræst í sjötta skipti.
Yfirmaður Lama frá Punakha Dzong blessaði síðan hlauparana og óskaði eftir góðu veðri og bað fyrir öryggi hlaupara. Eftir blessunina var hlaupið ræst. Framundan var 6 daga 200 km hlaup um hið stórkostlega og fallega landslag í BHutan.
Lengsta hengibrú Bhutan beið hlauparanna á fyrstu vatnsstöðinni, (check-point 1). Eftir 30,7 km hlaup dagsins beið Chorten Nyingpo Monastery þeirra í 1756m hæð.