Halldóra Gyða Matthíasdóttir Proppé
  • Heim
  • Daglegt líf
    • Daglegt líf

      IRONMAN CASCAIS 2026 – KEPPNISSAGA ❤️🏊‍♀️🚴‍♀️🏃‍♀️

      október 22, 2026

      Daglegt líf

      KEPPNISSAGA IRONMAN KAUPMANNAHÖFN 2026

      ágúst 17, 2026

      Daglegt líf

      Laugavegur Ultra 2026 11. júlí = Níunda Laugavegshlaupið…

      júlí 15, 2026

      Daglegt líf

      Puglia by UTMB 100 km flokkur – 85…

      nóvember 11, 2025

      Daglegt líf

      Reykjavíkurmaraþon og Menningarnótt 2025

      ágúst 23, 2025

  • Fjallahlaup
    • Fjallahlaup

      Laugavegur Ultra 2026 11. júlí = Níunda Laugavegshlaupið…

      júlí 15, 2026

      Fjallahlaup

      Jökulsárhlaupið 2025

      ágúst 9, 2025

      Fjallahlaup

      Súlur Vertical 2025

      ágúst 2, 2025

      Fjallahlaup

      Kerlingarfjöll Ultra 2025

      júlí 29, 2025

      Fjallahlaup

      LAUGAVEGSHLAUPIÐ 2025

      júlí 19, 2025

  • Keppnissaga
    • Keppnissaga

      IRONMAN CASCAIS 2026 – KEPPNISSAGA ❤️🏊‍♀️🚴‍♀️🏃‍♀️

      október 22, 2026

      Keppnissaga

      KEPPNISSAGA IRONMAN KAUPMANNAHÖFN 2026

      ágúst 17, 2026

      Keppnissaga

      Laugavegur Ultra 2026 11. júlí = Níunda Laugavegshlaupið…

      júlí 15, 2026

      Keppnissaga

      Puglia by UTMB 100 km flokkur – 85…

      nóvember 11, 2025

      Keppnissaga

      Reykjavíkurmaraþon og Menningarnótt 2025

      ágúst 23, 2025

  • Þríþraut
    • Þríþraut

      IRONMAN CASCAIS 2026 – KEPPNISSAGA ❤️🏊‍♀️🚴‍♀️🏃‍♀️

      október 22, 2026

      Þríþraut

      KEPPNISSAGA IRONMAN KAUPMANNAHÖFN 2026

      ágúst 17, 2026

      Þríþraut

      Ironman Italy 2023 16.09.2023

      október 16, 2023

      Þríþraut

      Kópavogsþrautin 2021 (keppnissaga)

      maí 9, 2021

      Þríþraut

      Bláfjallaþríþraut Relive

      maí 10, 2020

Halldóra Gyða Matthíasdóttir Proppé
  • Heim
  • Daglegt líf
    • Daglegt líf

      IRONMAN CASCAIS 2026 – KEPPNISSAGA ❤️🏊‍♀️🚴‍♀️🏃‍♀️

      október 22, 2026

      Daglegt líf

      KEPPNISSAGA IRONMAN KAUPMANNAHÖFN 2026

      ágúst 17, 2026

      Daglegt líf

      Laugavegur Ultra 2026 11. júlí = Níunda Laugavegshlaupið…

      júlí 15, 2026

      Daglegt líf

      Puglia by UTMB 100 km flokkur – 85…

      nóvember 11, 2025

      Daglegt líf

      Reykjavíkurmaraþon og Menningarnótt 2025

      ágúst 23, 2025

  • Fjallahlaup
    • Fjallahlaup

      Laugavegur Ultra 2026 11. júlí = Níunda Laugavegshlaupið…

      júlí 15, 2026

      Fjallahlaup

      Jökulsárhlaupið 2025

      ágúst 9, 2025

      Fjallahlaup

      Súlur Vertical 2025

      ágúst 2, 2025

      Fjallahlaup

      Kerlingarfjöll Ultra 2025

      júlí 29, 2025

      Fjallahlaup

      LAUGAVEGSHLAUPIÐ 2025

      júlí 19, 2025

  • Keppnissaga
    • Keppnissaga

      IRONMAN CASCAIS 2026 – KEPPNISSAGA ❤️🏊‍♀️🚴‍♀️🏃‍♀️

      október 22, 2026

      Keppnissaga

      KEPPNISSAGA IRONMAN KAUPMANNAHÖFN 2026

      ágúst 17, 2026

      Keppnissaga

      Laugavegur Ultra 2026 11. júlí = Níunda Laugavegshlaupið…

      júlí 15, 2026

      Keppnissaga

      Puglia by UTMB 100 km flokkur – 85…

      nóvember 11, 2025

      Keppnissaga

      Reykjavíkurmaraþon og Menningarnótt 2025

      ágúst 23, 2025

  • Þríþraut
    • Þríþraut

      IRONMAN CASCAIS 2026 – KEPPNISSAGA ❤️🏊‍♀️🚴‍♀️🏃‍♀️

      október 22, 2026

      Þríþraut

      KEPPNISSAGA IRONMAN KAUPMANNAHÖFN 2026

      ágúst 17, 2026

      Þríþraut

      Ironman Italy 2023 16.09.2023

      október 16, 2023

      Þríþraut

      Kópavogsþrautin 2021 (keppnissaga)

      maí 9, 2021

      Þríþraut

      Bláfjallaþríþraut Relive

      maí 10, 2020

Flokkur:

Þríþraut

Daglegt lífKeppnissagaÞríþraut

IRONMAN CASCAIS 2026 – KEPPNISSAGA ❤️🏊‍♀️🚴‍♀️🏃‍♀️

by Halldóra október 22, 2026

15:22:23 klukkustundir af baráttu, vindum, brekkum, magaveseni og endalausu þakklæti!

Þá er komið að því að skrifa um áttundu Ironman keppnina mína, Ironman Cascais í Portúgal. Og já, þetta var minn annar heili Járnmaður á aðeins tveimur mánuðum! Kannski ekki alveg það skynsamlegasta sem maður tekur sér fyrir hendur, en svona er þetta stundum. 😂

Ég vissi að þetta yrði krefjandi keppni, en ég held að ég hafi ekki alveg gert mér grein fyrir því hversu krefjandi hún yrði. Sund í öldugangi, hjólreiðar í miklum vindi og brekkum og síðan hlaup þar sem maginn ákvað að taka þátt í keppninni á sínum eigin forsendum.

En byrjum á byrjuninni!

SUND – 3,8 km Tími: 1:37.58 🏊‍♀️
Ég ákvað að leggja af stað með 1 klst. og 20 mínútna hópnum, þótt ég hefði líklega átt að velja 1 klst. og 30 mínútna hópinn. Ástæðan var einfaldlega sú að ég hitti Íslending hér í Portúgal sem hafði keppt hér í fyrra og hann sagði mér frá ansi krefjandi tímamörkum á hjólaleggnum (þessi Íslendingur var líka skráður í heilan í ár, en hætti við að taka þátt).

Fyrri tímamörkin voru kl. 15:25 eftir 90 km og næstu kl. 18:00 eftir 152,8 km. Þessi tímamörk miðast við klukkuna en ekki hvenær maður leggur af stað í sundið. Þannig að þeir sem fara seinna af stað í sundinu tapa einfaldlega mínútum af þeim tíma sem þeir hafa til að ná þessum tveimur tímamörkum sem voru miðuð við klukkuna, en svo voru önnur tímamörk, miðuð við þinn tíma eða 10 klst. frá þínum rástíma, varstu að vera búin að hjóla.

Þessi Íslendingur datt út við 152,8 km í fyrra og munaði innan við 5 mínútum að hann hefði náð þeim. Ég var því orðin ansi stressuð yfir þessu. Ef maður er ekki sterkur í brekkum, fær mikinn vind í fangið eða það springur á hjólinu, þá getur allt farið úrskeiðis. Ég ákvað því að fara fyrr í sjóinn og reyna að vinna mér inn smá tíma.

Ég hafði líka aðrar áhyggjur fyrir sundið. Ég hef verið að fá krampa í sundi (tengt taugaverkjum í jarkanum) og yfirleitt get ég þá teygt á við bakkann í sundlauginni og reynt að losa krampann. Það er aðeins erfiðara úti á rúmsjó! Á fimmtudagsmorgninum fórum við á sundæfingu með SWIM TOGETHER og þá fékk ég hræðilegan krampa í hægri fótinn, bæði í tærnar og kálfann. Ég var því búin að vera með þvílíkar harðsperrur í hægri kálfa eftir það og búin að vera að reyna að mýkja harðan kálfann frá því á fimmtudag.

Þetta tengist gömlu brjósklosi sem hefur verið að hrjá mig hægra megin. Ég hugsaði því: Ef ég fæ krampa úti á sjó, þá myndi ég bara reyna að komast að næsta „paddleboardi“ og losa um krampann þar. Maður verður víst að vera með plan B!

Alla vega náði ég að hita aðeins upp fyrir sundið, eins og Hákon Hrafn þjálfari hafði ráðlagt okkur. Það var gott. Ég hafði verið með tvær sundhettur í Copenhagen, en það var ekki að virka fyrir mig hér, bleika Ironman sundhettan rann af hinni, svo ég var bara með bleiku Ironman sundhettuna og lét Óla hafa hina.

Það er alltaf smá spenna og stress fyrir ræsingu, en ég hafði grætt mikið á því að taka æfinguna með SWIM TOGETHER. Þau höfðu bent okkur á hvert við ættum að stefna því baujurnar sáust ekki mjög vel vegna sólarinnar.
Svo var bara að láta vaða!

Þar sem ég hafði valið hraðari hópinn lenti ég fljótlega í því að allir syntu bókstaflega yfir mig. Það var mikið kraðak við baujurnar og ég reyndi því að færa mig aðeins til vinstri, til að losna undan þessu kraðaki. Ég náði því ekki að synda í kjölsoginu á neinum (drafta neinn) og þurfti bara að synda mína eigin leið.

Þegar maður var kominn hálfa leið út eftir, jókst aldan og ég hugsaði með mér hvað það væri nú gott að hafa reynsluna úr Ermasundinu í farteskinu. Ég rifjaði upp skilaboðin frá Mladen sundþjálfara, sem hafði sagt mér að anda rólega og kíkja reglulega upp til að fylgjast með baujunum. Ég reyndi að fara eftir því og halda ró minni. Svo kom 90 gráðu beygja, þá var synt beint áfram og síðan önnur 90 gráðu beygja í átt að landi.

Þarna var aldan orðin enn meiri og ég fann aðeins fyrir krömpum í tánum, en sem betur fer ekki í kálfanum. Ég var með „compress“ sport kálfahlífina undir sundgallanum og velti því fyrir mér hvort hún hefði hjálpað, þar sem ég var ekki í henni á æfingunni þegar krampinn kom. Loksins var sundinu lokið.

Sundtíminn var 1 klst. 37 mín. og 58 sek. sem er 2:35 „pace“, 5 mínútna lakari tími en í Ironman Copenhagen, en aðstæðurnar hér voru og eru almennt líka mun meira krefjandi.

SKIPTITÍMI T1 – ÚR SJÓNUM OG Á HJÓLIÐ = 12:15
T1 var ótrúlega löng leið. Þetta var lengsta vegalengdin og tíminn sem ég hef þurft að hlaupa í blautbúningnum og að skiptisvæðinu eða um 960 m., fór yfir 1 km., því ég slökkti aðeins fyrr á úrinu. NB !!! þetta var allt meira og minna upp brekku og yfir brú, sem fór yfir götuna. Þar hitti ég Óla, alltaf réttur maður á réttum stað og réttum tíma. Náði að knúsa hann áður en ég fór upp og yfir brúna.

Það er alltaf óhuggulegt að sjá sundmenn sem þurfa á hjálp að halda, það lá einn maður með álteppi utan um sig og lækna og hjúkrunarfólk standandi yfir sér á bryggjunni. Það minnir mann á að þetta er ekki bara skemmtilegt íþróttaævintýri, heldur líka mikið álag á líkamann og getur í raun verið lífshættulegt. Þess vegna var farið vel yfir það á „briefing“ eða kynningarfundinum, að ef maður sæi sundmann í vanda, ætti maður alltaf að spyrja hann hvort hann væri í lagi og ef viðkomandi gæti ekki kallað eftir hjálp að gera það fyrir viðkomandi.

Ég settist niður á skiptisvæðinu og pissaði í gallann, alveg eins og í Ironman Copenhagen. 😂 Fékk mér síðan vatnsflösku og hellti yfir klofið. Maður gerir það sem þarf að gera, þar sem ég er ekki útlærð að geta pissað í gallann í sjónum eða á hlaupum upp eftir.

Svo klæddi ég mig í sokka og skó, setti á mig hjálminn og sólgleraugu, tók inn eitt gel, hefði átt að taka fleiri með mér í vasann, sem ég gleymdi, en ég hljóp af stað í átt að hjólinu. Tók hjólið og hljóp með það út úr skiptisvæðinu.

Fram undan voru 180 km á hjólinu (tveir 90 km hringir, ekki alveg nákvæmlega eins en að mestu eins). Það er mikil hækkun og krefjandi brekkur sem þurfti að hjóla tvisvar. Ekkert væl, bara „haltu áfram“ eins og er slagorðið mitt á þessari heimasíðu og mantran mín góða, „Grjóthörð og Jákvæð“ kom sér vel.

HJÓL – 180 km Tími: 7:41:50🚴‍♀️
Það var strax mikill vindur í fangið þegar við hjóluðum meðfram ströndinni fyrstu kílómetrana. Svo byrjuðu brekkurnar.
„SHIT!“ Þær voru krefjandi en ég hugsaði allan tímann að ég hefði átt að vera á létta „racernum“ mínum. Hann er með miklu léttari fyrsta gír og hefði líklega hentað betur í þessar brekkur.

Eitt skiptið kallaði starfsmaður til mín að ég ætti að skipta í léttasta gírinn. Ég kallaði til baka: „ÉG ER Í LÉTTASTA GÍRN­UM!“ 😂😂

Ég er kannski ekki í besta hjólaforminu. Munið að ég var í Leiðsöguskólanum allan síðasta vetur, hjólaði ekkert og hljóp lítið. Það er ekki alveg besta uppskriftin að því að mæta í 180 km hjólreiðakeppni með miklum brekkum!

En brekkurnar kláruðust á endanum. Þá hugsaði ég auðvitað: „SHIT“ ég á eftir að taka þær aftur! Ein brekkan var sérstaklega erfið og ég sá fyrir mér að ég myndi bara labba hana í næsta hring.

Loksins komst maður upp á topp og þá tók við brun niður. En það var galli við þetta rok. Það tók mikið á að hjóla niður brekkurnar vegna sviptivinda. Ég var með 80 mm djúpar gjarðir, sem eru kannski ekki besti kosturinn þegar vindurinn er svona mikill, sérstaklega ekki að framan. Ég fékk krampa í hendurnar við að halda mér í stýrið og í bremsurnar og gat því ekki farið eins hratt niður og ég hefði viljað.

Ég og Óli höfðum keyrt þennan hluta brautarinnar á fimmtudagskvöldinu og vá hvað ég var ánægð með það! Það hjálpaði mikið að vita hvað var fram undan.

Svo kom kappakstursbrautin, gamla Formúlu 1 brautin, sem við hjóluðum rangsælis. Síðast var keppt í F1 á þessari braut í Estoril árið 1996, þegar J. Villeneuve sigraði, Damon Hill varð annar og Michael Schumacher þriðji. Einstök upplifun að fá að hjóla á þessari braut, sem var keppt á árlega frá 1984-1996.

Maður getur lent í ýmsu í svona löngum keppnum. Á kappastursbrautinni lenti ég í því að hjólari númer #3361 hjólaði aftan á mig! Ég öskraði, náði að losa klítana og forðaði mér frá því að detta, en hann datt á hliðina. Sem betur fer meiddi hann sig ekki.

Ég hafði hins vegar áhyggjur af hjólinu mínu, svo ég stoppaði aftur til að skoða það og laga bremsupúðann aðeins, þ.e. ná honum frá gjörðinni, en sem betur hafði hjólið mitt ekki skemmst, annað hvort hefur maðurinn fokið á mig eða bara verið svona utan við sig og keyrt aftan á mig. En svona á ekki að gerast, þar sem „DRAFT zone“ reglan er 12 metrar og þú hefur 25 sek. til að ljúka framúrakstri og þá auðvitað ferðu til hliðar ekki beint aftan á viðkomandi. Eftir kappakstursbrautina hjólar maður meðfram hraðbrautinni í gegnum Estoril og síðan austur í átt að Lissabon.

Ég hafði verið stressuð allan morguninn vegna tíma takmarkanna. Ég er ekki sterk í brekkum og vindur á hjóli er ekki mín sterkasta hlið. Og auðvitað var boðið upp á bæði þennan dag!

Ég ákvað því að gefa vel í, á kaflanum í átt að Lissabon, þar sem við fengum aðeins meðvind. Þar náði ég góðum og hröðum kafla og tók fram úr mjög mörgum. Á leiðinni þurfti maður fyrst að fara upp hliðargötu, töluvert langt upp, og síðan til baka og það var ákveðin hækkun þar. Svo tók við annar hraður kafli í átt að Lissabon með hliðarvindi. Næst kom önnur lykkja með hækkun, þó ekki eins löng og erfið og sú fyrri. Síðan var hjólað áfram í átt að Lissabon að snúningspunktinum við lestarstöðina í Estrela.

Það var alveg krefjandi að hjóla yfir lestarteinana og það hafði meira að segja verið settur kaðall í aðalsporin, til að minnka gatið, en mér er alltaf illa við svona hindranir á leiðinni, eftir slysið í Gullhringnum sem varð þegar farið var yfir „rimla“og ég er með mjög mjó dekk (23″) á TT hjólinu mínu , m.v. hvað er almennt í dag.

Svo tók við langur kafli til baka til Cascais, með miklum mótvindi og a.m.k. einni alvöru brekku, held þær hafi samt alveg verið tvær ha ha ha.

Loksins náði ég 90 km markinu (helmingur búinn) og þar stoppaði ég við (23″)special needs“ pokann minn í fyrsta skipti í Ironman keppni. Ég var með fjögur gel, bæði með og án koffíns í pokanum og tók þau öll með mér. Þar var líka aukaslangan mín, þ.e. númer 3, var með 2 á mér á hjólinu, þar var auka gashylki (2 á mér á hjólinu), samloka og epli ef mér hefði orðið flökurt í sjónum og ein peysa ef mér hefði orðið kalt en þetta skyldi ég allt eftir og peysan fór til heimilislausra.

Svo var bara að henda í sig einu geli með kóffíni og koma sér í að taka þessar helv… brekkur aftur!

Ég hafði verið að spyrja á leiðinni á öllum drykkjarstöðvum hvort einhver ætti koffíngel frá Maurten sem átti að vera í boði í keppninni, en það var hvergi að finna á hjólaleggnum, þó að það væri reyndar síðar í boði á hlaupaleggnum. Mér fannst það skrítið og var því mjög fegin að hafa sett auka gel með koffíni í „special needs“ pokann, 90 km: 2:31:09. Ég var komin þangað 54 mínútum fyrir tímamörkin kl. 15:25. Það var gott að eiga þetta svigrúm, en ég var samt langt frá því að vera laus við tímamarkar stressið.

Nú tók seinni hringurinn við. Sem betur fer fór hann ekki meðfram ströndinni, þannig að ég losnaði við þann vind. En í staðinn tóku aðrar brekkur við, og þær voru sko ekkert lamb að leika sér við!

Ég var eiginlega að hjóla næstum því fram hjá hótelinu okkar Óla þegar brekkurnar tóku við. Ég hugsaði aftur um frábæra, létta racerinn minn heima. En ég var samt líka farin að átta mig á því að TT hjólið hefði líklega verið réttari kostur, því ég komst hraðar á beinu köflunum. Kannski hefði ég bara þurft að æfa mig betur á því, ef ekki hefði verið fyrir Leiðsöguskólann allan síðasta vetur. En það þýddi ekkert að velta sér upp úr því núna. Það var bara að halda áfram og sem betur fer enginn gaur að segja mér að skipta í léttasta gírinn. 😀

Loksins komst ég upp á topp. Þá tók við að rúlla niður að kappakstursbrautinni. Vindurinn hafði aukist og sviptivindarnir voru enn meiri. Ég ákvað að stoppa aðeins á kappakstursbrautinni til að bæta orku á mig.

Síðan hjólaði ég í gegnum Estoril, og áfram Avenida Marginal í austurátt að Lissabon þar sem snúningspunkturinn er, auðvitað með þessum tveimur lykkjum á leiðinni.

Ég fylgdist vel með tímanum og var stöðugt að hugsa um tímamörkin við 152,8 km, en ég var á góðum tíma, en hafði áhyggjur af því hvað gæti gerst ef það myndi til dæmis springa. Þá gæti þetta allt farið úrskeiðis á örskotsstundu.

Rétt áður en ég kom að snúningspunktinum fór ég yfir lestarteinana og þá pompaði viðgerðarbrúsinn úr hjólastandinum. Ég þurfti að stoppa og sækja hann. Sem betur fer opnaðist hann ekki eins og á Ítalíu þegar ég endaði á því að leita að íhlutum út um alla brautina! HA HA HA! 😂

Það er alltaf góð tilfinning að ná snúningspunktinum og snúa við, en nú hafði vindurinn enn aukist og það var mikill mótvindur á leiðinni til baka. Ég náði 151 km markinu kl. 17:10, eða um 50 mínútum fyrir tímamörkin kl. 18:00.

Innan við 30 km eftir og ég þurfti að halda áfram að berjast við vindinn. Leiðin til baka gekk hægt. Ég stoppaði aftur til að reyna að losa bremsurnar frá gjörðunum, því mér fannst þær hafa náð að festast þar aftur. Svo var bara að berjast við þennan bölvaða vind sem hafði gefið enn meira í. Ég tók annað koffíngel.

Nú voru það ekki lengur brekkurnar sem tóku mest úr mér, heldur vindurinn. Hann var farinn að tæma orkuna úr mér.

Það var því góð tilfinning þegar ég hjólaði loksins inn í Cascais, fram hjá Auchan stóru matvöruversluninni, og inn á skiptisvæðið.

SKIPTISVÆÐI T2 = Frá hjóli í hlaup = 12:40
Óli var að sjálfsögðu kominn þangað að bíða eftir mér, aftur réttur maður á réttum stað. Náði ekki að knúsa Óla núna, ætlaði að gera það þegar ég myndi byrja að hlaupa.

Ég settist niður, skipti um sokka og skó og setti „Deep Heat„ á fæturna. Ég hafði verið að glíma við mikla taugaverki í hægri jarkanum síðustu vikur og þeir höfðu truflað svefninn minn verulega. Dóri sjúkraþjálfari taldi að verkirnir kæmu frá bakinu (gömlu brjósklosi) og hefur verið að losa um það.

Á hjólinu fann ég þessa verki bæði í hægri og vinstri fæti. Það var því gott að bera „Deep Heat“ á báða jarkana, mjóbakið og herðarnar, sem voru orðnar mjög aumar eftir átökin við brekkurnar og rokið.

Ég henti hjólaskónum, sokkum, hjálminum og sólgleraugunum í rauða (Red = Run) pokann, setti upp derið og tók með mér fjögur gel og Powerade brúsa. Næst beið hlaupið. Og ég átti eftir að kynnast nýjum andstæðingi þar!

HLAUP 42,2 km Tími: 5:37.30 🏃‍♀️
Þegar ég hljóp út af skiptisvæðinu var ég aðeins að velta því fyrir mér hvort ég ætti að fara á klósettið. Var mér mál eða var mér ekki mál? Ég endaði á því að fara ekki, tók strax gel og lagði af stað.

Mér leið ágætlega til að byrja með, en fljótlega fór ég að fá í magann. Það voru reglulegar drykkjarstöðvar á leiðinni, svo ég stoppaði og fékk mér appelsínubát. Á næstu stöð fékk ég mér nokkra sopa af kóki og notaði vatnið til að skola mig aðeins.

Ég hafði reyndar tekið blautþurrku á skiptisvæðinu og þvegið mér í framan og um hendurnar. Vá hvað maður var skítugur eftir sundið og hjólið! Blautþurrkan var orðin svört eftir að ég hafði þvegið mér í framan. Kannski ekki alveg á við það að koma ferskur og fínn af snyrtistofunni, en maður gerir það sem maður getur! 😂

Magaverkurinn minnkaði lítið. Ég reyndi að fara á klósettið, en það var svo viðbjóðslegt að ég gat ekki einu sinni pissað.

Hlaupið var þannig að maður hljóp um fimm kílómetra beint norður, með nokkrum hæðum upp og niður. Eftir rúma fimm kílómetra var snúningspunktur.

Ólíkt því sem ég hafði upplifað í Ironman Copenhagen voru engar teygjur sem sýndu á hvaða hring fólk var. Það var því ekki alveg eins auðvelt að átta sig á því hvar allir voru staddir í hlaupinu, nema kannski á hraðanum, þeir sem hlupu hraðar voru mjög líklega að klára sinn síðasta hring.

Við hlupum þrisvar sinnum norður þessa leið og hlupum síðan hring á hafnarsvæðinu fram hjá veitingastöðunum bæði fram og til baka og tvisvar sinnum suður, fram hjá markinu og sundstartinu. Það var ágætis stemning og hvatning í brautinni, að minnsta kosti framan af.

Ég hitti Óla ekki aftur fyrr en ég hafði hlaupið alla leið norður, til baka, allan hringinn við höfnina og marksvæðið og síðan áfram eftir göngugötu til suðurs. Þar tóku við undirgöng, snúningsflötur og smá brekka upp aftur.

Ég verð að segja að þetta er ekki skemmtilegasta Ironman hlaupaleið sem ég hef hlaupið. En það var mjög gaman að hitta Óla og ná loksins að knúsa hann! Ég lét hann vita að mér væri illt í maganum og hélt síðan áfram.

Ég hafði tekið magalyfið Imodium sem maður notar til að stöðva hægðir, fyrst um morguninn fyrir keppnina og svo tók ég töflu aftur í T2 og það var greinilega ekki að virka eins og ég hafði vonað. Ég hef yfirleitt ekki verið svona slæm í maganum í keppnum, en ég hef heldur aldrei tekið töflu aftur í T2, en eftir salernisævintýrið í bátnum í Kaupmannahöfn (sjá þá keppnissögu hér á síðunni) ákvað ég að prófa að taka aftur Imodium töflu í T2. En áfram hélt ég, ekkert annað í boði, þó maginn væri að kvarta.

Þegar ég var komin um 25 km og aftur á hafnarsvæðið varð ég að finna klósett. Og sem betur fer var salerni þar sem var ekki eins ógeðslegt og hitt, þá kom það! Niðurgangur. Sem betur fer náði ég að losa mig við það sem þurfti að losna við og maginn skánaði aðeins. Ég hitti Óla aftur, fór suður fyrir undirgöngin, tók snúningspunktinn og hélt til baka. En maginn var fljótur að fara aftur í klessu.

Vindurinn hafði aukist og síðasta ferðin norður var mjög erfið. Þótt brekkan væri með niðurhalla varð ég að ganga, bæði vegna roksins og magaverkjanna. Eftir um 35 km ákvað ég að stoppa og reyna að æla, í þeirri von að það myndi laga magann. Það lagaðist aðeins, en ég var orðin ansi þreytt á þessu ástandi.

Ég ákvað því að hætta að taka inn nokkurn skapaðan hlut. Hvorki gel, kolvetnatöflur, vatn né kók. Ég taldi að ég væri búin að taka inn næga orku fyrir daginn og maginn þurfti einfaldlega að fá hvíld og frið. Þetta var ekki alveg hlaupið sem ég hafði séð fyrir mér.

En svo kom loksins síðasti snúningspunkturinn. Það var góð tilfinning að vera búin með síðustu ferðina norður og ég reyndi að hlaupa og ganga til skiptis á leiðinni til baka.
38 km…
39 km…
Það er alltaf eitthvað sérstakt við að sjá þessi merki. Maður veit að maður er að nálgast markið, þó að hver kílómetri geti verið mjög langur þegar líkaminn er búinn að fá nóg.

Á þessum tímapunkti tóku hlauparar, nokkrar konur fram úr mér. Ég hugsaði bara með mér: „Ég ætla að KLÁRA!“
Ég hitti unga konu frá Belgíu og hvatti hana áfram. Við hlupum saman hringinn í höfninni og nú var bara einn kílómetri eftir. Við ætluðum að klára þetta báðar tvær.

Síðasta brekkan upp, síðan smá niður og loks inn á rauða dregilinn og í mark. Þar hitti ég Óla rétt áður en ég kláraði síðustu brekkuna upp. Hann rétti mér íslenska fánann og þá var eins og ég fengi nýja orku. Ég átti fullt inni til að hlaupa í mark með fánann minn blaktandi!

Það var ótrúlega góð tilfinning.

Eina smáatriðið var að keppnisnúmerið mitt sást ekki almennilega. Þegar ég fór á klósettið við 25 km hafði gatið sem hélt númerinu öðrum megin rifnað, svo ég varð að troða númerinu undir númerabeltið. Kannski ekki alveg fullkomin markmynd, en ég var komin alla leið!

Í MARK – ÁTTUNDA IRONMAN KEPPNIN MÍN ❤️
Heildartími: 15:22:23 – líka lakasti tíminn minn frá upphafi, en samt 52 mín. og 37 sek. frá tímamörkum. Fyrir þá sem ekki hafa lesið Ironman Copenhagen söguna mína, þá er besti tíminn minn í Ironman Kalmar 2014, 11 klst., 44 mín. og 11 sek.

9.sæti af 13 keppendum sem kláruðu í mínum aldursflokki og ein kona sem kláraði ekki í mínum aldursflokki.

Þetta var minn áttundi Ironman og þar af voru þessir tveir síðustu á aðeins tveimur mánuðum.

Það er alltaf gleði og þakklæti að komast í mark. Það er ekkisjálfsagt að komast að ráslínu. Það er ekki sjálfsagt að klára. Og hvað þá að klára með bros á vör.

Þessi keppni reyndi á mig á svo marga vegu. Ég þurfti að takast á við öldur og kvíða fyrir krömpum í sundinu, tímamörk sem héldu mér á tánum allan hjólalegginn, brekkur sem ég hefði gjarnan viljað sleppa og vind sem virtist stundum ætla að blása mér út af brautinni. Síðan tók maginn við keflinu í hlaupinu.

En ég hélt áfram. Einn kílómetri í einu, ein drykkjarstöð í einu, einn snúningspunktur í einu.

Brottfallið í þessari keppni var um 8,5%. Af þeim 2.164 keppendum sem hófu keppni kláruðu 1.981 (183 keppendur sem kláruðu ekki). Það er töluvert meira brottfall en í Ironman Copenhagen í sumar, þar sem það var um 3% (87 keppendur).

Það setur hlutina í samhengi og minnir mann á að það er ekki sjálfgefið að komast alla leið. Ég er ótrúlega þakklát fyrir að hafa getað klárað þessa keppni. Kannski var þetta ekki fallegasti eða hraðasta Ironman keppnin mín, en þetta var sannarlega einn af þeim sem reyndi mest á mig.

Og þegar maður stendur þarna í markinu, með íslenska fánann á lofti og bros á vör, þá er allt puðið, stressið, rokið, brekkurnar og magavesenið einhvern veginn þess virði.

HAMINGJUÓSKIR OG ÞAKKIR❤️
Mig langar að byrja á að óska Hjördísi Ýr Ólafsdóttur innilega til hamingju með frábæran árangur. Hún landaði þriðja sæti í aldursflokki í heilu Ironman keppninni og tryggði sér sæti á heimsmeistaramótinu í Ironman í Kona á Hawai á næsta ári! Þvílíkur árangur og þvílík fyrirmynd og þvílíkur tími, hún er OFUR !!!

Einnig langar mig að óska Hrefnu vinkonu Guðmundsdóttur innilega til hamingju með fyrsta sætið í aldursflokki í hálfum Ironman. Frábær árangur hjá ykkur báðum.

Kæru vinir, ferða- og æfingafélagar, Hrefna, Óli, Brynja, Harpa, Friðrik, Matthildur og makar, Sverrir, Ester, Berglind, Ingvar og Ingi ásamt mökum og börnum: innilegar hamingjuóskir með ykkar frábæra árangur og kærar þakkir fyrir samveruna.

Blikar skinu svo sannarlega skært í Cascais alla síðustu viku og þessa! 💚 💚 💚 Takk fyrir allar góðu stundirnar, æfingarnar, hvatninguna, hláturinn og samveruna. Þetta fer svo sannarlega í minningabankann.

Og að lokum, takk Óli minn fyrir allan stuðninginn, allt „preppið“ á hjólinu, taka það í sundur og setja í hjólatöskuna, setja það saman og redda öllu sem þurfti að redda úti, skipta um rafhlöður í gjörðunum og svo að vakna eldsnemma með mér og ALLA biðina allan daginn og að vera þarna þegar ég kom í mark. Það er ómetanlegt að hafa þig með mér í svona ævintýri. Þú ert bestur. ❤️❤️❤️

ÞAKKIR TIL ÍSLANDS
Kærar þakkir til Hákons Hrafns þjálfara sem setti upp æfingaplönin fyrir okkur. Hákoni fannst reyndar aldrei skynsamlegt hjá mér að fara tvær heilar Ironman keppnir með tveggja mánaða millibili, en hann er farin að þekkja mig og veit að „skynsemi“ er ekki millinafnið mitt.😀 Takk Mladen fyrir öll góðu sundráðin og aðlögun æfinga, þegar ég gat ekki synt með frosnu öxlina mína og allar yndislegu morgunæfingarnar í Hafnarfirði.

Takk kæri Biggi „Coach Birgir“ fyrir allar styrktaræfingarnar, sem ég hefði samt alveg mátt vera duglegri að taka, en takk sérstaklega fyrir hvatninguna og andlegan stuðning, hann er algjörlega ómetanlegur, þú hefur alltaf trú á mér og blæst í mig kjarki þegar svartsýni „apinn“ sest á öxlina á mér.

Takk Dóri sjúkraþjálfari fyrir að redda mér alltaf, hvort sem það er mjóbakið, öxlin, rifbeinsbrot síðasta vetur, sem ég var búin að gleyma, eða núna það nýjasta jarkinn. Dóri er alltaf með góð ráð í pokahorninu og dregur aldrei úr mér þrátt fyrir allt.

Takk Jón Þór og José Jorge í Erninum að „pimpa“ upp gamla TT hjólið mitt árgerð 2014, gamli „Black Stallion“ klikkaði ekki.

Takk æfingafélagar í Þríþrautardeild Breiðabliks og Hlaupahóp Breiðabliks fyrir æfingarnar í sumar. Þríþraut er hópíþrótt og félagsskapurinn skiptir mjög miklu máli. Mæli með Breiðablik. 💚 💚 💚

október 22, 2026 0 comment
0 FacebookTwitterPinterestEmail
Daglegt lífKeppnissagaÞríþraut

KEPPNISSAGA IRONMAN KAUPMANNAHÖFN 2026

by Halldóra ágúst 17, 2026

Það var ansi löng leið að ráslínunni í IRONMAN Copenhagen þetta árið. Ég hafði upphaflega ætlað að taka þátt í IRONMAN Copenhagen árið 2025, en þurfti að fresta keppninni um eitt ár eftir axlarbrot fyrir tveim árum og í kjölfarið frosna öxl í rúmt ár. Síðustu tvö árin hafði því verið ansi skrautlegt hvað meiðsli varðaði og alls ekki sjálfgefið að ég kæmist heil að ráslínu.

Kannski er það einmitt ástæðan fyrir því að ég hef í gegnum tíðina alltaf haft markmiðin mín eftirfarandi og í réttri röð:

1. Að komast að ráslínu.
2. Að klára.
3. Að hafa gaman alla leið.
4. Að bæta eigin tíma þegar það á við.

Og nú var markmið númer eitt alla vega komið í hús.

Þetta var jafnframt sjöundi heila IRONMAN keppnin mín. Ég er búin að klára Ironman í Cozumel 2012, Frankfurt 2013, Kalmar 2014, Florida 2015, Texas 2018 og Emilia-Romagna Ítalíu 2023. Nú var komið að Kaupmannahöfn.

KEPPNISMORGUN
Keppnin hófst við Amager Strandpark og eins og alltaf á Ironman-morgni var blanda af eftirvæntingu, smá stressi og tilhlökkun.

Veðrið og hitastigið í sjónum hafði auðvitað verið eitt af því sem maður fylgdist með dagana fyrir keppni. Það var spáð frekar miklu roki, hafði verið líka ansi hvasst síðustu tvo daga. En nú var ekkert annað að gera en að koma sér í gallann, ganga frá öllu og gera sig klára fyrir 3,8 km sund, 180 km hjól og heilt maraþon 42,2 km. Langur dagur framundan, svo ég vaknaði klukkan 04:00, fór í sturtu, borðaði morgunmat á hótelinu, græjaði mig í þríþrautargallann, sem maður er í allan daginn, setti nóg af „body-glide“ á allan líkamann, „foot-glide“ á tærnar og fæturnar og fór örugglega tvisvar á klósettið. Aðalmálið að ná að klára númer tvö áður en maður yfirgefur hótelherbergið.  Vakti Óla og hann kom með mér að keppnissvæðinu.

Þegar þangað var komið, fór ég strax og pumpað lofti í dekkin á hjólinu (fór með það deginum á undan), setti vatn og orkudrykk í brúsana, setti gel brúsann í brúsahaldarann og carbon töflur í töskuna á hjólið. Fór svo í klósettröðina, áður en ég fór að klæða mig í wet-suit gallann. Eftir fyrstu ferð á klósettið, fór ég strax aftur í klósettröðina og áður en ég fór og klæddi mig í wetsuit gallann, var ég búin að fara þrisvar á klósettið, smá stress. Svo klæddi ég mig í wetsuitið, setti upp sundhettuna og sundgleraugun og hitaði smá upp í sjónum. Rétt áður en ég hitaði upp, kvaddi ég Óla, hélt hann væri á leið uppá hótel herbergi. Fattaði um leið og hann var farinn að ég hafði gleymt að skilja eftir eyrnalokkana mína heima, eða láta hann hafa þá, svo ég hljóp á eftir honum og kallaði á hann, en ok, ég bara varð að vera með þá. Svo fór ég og hitaði upp þegar ég var búin að því og fór í land sjá ég Óla á ströndinni og var svo glöð að geta látið hann hafa eyrnalokkana, það er þægilegra að vera ekki með þá í þessu langa sundi.

SUND – 3,8 KM Tími: 1:32:31
Ég verð að viðurkenna að ég var mjög stressuð fyrir sundið. Öxlin hafði valdið mér miklum vandræðum og lengsta sundæfingin mín fyrir keppnina hafði verið um 3 km og það með verkjum. Ég hafði því aldrei synt alla Ironman-vegalengdina, 3,8 km, eftir meiðslin. Til öryggis tók ég tvær Panodil áður en ég lagði af stað, í þeirri von að öxlin myndi halda út allan hringinn og ég yrði ekki mjög verkjuð. 

Ég var líka í nýjum wetsuit galla. Gamli gallinn minn er mjög stífur í ermunum og það var það síðasta sem auma öxlin þurfti á að halda. Nýi gallinn gaf mér mun meira frelsi í sundtökunum, en það fylgir því samt alltaf smá óvissa að fara í 3,8 km Ironman-sund í nýjum galla.

Ég valdi að ræsa í síðasta ráshólfinu, með rauðu sundhetturnar (fyrir þá sem áætla tíma 1 klst 26 mín og hægar). Ég ætlaði alls ekki að stressa mig á hraðanum. Markmiðið var einfaldlega að komast í gegnum sundið og passa öxlina.

Sundið var við Amager Strandpark, í sjó en inni í vík, þannig að það var sem betur fer ekki mikil alda. Við syntum til norðurs, undir tvær brýr og nánast út á opið haf. Um 1,9 km út og síðan sömu leið til baka.

Stuttu eftir að ég lagði af stað, fann ég hvernig tímatökuflagan á kálfanum á mér var laus. Hvað var til ráða, átti ég að reyna að troða marvaðann og losa og festa hana. Þá væri samt hætta á að ég myndi hreinlega missa hana, svo ég ákvað að taka sénsinn. Halda bara sundinu áfram með hana lausa og vona að enginn myndi toga í kálfann á mér því þá myndi hún bara fara. Hún sem betur fer hélst á, allan tímann, en ég mun næst, festa hana betur, þegar ég er búin að hita upp. Mistökin sem ég gerði var að setja hana undir gallann, svo auðvitað rann hún bara niður undan honum og þá var hún auðvitað of laus á kálfanum.

Í öllu stressinu, reyndi ég bara að finna minn takt, halda ró minni og hugsa ekki of mikið um hversu langt væri eftir. Svo gerðist eitt af þessum litlu augnablikum sem maður man eftir úr heilli Ironman-keppni.

Þegar ég synti undir annarri brúnni á bakaleiðinni leit ég upp og sá Óla standa á brúnni. Ég náði meira að segja að veifa honum og hann sá mig og náði myndum af mér úr brúnni. Það er algjörlega magnað að hann skyldi spotta mig, þar sem um 2.600 sundmenn synda þessa leið. Mér fannst það alveg ótrúlega skemmtilegt og það gaf mér smá aukakraft fyrir síðasta hlutann.

Þarna er ég að vinka Óla, og hann tekur myndina af brúnni. Ógleymanlegt augnablik.

En mikið rosalega var ég glöð þegar ég loksins sá landið nálgast. Reyndar þurftum við að synda aðeins aftur út og út fyrir stóra bauju áður en við syntum í land. En ég var mjög ánægð. Öxlin hafði haldið. Ég hafði synt alla 3,8 km. Og fyrsta stóra spurningamerki dagsins var þar með úr sögunni. Tími 1:32:31.

Ég var ekkert að velta mér upp úr tímanum, hélt reyndar að ég hefði verið nær 2 klst en ég var bara svo fegin að vera komin upp úr sjónum og geta haldið áfram.

SKIPTITÍMI = T1 9:24
Nú tók við skiptisvæðið. Ég hafði ekki náð að pissa í sjóinn, sem er ákveðin Ironman-kúnst sem ég hef greinilega ekki enn náð fullkomnum tökum á, þannig að það var bara ein lausn á því vandamáli. Ég pissaði í gallann í T1 og var svo með vatnsflösku þar sem ég gat skolað þríþrautargallann sem ég var í undir wetsuit gallanum. (Auðvitað er hægt að fara á klósett, en þar er alltaf mikil biðröð).

Sótti pokann minn (bláa), fór í sokka og hjólaskó, setti á mig hjálminn og sólgleraugun og gerði mig klára fyrir 180 km hjólatúrinn.

Og aftur var Óli mættur. Ég náði meira að segja að spjalla aðeins við hann í T1, sem var ótrúlega skemmtilegt og gerði þetta allt aðeins léttara. Svo var ekkert meira að ræða. Upp á hjólið, 180 km framundan.

HJÓL – 180 KM = Tími: 6:55:20
Það er alltaf góð tilfinning að setjast á hjólið eftir að hafa synt 3,8 km. Maður er kominn upp úr vatninu, aftur á fast land og loksins farinn að gera eitthvað sem manni finnst maður hafa aðeins meiri stjórn á.

En það voru auðvitað 180 km framundan, þannig að planið var að taka þetta rólega og passa að taka ekki of mikið úr mér. Maraþonið 42,2 km, beið jú eftir mér í lokin.

Ég hafði aldrei farið hjólabrautina í IM Copenhagen áður, sem er svolítið ólíkt mér. Yfirleitt hef ég gefið mér góðan tíma fyrir Ironman-keppnir og annaðhvort hjólað eða alla vega keyrt hluta af brautinni fyrir keppni. En Copenhagen var öðruvísi.
Þessi Ironman átti í raun bara að vera ein löng æfingahelgi á leiðinni að næsta markmiði. Við flugum út á föstudegi, ég sótti keppnisgögnin sama dag, skilaði hjólinu og T1 og T2 pokunum inn á laugardegi, keppti á sunnudegi og flaug heim aftur á mánudegi. Sem sagt, frekar löng sunnudagsæfing í Kaupmannahöfn 😉

Þar sem ég þekkti ekkert brautina kom eiginlega allt á óvart. Fyrst hjóluðum við í gegnum miðbæ Kaupmannahafnar. Þar voru mikið af beygjum, alls konar götur og ýmislegt að fylgjast með. Það var eiginlega bara skemmtilegt að hjóla þarna í gegnum borgina og sjá allt í kringum sig. En eitt skildi ég ekki. Af hverju í ósköpunum var þetta svona erfitt?

Ég fylgdist með wattamælinum á hjólatölvunni og sá að ég var að skila ansi miklu afli miðað við hvað ég fór hægt. Ég var hvorki í einhverjum svakalegum brekkum né að keyra á miklum hraða, en samt var eins og ég þyrfti stöðugt að hafa fyrir hjólinu. Ég hugsaði með mér að þetta gæti varla verið eðlilegt.

Eftir rúmlega 30 km uppgötvaði ég loksins hvað var að. Ég var á racernum mínum sem er frekar gamall og því með hefðbundnum bremsum, ekki diskabremsum, og einhvern veginn í öllum látunum höfðu bremsupúðarnir færst til þannig að þeir lágu upp við gjörðina. Ég hafði sem sagt hjólað fyrstu rúmlega 30 kílómetrana með bremsurnar nánast á. Eins og að hjóla með akkeri á eftir sér!

Það útskýrði bæði wattatölurnar og hvers vegna mér fannst ég þurfa að hafa svona mikið fyrir því að koma hjólinu áfram.
Og auðvitað hafði þetta tekið töluvert úr mér. En hvað átti maður að gera? Ég stoppaði, losaði aðeins um bremsurnar og hélt áfram.

Eftir um 30 km kemur maður að gatnamótum þar sem farið var inn á hring sem við áttum að hjóla tvisvar, norður í gegnum Birkeröd. Þarna hefði sannarlega verið gott að hafa kynnt sér leiðina aðeins betur fyrir keppni.

Það var mikill vindur á þessum hluta brautarinnar og töluvert af honum beint í fangið. Á fyrri hringnum voru allir hröðu hjólararnir stöðugt að taka fram úr mér. Á seinni hringnum var þetta hins vegar orðið allt öðruvísi. Þá var ég farin að vera svolítið ein á ferð, með rokið ennþá í fangið. Ég var jú orðin meðal síðustu hjólaranna á brautinni og stemningin breyttist töluvert þegar færra fólk var í kringum mann. Og bremsusagan var heldur ekki alveg búin.

Ég þurfti að stoppa tvisvar í viðbót til að eiga við þær. Í fyrra skiptið hafði ég greinilega stillt þær enn of nálægt gjörðinni. Þegar ég stoppaði aftur ákvað ég því einfaldlega að losa almennilega um þær. Bremsur eru hvort sem er svolítið „overrated“ í Ironman… ha ha ha 😉

Svo var annað sem var farið að valda mér töluverðum áhyggjum. Einhvern veginn hafði ég talið mér trú um að ég hafi verið næstum tvo tíma í sundinu. Ég vissi að það væri „cut-off“, bæði eftir allan hjólatímann og eftir 90 km hjól og í öllum þessum útreikningum mínum var ég farin að halda að ég hefði bara um sjö klukkustundir til að klára þetta 180 km hjól.

Og þá byrjuðu útreikningarnir í kollinum: 180 km á 7 klst. = tæplega 26 km/klst. meðalhraði.
Ég fór því að horfa ansi mikið á meðalhraðann á Garmin-hjólatölvunni minni. Og þegar hann fór niður varð ég sífellt stressaðri. Ég var farin að sjá DNF fyrir mér. Ég ætlaði sko ekki alla leið til Kaupmannahafnar, synda 3,8 km og hjóla næstum 180 km til þess eins að vera tekin úr keppni rétt áður en ég kæmist í maraþonið! Þannig að í stað þess að taka hjólið sem rólega langa æfingu eins og upphaflega stóð til, fór ég að taka töluvert meira úr mér en ég hafði ætlað. Sem var auðvitað alveg einstaklega gáfulegt eftir að hafa hjólað fyrstu rúmlega 30 km með bremsurnar nánast á!

Svo komst ég að því að ég hafði misskilið cut-offið, þ.e. eftir keppnina. Reglurnar voru þannig að ég mátti vera 2 klst. og 20 mín. í sundinu og þurfti síðan að vera búin með sund + T1 + 180 km hjólið innan 9 klst. og 30 mín. frá mínum eigin starttíma. Og ég hafði alls ekki verið tvo tíma í sundinu. Ég hafði synt á 1:32:31. Þegar ég kom inn af hjólinu var samanlagður tími minn 8:37:15. Ég hafði því 52 mínútur og 45 sekúndur til góða! Allt þetta stress, útreikningar og extra wött höfðu því verið svolítið óþörf 😉

En svona er Ironman. Hausinn getur stundum verið jafn erfiður viðureignar og líkaminn. Ég var alla vega komin af hjólinu.

Hjólatími: 6:55:20. Og þrátt fyrir fyrstu 30 km með „akkerið“ úti, þrjú stopp vegna bremsanna, vindinn og mitt eigið DNF-drama hafði ég náð hjólinu undir sjö klukkustundum. Hér má sjá skjáskot frá Strava, vindinn, hitann og rakann. Ég sá allt að 25 gráðum á Garmin hjólatölvunni minni, svo það var mjög heitt, þegar sólin skein fyrir Íslendinginn.

Nú var „bara“ eitt eftir. 42,2 km maraþon. Og þar var loka cut-offið 15:45 frá mínum starttíma.

Ég hafði sem sagt 7 klukkustundir, 7 mínútur og 45 sekúndur frá því ég kom af hjólinu til að klára T2 og maraþonið.
Það hlaut nú að reddast… …eða hvað? 😉

SKIPTITÍMI T2 – 12:08
Óli er ótrúlega naskur þegar kemur að Ironman-keppnum. Hann kann sko 100% að vera á hliðarlínunni, enda hefur hann farið með mér í allar Ironman-keppnirnar mínar fyrir utan Cozumel og Texas.

Hann veit einhvern veginn alltaf hvar hann á að vera og hvenær. Þannig að þegar ég kom loksins inn af hjólinu eftir 180 km var hann að sjálfsögðu mættur. Ég hljóp til hans og gaf honum einn góðan sveittan rembingskoss.

Ég var nú samt orðin svolítið buguð eftir hjólið. Mér var orðið mjög illt í bakinu. Ég er með gamalt brjósklos og hafði auk þess alls ekki marga hjólakílómetra í lærunum fyrir keppnina. En eins og ég var búin að ákveða fyrirfram: Þetta var jú bara löng æfing… ha ha ha!

Ég sótti rauða pokann minn. Það er mjög einfalt að muna pokana í Ironman:
RED = RUN.
BLUE = BIKE.
Í rauða pokanum voru hlaupasokkarnir mínir, orkugel og sem betur fer verkjatöflur og rautt Deep Heat.

Ég bar Deep Heat bæði á herðarnar og mjóbakið, sem var orðið ansi aumt eftir hjólið. Skipti um sokka, fór í hlaupaskóna, setti upp derið, henti hjólaskónum og hjálminum í pokann, skilaði honum og lagði af stað.

Nú var „bara“ eitt heilt maraþon eftir.

HLAUP – 42,2 KM 5:30:44 FJÓRIR HRINGIR UM KAUPMANNAHÖFN
Hlaupið í IM Copenhagen eru fjórir hringir um miðborgina og leiðin er virkilega skemmtileg.

Maður hleypur meðal annars um Nýhöfnina og meðfram höfninni, alla leið út að Litlu hafmeyjunni, þar sem snúið er við. Fyrsti hringurinn gekk bara ágætlega.

Ég hljóp á milli drykkjarstöðva og gekk í gegnum þær, en þær voru á um það bil 2,5 km fresti. Það var fullt af fólki meðfram brautinni að hvetja okkur og alls konar skemmtileg skilaboð á skiltum sem fengu mig reglulega til að hlæja. Það skiptir ótrúlega miklu máli í Ironman-maraþoni.

Eftir hvern hring fær maður litaða teygju (hárteygju) um úlnliðinn til að sýna hversu marga hringi maður er búinn með. Fyrst rauða, síðan bláa, svo gula og mig minnir að sú síðasta hafi verið græn.

Þetta sama fyrirkomulag var þegar ég keppti í Frankfurt og maður fer ósjálfrátt að fylgjast með úlnliðunum á öllum í kringum sig.
Hvað er hún komin með margar?
Er hann á sama hring og ég?
Ó, þessi er með allar teygjurnar – hann er að fara í mark!

Svo hleypur maður líka fram hjá marksvæðinu á hringjunum. Það er pínu erfitt. Maður sér fólkið beygja inn á rauða dregilinn, heyrir fagnaðarlætin og veit að það er búið, á meðan maður sjálfur þarf að halda áfram. En þá hugsar maður bara:

Þrír hringir eftir. Næst tveir. Svo einn. Og þá verð ég þarna. NEI, EKKI NÚNA…

Annar hringurinn varð aðeins erfiðari. Ég hafði tekið imodium um morguninn en vissi að áhrifin myndu ekki endast endalaust. Ég hefði þurft að hafa meira með mér en hafði auðvitað gleymt því í rauða pokanum. Og nú fann ég að maginn var farinn að láta vita af sér.

Ég var líka búin að hitta Óla aftur. Hann spurði hvernig mér liði.
Ég sagði honum að ég væri að drepast í bakinu.
„Hvað ætlarðu að gera?“ spurði hann.
Hvað heldurðu? sagði ég:
„Auðvitað ætla ég að klára þetta. Ég er grjóthörð og jákvæð!„

Svo hélt ég áfram. En þá fór maginn virkilega að verða vandamál. Ég var að hlaupa meðfram höfninni við Amalienborg og þurfti orðið mjög, mjög mikið á klósettið.

ENGIN.
Og það voru:
Ég meina:
ENGIN KLÓSETT!

Nú voru góð ráð dýr. Ég sá skip liggja við höfnina sem var veitingastaður og ákvað að láta bara vaða. Ég hljóp að skipinu, útskýrði fyrir konu þar í hvaða neyðarástandi ég væri og spurði hvort það væri nokkur möguleiki á að fá að koma um borð og nota klósettið. Greyið konan þurfti að fá leyfi hjá skipstjóranum eða yfirmanni áður en hún gat hleypt þessari sveittu Ironman-konu um borð.

En leyfið fékkst! Ég hljóp niður í káetu og komst á klósettið.

Og ég segi það alveg eins og það er: Ég hefði ekki mátt vera einni mínútu seinna á ferðinni!

Það er kannski ekki allt í Ironman jafn glæsilegt og myndirnar á rauða dreglinum gefa til kynna 😉
PÚFF.
Þvílíkur léttir.

BARA AÐ HALDA ÁFRAM
Eftir þetta leið mér sem betur fer miklu betur í maganum. Bakið var hins vegar ennþá vont og hraðinn var ekkert til að skrifa heim um. En það skipti sífellt minna máli. Nú var þetta farið að snúast um það sem Ironman snýst svo oft um þegar líður á daginn/kvöldið:
Að halda áfram.
Einn kílómetri í einu.
Ein drykkjarstöð í einu.
Ein teygja í einu.
Og allt í einu var farið að styttast verulega í þetta.
Ég var að klára sjöunda heila Ironman-inn minn.

ÍSLENSKI FÁNINN OG RAUÐI DREGILLINN
Rétt áður en ég kláraði síðasta hringinn hitti ég Óla aftur. Auðvitað var hann á réttum stað. Hann rétti mér íslenska fánann. Og það er fátt sem mér finnst jafn hátíðlegt og að fá að hlaupa síðustu metrana í Ironman með íslenska fánann.

Nú var ekkert bak.
Enginn magi.
Engar bremsur.
Engir útreikningar á cut-off.
Bara rauði dregillinn.
Fólkið.
Fáninn.
Og markið
og ´)li í markinu.

Vá hvað ég var glöð.
Ég hafði gert það.

Eftir axlarbrotið, frosnu öxlina, verkina í sundinu, bremsurnar sem virkuðu eins og akkeri, bakverkinn og óvæntu klósettferðina um borð í veitinga/skipi …

…var ég komin í mark.

Skjáskot frá Strava, hitinn, rakinn og vindurinn í hlaupinu.

Maraþon: 5:30:44.

HEILDARTÍMI: 14:20:07

IRONMAN númer sjö var í höfn. ❤️

Ég hafði komið til Kaupmannahafnar með það hugarfar að þetta yrði bara löng æfingahelgi. Jújú.
3,8 km sund + 180 km hjól + 42,2 km hlaup.
Nokkuð góð sunnudagsæfing, það. 😉

HEILDARTÍMI: 14:20:07
Sund: 1:32:31
T1: 9:24
Hjól: 6:55:20
T2: 12:08
Hlaup: 5:30:44

Ég varð 17. í aldursflokknum F55–59 af 26 keppendum.

Þetta var langt frá mínum besta Ironman-tíma. Persónulega metið mitt er enn 11:44:11 frá Kalmar 2014, en það er líka ástæðan fyrir því að mér finnst stundum varasamt að bera saman Ironman-keppnir og tímabil.

Maður er ekki sami íþróttamaðurinn tólf árum síðar. Aðstæður eru mismunandi, brautirnar eru mismunandi og lífið sjálft er mismunandi. En 3,8 km + 180 km + 42,2 km eru alltaf sömu vegalengdirnar.

Og það þarf alltaf að klára þær.

IRONMANKEPPNIRNAR MÍNAR
Copenhagen varð sjöundi heili Ironman-inn minn:

2012 – Cozumel: 13:24:33
2013 – Frankfurt: 11:54:40
2014 – Kalmar: 11:44:11
2015 – Florida: 12:13:07
2018 – Texas: 12:15:14
2023 – Emilia-Romagna: 13:23:21
2026 – Copenhagen: 14:20:07

Það eru ansi margar klukkustundir af sundi, hjóli og hlaupi á bak við þessa sjö keppnisdaga og enn fleiri æfingatímar til að komast að ráslínunni.

LOKAORÐ
Ég hef oft sagt að það sé alls ekki sjálfsagt að komast að ráslínu og enn síður sjálfsagt að komast í mark í Ironman.
IM Copenhagen minnti mig enn og aftur á það. Eftir axlarbrot, frosna öxl, frestun á keppninni um heilt ár og ýmsar hraðahindranir var ég komin aftur að ráslínu í heilli Ironman-keppni, þó það væri bara löng æfing, þar sem ég hafði ekki náð að æfa vel fyrir þessa keppni, þar sem æfingaplan vorsins, var að koma sér aftur í hlaupaform fyrir níunda Laugavegshlaupið (tók hlaupahvíld í vetur að mestu, enda fór allur frítími síðasta vetur í Leiðsöguskólann). EN ég kláraði. 

Langar að þakka elsku besta eiginmanni mínum Óla fyrir alla aðstoðina og þolinmæðina. Hann er aðal „græjarinn“ minn, hugsar um hjólið mitt og allan búnaðinn minn og er bara besti eiginmaður í heimi. Veit ekki hvar ég væri án hans. Einnig langar mig að þakka Hákoni Hrafni fyrir æfingaplönin, Coach Birgir, fyrir alla styrktartímana og andlega hvatningu. Halldóri sjúkraþjálfara í Sjúkraþjálfun Garðabæjar, sem kom mér í gegnum þessa frosnu öxl, án aðgerðar og heldur bakinu á mér í lagi (gamalt brjósklos), frábær sjúkraþjálfari. Þakka vinum mínum í Þríþrautardeild Breiðabliks, fyrir samveruna á æfingum allt árið, það er alltaf gaman með ykkur kæru vinir. 

Það skemmtilega við Ironman er að um leið og maður er kominn í mark fer maður einhvern veginn að hugsa: Hver verður sá næsti? 😉 Og svarið við því var ekki lengi að koma, enda fyrir löngu búin að bóka:

IRONMAN Cascais í Portúgal
17. október 2026.

Áfram gakk, GRJÓTHÖRÐ og JÁKVÆÐ <3

Screenshot
Screenshot

Hér að neðan eru myndir sem voru teknar af ljósmyndurum í keppninni, Sportograph. Læt þær bara allar fylgja, sýna að maður er ekki alltaf brosandi, þó maður reyni 😉

ágúst 17, 2026 0 comment
0 FacebookTwitterPinterestEmail
Daglegt lífKeppnissagaÞríþraut

Ironman Italy 2023 16.09.2023

by Halldóra október 16, 2023

UNDIRBÚNINGUR
Hótelið okkar Sportur Club var á svo frábærum stað, eiginlega beint á móti markinu og mitt á milli skiptisvæðisins (T1/T2) og sundræsingar.  Við vöknuðum auðvitað eldsnemma og fórum í morgunmat og eftir morgunmat fórum við að hjólinu okkar þar sem settum vatn á brúsana og komum fyrir gelum og þeirri orku sem við ætluðum að taka inn. Ég var í smá vafa hvort ég ætti að pumpa eða ekki í hjólið, ég er alltaf smá stressuð að eiga við það rétt fyrir keppni, ef svo allt loftið myndi fara úr því, svo ég fékk aðstoð hjá Sverri við að pumpa, en fegin að hafa pumpað, því það var mjög lítið loft í dekkinu að framan.  En setti samt alls ekki of mikið. 

Tilbúin í keppnina með besta mínum <3

SUND 1.800 m 1:26:52 (2:17 min/100m)
Elite eða Prohópurinn var ræstur klukkan 07.30  Við hin klukkan 08.00.  Ég kom mér fyrir í ráshóp sem áætlaði 1 klst 15 mín til 20 mín í sundið, þ.e. 3,8 km . Það eru komin fimm ár síðan ég tók síðast þátt í Ironman og þá í Texas, svo það hefur mikið breyst síðan þá. Nú eru komin svona hlið, þar sem sex eða sjö manns eru ræstir í einu í gegnum hlið á 10 sek. fresti sem var ekki síðast. Því er mun minna kraðak í sundinu sem er gott, en á móti kemur þá er betra að vera í réttum ráshóp. Það er erfitt að „drafta“ hanga í kjölsoginu á næsta sundmanni ef það eru fáir og allir miklu hraðari en þú. Svo í næstu IM keppni ætla ég að vera frekar í 1:20-1:25 ráshópnum, því ég náði ekkert að drafta núna í sundinu sem ég hef yfirleitt alltaf náð að gera sem léttir sundið verulega. Á móti kemur voru miklu minni slagsmál og barátta á sundleggnum öllum. 

Sundið í IM Texas er bara einn hringur, svo maður syndir fyrst beint út, tekur svo hægri beygju og syndir langt, langt eftir ströndinni. Rauðar baujur eru alltaf hægra megin við þig, sem hentar mér vel þar sem ég anda alltaf hægra megin.  Við beygjur þá voru baujurnar GULAR og þríhyrntar en ekki kúlur eins og þessar rauðu.  Mér fannst sundið til baka, vera heil eilífð, hafði gleymt að telja hversu margar rauðar baujur voru á leiðinni sem hefði verið mjög sniðugt, því þá hefði ég getað talið þær að beygjunni.  Svo kom loksins gul þríhyrnt bauja og þá synti maður til baka og áfram rauðar kúlur/baujur á hægri hönd.  Þarna var ég farin að fá krampa í hægra fótinn, hægri kálfa niður í tvær tær. Fóturinn festist alveg og frekar erfitt að synda, en ég var búin að upplifa þetta á sundæfingum og æfa mig að synda með þennan krampa svo þær æfingar komu sér vel.  Það er MJÖG GAMALT brjósklos á milli 4 og 5 hægra megin, sem er að hafa þessi áhrif.  En þetta stoppaði mig ekki neitt.  Ég stoppaði einu sinni og tróð marvaðann, til að minnka móðu á gleraugunum þar sem ég var farin að sjá takmarkað.

Komin upp úr sjónum .. sá hvorki né heyrði í Óla 😉

„Overall“ leið mér vel í sundinu og alls ekkert ósátt við það, en hefði kannski alveg verð til í að synda án galla því sjórinn var mjög heitur.  Bara svona pælingar fyrir mig ef ég fer aftur 😉

T1 skiptitími 10 mín 16 sek
Hljóp bara rólega upp úr sjónum, tók af mér úrið, til að losa gallann á leiðinu upp úr, fór rólega í gegnum sturtuna sem er á leiðinni.  Settist svo niður við hjólapokann minn T1 (blár), fór úr gallanum, klæddi mig í sokka og í hjólaskó, fékk mér kóksopa, setti upp hjálminn og henti öllu sund dótinu í bláa pokann og restinni af kókflöskunni.  Fór svo á klósetið á leiðinni að hjólinu. Þetta skiptisvæði er það lengsta sem ég hef séð/upplifað í IM keppni, enda er líka pláss fyrir öll hjólin sem eru í ½ IM daginn eftir.

HJÓL 180 km 6:36:19 (27,25 km/klst)
Leið mjög vel þegar ég byrjaði að hjóla, hafði ekki gleymt neinu á skiptisvæðinu og það var mjög gott að komast á klósettið að pissa þar sem ég bara gat ekki pissað í gallann og í sjóinn ha ha ha þó ég hafi reynt það. 

Hjólaleiðin er út úr bænum og svo upp á hraðbraut, þar sem hjólað er í austurátt þar sem er snúningspunktur og hjólað til baka í vestur.   Ákvað fyrir þessa IronMan keppni að fara „back to basic“ þar sem ég hafði ekki náð að æfa skipulega fyrir þessa keppni, búin að vera í ýmsu öðru þetta sumarið eins og Everest maraþoni, Vasa Ultra keppnum og Team Rynekby ferðalagi. Allt samt skemmtilegar æfingar sem skila sér að sjálfsögðu í þríþrautina, án skipulags ;-). Því skildi ég TT hjólið mitt, djúpar gjarðir og powermæli eftir heima, enda tæp í baki og ekki æfð á TT hjólið.  Fór því á gamla TREK racernum mínum, með púlsmæli og grynnri gjarðir og engan powermæli.  Markmiðið var því bara að passa púlsinn og hjóla eftir líðan.  Það gekk mjög vel og ég var með ágætis næringarplan, með frábæra BioTech Energy Pro GELIÐ mitt frá Bætiefnabúllunni og með Enervit gummí/gel kubba frá því í Vasa í sumar.  

Ég var ekki komin að snúningspunktinum (sem er eftir 35 km) þegar ég fann að það var eitthvað skrítið í gel-kubbnum mínum, það er eitthvað hart í mjúka gúmmíinu.  Komst svo að því að ég var búin að missa „krónu“ (tönn) sem sat föst í gelinu. Varð því að taka gúmmíið í heild sinni úr munninum og setja það ofan í næringartöskuna á hjólinu.  Það hægðist aðeins á mér við þessa uppgötvun, sónaði svolítið út ha ha ha og var svolítið upptekin af þessu, hvort það kæmi verkur í tönnina eða hvernig þetta yrði.  Gat þar að auki ekki hugsað mér að borða fleiri svona gúmmíkubba, svo ég hélt mér við fljótandi gelin. 

Rétt áður en komið er að hinum snúningspunktinum sem er í suðvestur, þá tekur við mjög brött brekka (eftir um 69 km), sem tók vel á. Ég hafði hvorki hjólað né keyrt þessa brekku áður, hafði samt heyrt um hana og fengið ráð að taka ekki of mikið úr mér og var því mjög spennt að sjá hversu löng og brött hún yrði.  Á þessum tímapunkti var ég mjög ánægð að vera með GARMIN EDGE 1040 hjólatölvuna á hjólinu (ok kannski ekki alveg back to basic) en hún sýndi mér nákvæman halla á brekkunni og sýndi hvað væri mikið eftir, semhjálpaði andlega.  Kosturinn við brekkur eru að þegar maður er kominn „upp“ á toppinn þá er yfirleitt alltaf brekka „niður“ hinum megin, sem var mjög skemmtilegt að láta sig vaða.

Það kom mér á óvart þegar ég mætti hröðustu hjólurunum, hversu þétt þeir hjóluðu, því ég og allir í kringum mig pössuðu vel upp á 12 metra bilið. Fannst samt eftirlitið mjög gott, ég varð vör við að þeir stoppuðu þó nokkra. Því fyrir þá sem ekki þekkja þá má ekki „drafta“ eða hanga aftan í næsta hjólara, og bilið á milli hjólara verður að vera um 12 metrar.

Þegar ég var svo búin með um 107 km (rétt búin með snúningspunktinn aftur í norðri sem var við 105 km) þá lendi ég í því að viðgerðarsettið mitt, sem ég var með í brúsa í brúsafestingu aftan á hnakknum, poppaði upp úr standinum og út um alla götu. Ég hugsaði ég verð að stoppa ég get ekki skilið þetta eftir. Svo ég stoppa, reiði hjólið til baka og fer svo að leita að þessu dóti út um allt, var bæði á veginum og úti í kanti. Brúsinn opnaðist og tvö gashylki og pumpa hafði skoppð úr brúsanum, en sem betur fer fann ég allt dótið mitt aftur.  Ástæðan fyrir þessu voru miklar holur sem voru víða á hraðbrautinni, en vegurinn var mjög ójafn og bumpy 😊 Eftir á hugsaði ég hvað í raun það var gott að standa upp og fara af hjólinu, því við höfðum t.d. alltaf gert það reglulega á Rynkeby ferðalaginu og það skiptir miklu máli og þá sérstaklega fyrir bakveika að teygja aðeins úr sér.

Áður en ég kom svo að því að taka bröttu brekkuna í síðara skiptið þá komin með 139 km, þá peppaði ég sjálfa mig upp. Notaði möntruna mína „ég er grjóthörð og jákvæð“ og hugsaði að sá sem klárar „Mur De Hoy“ vegginn í Belgíu, án þess að ganga brekkunar upp, á að að geta hjólað þetta, þó ég væri að sjálfsögðu orðin þreytt, „tannlaus“ og búin með um 140 km 😉
Mantran virkaði og ég náði að komast upp alla brekkuna á hjólinu án þess að stoppa eða ganga.

Bakaleiðin eftir brekkuna og niður í bæ, var mjög krefjandi, þar sem mótvindur var mikill og því hægði verulega á mér þennan síðasta kafla. Ég hélt áfram að taka inn gel og drakk vel, svo ég yrði ekki orkulaus, en þetta var mjög krefjandi hjól og mikill hiti.  Horfði á hitamæli á leiðinni niður í bæ, og hitinn var 30 gráður í forsælu. 

T2 skiptitími 12 mín 43 sek
Kosturinn við þríþraut, er að þegar þú ert búin að synda, þá hlakkar þig til að byrja að hjóla, svo þegar þú ert búin að hjóla mjög langt og orðið smá illt í rassinum og bakinu, þá ertu bara fegin að fara af hjólinu og byrja að hlaupa. Þannig leið mér þegar ég kom í T2 og skilaði hjólinu.  Hitti Óla og kallaði á hann, Óli ég missti tönn 😉

Óli ég missti tönn 😉

Fór svo beint á klósettið, alveg í pissuspreng, því ekki get ég heldur pissað á mig á hjólinu eins og PRO fólkið getur gert 😉  Stoppaði svolítið lengi í T2, fékk mér sæti, klæddi mig í hlaupaskóna í rólegheitum, fékk mér kók að drekka og tók svo líka með mér eina flösku með vatni og söltum.  Gaman að hitta Óla, en svo hitt ég líka Sverri sem við kynntumst úti sem hafði því miður þurft að hætta í hjólinu, vegna púlsvandamála.  

Að dóla mér – skipta um skó og næra sig 😉
Sverrir – af hverju ertu þarna -ertu búin ?

HLAUP 42,2 km 5:47:13 (07:03 meðal pace)
Maraþonið eru fjórir rúmlega 5 km hringir.  Ég hafði hlaupið hluta af þessari leið þegar ég tók þátt í 5 km Midnight Run á fimmtudagskvöldinu (smá mistök sem ég gerði þar að hlaupa allt of hratt, enda var ég með harðsperrur í morgun þegar ég vaknaði) ha ha ha. 

Það voru margir að hvetja á hliðarlínunni, mikið partý í bænum á laugardagskvöldi og gaman. En mikið ofboðslega var HEITT. Ég stoppaði á hverri einustu drykkjarstöð, labbaði í gegnum hana og fékk mér vatn og orkudrykk og hellti vatni yfir mig alla, bæði höfðu, allan búkinn og hendurnar. 

Hingurinn er kláraður á hringtorgi sem var rétt hjá hótelinu okkar og þar hitti ég alltaf Óla og Pétur. Gaf mér alltaf tíma til að labba rólega þar í gegn, spjalla við þá og gefa Óla koss og knús.  Svo henti ég mér í næsta hring. 

Hringtorgið …

https://photos.app.goo.gl/f1yE9n66odevYchS8

Það var mikill munur á hitastigi um leið og sólin settist var ekki steikjandi hiti af sólinni, en eftir því sem leið á kvöldið, þá fækkaði áhorfendum á brautinni, þar sem þeir færðu sig nær markinu til að hvetja sitt fólk sem var að koma í mark.  Það var samt áberandi hversu mikla hvatningu við stelpurnar/konurnar fengum sem ég var mjög þakklát fyrir og einnig var áberandi hversu margir höfðu hnigið niður og voru komnir með aðstoð sjúkraliða, örugglega út af hita og /eða vatnsskorti. 

Það var mjög heitt, enda var maður með allt flaksandi 😉

Ég tek alltaf „sálfræðina“ á hlaupin og hugsa eftir fyrsta hring ¼ eða 25% búinn og svo áður en þú veist af eru þrír hringir af fjórum búnir eða 75% og þá er „bara“ einn eftir.

Tveir hringir búnir, bara 2 eftir 😉

https://photos.app.goo.gl/LCfDFH1xsiGmZSSG6

Þá var bara að „girða sig“ renna upp þríþrautargallanum, þar sem maður þarf að vera sómasamlegur til fara þegar maður kemur í mark 😉 😉

Markið í Ironman Italy er eitt það flottasta sem ég hef séð, það er hlaupið út á ströndina á rauðum dregli, beygt til hægri og þar fram hjá áhorfendapöllunum er svo markið. Það er fullt af fólki á áhorfendapöllunum sem gefur þér „high-five“ á leiðinni í mark og gaman að fagna þó að við Óli höfðum bæði steingleymt íslenska fánanum heima sem ég er vanalega með á mér þegar ég kem í mark 😉

Myndband sem Óli tók þegar ég kom í mark: https://photos.app.goo.gl/4QqQiUgxdcJJQpjn6

IRONMAN FINISHER 2023 13 klst 23 mín 21 sek.
Ég var mjög glöð með mig þegar ég kom í mark, þó tíminn væri minn annar slakasti, en þetta var sjötta IM keppnin sem ég klára. Tíminn var einni mínútu betri en þegar ég kláraði minn fyrsta Ironman í Cozumel, enda ákveðið að þessi yrði algjörlega back to basic. 

Markmiðið var ALDREI að bæta tímann, heldur að taka þátt, hafa gaman og komast í mark.  Mjög margir vina minna hafa lent í DNF (DidNotFinish) í hlaupum á þessu ári og ég var svo smeyk við að klára ekki, að lenda í einhverju, annað hvort með hjólið eða sjálfan mig.

Verðlaunin – Medalía og ískalt Egils Appelsín <3

Það var kona, grjóthörð, jákvæð og full af þakklæti og æðruleysi sem kom í mark í Ironman Italy 2023

Íslendingarnir sem kláraðu IM Italy 2023
október 16, 2023 0 comment
0 FacebookTwitterPinterestEmail
Daglegt lífKeppnissagaÞríþraut

Kópavogsþrautin 2021 (keppnissaga)

by Halldóra maí 9, 2021

Hafði samband við Margréti M formann Þríþrautardeildar Breiðabliks sl. mánudag og spurði hana hvað hún vildi að ég gerði varðandi Kópavogsþrautina. Átti ég að skrá mig sem sjálfboðaliða (eins og ég hef verið síðustu árin), taka að mér þá sem ekki ætluðu að keppa og hjóla með þeim (hef verið aðstoðarhjóla þjálfari á sunnudögum) eða átti ég að skrá mig sem þátttakanda í keppnina ?

Margrét var mjög fljót að svara mér og sagði mér að ég ætti að skrá mig sem þátttakanda, ég hélt hún myndi frekar segja mér að skrá mig sem sjálfboðaliða ha ha ha, en ég auðvitað tók áskoruninni og skráði mig.

Var samt í smá vanda með að skrá sundtíma, því ég hafði ekki alveg nógu mikla trú á mér og mínum sundtíma. Ætlaði fyrst að skrá á mig 8 mín, en ég endaði á að skrá 7 mín og 30 sek sem var nákvæmlega tíminn sem ég sinnti á, þegar búið er að taka frá tímann sem fór í að fara upp úr og hlaupa að tímamottunni.

Lenti á braut 7, þar sem við vorum 7 saman á braut. Haddý (Hrafnhildur) nafna mín, var á sömu braut og ég og kvöldið fyrir keppni höfðum við áhyggjur af því að það væru ansi margir á brautinni, því sums staðar voru bara 5, 6 og/eða 7 :- )

KEPPNISMORGUN
Var mætt á Rútstún með hjólið mitt, rétt rúmlega 7:30 en svæðið opnaði klukkan 7:30, fór í gegnum hjólatékk og hjálmurinn var líka skoðaður. Setti svo hjólið á rekka, ásamt hjólaskóm, hlaupaskóm, sokkum og númerabelti (sólgleraugum og ennisbandi).

Það var svo keppnisfundur klukkan 08:30 og sundlaugin opnaði klukkan 09:15, fór fyrst útí Krambúð og keypti mér banana, hafði gleymt að taka hann með mér, sem mér finnst mjög góð næring rétt fyrir keppni.

SUND
Keppnin var svo ræst klukkan 09:30, fór út í laug með tvenn sundgleraugu, þar sem ég var ekki viss hvor þeir leka, hef svolítið verið að lenda í því, fékk Þórdísi vinkonu, lækni til að geyma svo hin gleraugun. Ræddum aðeins fyrir ræsingu hver ætlaði að vera hvar í sundbrautinni, en lögðum svo öll af stað á sama tíma. Fegin að ég var ekki alveg aftast eins og ég ætlaði mér þar sem sú sem var síðust var þó nokkuð mikið fyrir aftan mig, en ég kom næstsíðustu upp úr lauginni. Sundtími að mottu: 7 mín 43 sek. 400 metra vegalengd.

T1
Var mjög lengi í skiptatímanum, þar sem ég þurrkaði fæturna, fór í flíspeysu sem er rennd (sá ekki eftir því), fór í sokka, hlaupaskóna, setti á mig keppnisbeltið og tók svo hjólið af rekkanum og hljóp með það yfir marklínuna og krítuðu línuna, þar sem við máttum fyrst fara á hjólið. T1 tími: 2 mín, sem er frekar lakur tími, en skiptir ekki máli þegar maður er bara að hafa gaman og vera með.

HJÓL
Fann ég var ekki örugg á hjólinu, þar sem ég var ekki búin að æfa mig neitt á TT hjólinu. Hafði lánað vinkonu minni hjólið í fyrrasumar og sótti það bara í gærkvöldi uppá háaloft, og reyndi að hækka aðeins sætið og færa það aðeins aftur. Ég ákvað að liggja ekkert á letistýrinu heldur bara taka hjólið frekar öruggt, sá að ég hefði kannski frekar átt að fara á racernum mínum, kassettan á því er léttari, það er með rafmagnsskiptum og ég er bara öruggari á því, en á sama tíma er SVARTI FOLINN geggjað flott TT hjól og með frábærum keppnisgjörðum. Hjólabrautin eru þrír hringir 10 km samtals, þ.e. þrisvar upp sömu brekkuna en á sama tíma mjög gaman að fara hratt niður brekkuna hinum megin. Ég var með drykk á hjólinu sem var mjög gott, en enga næringu. Það var ótrúlega kalt, vindur og skuggi á norðanverðu Kársnesi svo ég var mjög glöð að hafa gefið mér tíma og farið í flíspeysuna. Hjólatími: 23 mín (26,19 km klst meðalhraði)

T2
Hoppaði af hjólinu áður en ég nálgaðist hvítu línuna, hljóp svo á hjólaskónum með hjólið uppá rekkann. Losaði svo hjálminn, úr skónum, í hlaupaskóna, var í smá vandræðum að komast í þá, þó ég væri með skóhorn, greip sólgleraugun, eyrnabandið og sneri númerinu fram og hljóp af stað. T2 Tími: 1:44

HLAUP
Mér leið ótrúlega vel þegar ég byrjaði að hlaupa, kom sjálfri mér eiginlega á óvart þar sem ég hef ekki verið dugleg að æfa „brick“, þ.e. hlaup eftir hjól, kannski vegna þess að ég hef svo lítið verið að hjóla ha ha ha, tek bara eina rólega 100 km Gran Fondo æfingu á mánuði, þar sem við höfum reynt að velja flata braut 🙂 En alla vega mér leið vel, tók fram úr mörgum á leiðinni. Það var virkilega góð tilfinning að hafa ekki tekið of mikið úr sér bæði í sundinu og hjólinu að eiga fullt inni til að líða vel allan tímann á hlaupunum, líka upp brekkuna, en hlaupabrautin eru tveir hringir samtals 3,5 km. Tók enga næringu, hvorki á hlaupinu, né hjólinu, fyrir utan drykkinn sem ég var með á hjólinu. Heildar hlaupatími: 17 mín 28 sek eða 04:59 pace.

HEILDARTÍMI 52 mín 24 sek. Varð 11 konan í heildina og varð í 4 sæti í aldursflokki.

Náði að grafa upp gamla tíma, en ég keppti síðast í Kópavogsþrautinni 2014 á 47 mín og 6 sek. og árið 2013 var ég 47 mín og 38 sek. Fann ekki tímann minn 2012, en þá tók ég þátt í fyrsta skipti og var pottþétt lengur, því ég fékk refsistig frá Ásgeiri vini mínum sem var yfirdómari, þar sem ég var búin að taka hjólið af rekkanum áður en ég festi hjálminn 🙂 Það var fyrsta þríþrautarkeppnin mín, en það ár keppti ég í öllum þríþrautarkeppnum á Íslandi og mínum fyrsta Ironman (af fimm) þ.e. árið 2012.

Það sem stendur upp úr var hversu skemmtileg keppni Kópavogsþrautin er. Frábærir keppnishaldarar, mótstjóri, dómarar, sjálfboðaliðar allt saman eðalfólk. Ég var búin að gleyma hvað þríþrautin er ofboðslega skemmtileg íþrótt og að taka þátt í svona keppni er einstök upplifun og skemmtun, frá A-Ö, er svo glöð að hafa drifið mig aftur á stað, þó ég væri ALLS ekki í besta formi lífs míns. Þá var ég alltaf glöð og náði þar með markmiði mínu sem var að klára og hafa gaman alla leið. Takk kærlega fyrir mig.

maí 9, 2021 0 comment
0 FacebookTwitterPinterestEmail
KeppnissagaÞríþraut

Bláfjallaþríþraut Relive

by Halldóra maí 10, 2020
maí 10, 2020 0 comment
0 FacebookTwitterPinterestEmail
Daglegt lífGönguskíðiKeppnissagaÞríþraut

Bláfjallaþríþraut 2020

by Halldóra maí 10, 2020

Það var í lok fimmtudagsins 7. maí sem poppaði upp hjá mér á Facebook að Bláfjallaþríþrautin yrði haldin, sunnudaginn 10. maí og hámarksfjöldi væri 50 manns út af Covid-19. Ég smellti á skráningarlinkinn til að kanna hvort það væru ennþá laus sæti og sá að það voru tvö sæti eftir, númer 49 og 50. Ég hringdi strax í Margréti Magnúsdóttur þar sem ég var búin að lofa að vera hjólaþjálfari á sunnudeginum og fékk frí, sem var ekkert mál. Ég hringdi svo í Siggu Sig vinkonu sem var ekki við tölvu, en hún var til, svo ég skráði okkur báðar. Hún hafði tekið þátt í þessari keppni í fyrra, en þá var ég í útlöndum.

UNDIRBÚNINGUR
Við Sigga fórum seinnipartinn á laugardeginum upp í Bláfjöll til að kanna aðstæður á sporinu, þ.e. snjónum og veginum þ.e. hjólaleiðinni. Við skíðuðum lítinn hring og rennslið á „skinn“ skíðunum var bara fínt. Ég fór svo í grillpartý með Ísbirnum vinkonum mínum og Sigga hjólaði utanvegarkaflann á CX hjólinu um 11 km til Hafnarfjarðar til að kanna ástandið á veginum sem er lokaður bílaumferð. Vegurinn var grófur en samt þannig að það var alveg hægt að fara á CX hjóli.

KEPPNISMORGUN
Ég var búin að undirbúa mig vel hvað varðar allan búnað á laugardagskvöldinu. Fór snemma að sofa kvöldið áður og vaknaði klukkan 07:00 fékk mér hefðbundinn morgunmat fyrir keppni, þ.e. ristað brauð og kaffi á fastandi maga. Það er að ýmsu að hugsa í svona þríþraut. Taka þurfti til göngskíði (og velja hvaða skíði og þá hvort og hvað bera eigi undir þau) gönguskíðastafi, gönguskíðaskó, hjólaskó, hjólið, hjálminn, hlaupaskó og næringu. Þurfti að muna eftir að setja drykk í brúsa á hjólið og koma þurfti fyrir auka slöngu og gashylki í viðgerðartöskuna á hjólið. Við Óli lögðum af stað uppí Bláfjöll rétt rúmlega átta, fannst ágætt að vera einu sinni komin tímalega, til að stilla upp hjólinu og prófa aftur skíðin. Auk þessi þurfti að merkja bæði skíðin, stafina og hjólið. Fékk merki númer tvö. Hafði tekið þá ákvörðun að fara á skinn skíðunum, en ekki keppnis(klísturs) skíðunum þar sem það er vorfæri og því stundum vesen með áburð eða klístur á keppnisskíðin, þar sem ég kann ekki mikið á þetta klístur 🙂 Hins vegar er yfirleitt rennslið mun betra á keppnisskíðunum og ég því hraðari á þeim. En þetta var bara gleðikeppni og hugsað til að styrkja afreksskíðafólk í Ulli. Prófaði þarna aftur skinnskíðin og þau runnu ágætlega.

Við vinkonurnar ég og Sigga Sig að leggja í hann.

GÖNGUSKÍÐI 1/3
(10,5 km = 53 mín 58 sek = 11,4 km á klst meðalhraði – hámarkshraði 32,4 km/klst)
Við vorum ræst út í 8 manna hópum, klukkan 10:00 með u.þ.b. 1 mín millibili. Við Sigga vorum saman í þriðja ráshópi og ég skíðaði í sporinu á eftir henni. Við fórum vel af stað í þó nokkrum mótvindi. Svo fór að snjóa og þá snjóaði í sporið og þá fundum við hvað það var lítið rennsli í sporinu. Svo kom hríð og rennslið hjá Siggu var ennþá verra en hjá mér svo hún sagði mér að fara á undan sér. Ég fór fram úr henni og sagði henni að „drafta“ mig, þar sem það var ennþá mótvindur og ég vissi að hún myndi svo ná mér niður fyrstu brekkuna. Sigga er algjör snillingur niður brekkur, á meðan ég fer í plóg, enda er minningin um það þegar ég tvíhandleggsbrotnaði í Bláfjallagöngunni um árið, ennþá í fersku minni. Brautin lá um 5 km inn á heiðina og svo til baka. Þetta er ekki sami 10 km hringurinn og var í fyrra og við vorum því í engu skjóli af vestanáttinni sem barði á okkur.

Að koma í mark á gönguskíðunum, eftir smá baráttu við vind, snjókomu og hríð, en það sá líka til sólar.

HJÓL 2/3
(25,5 km = 1 klst 6 mín 54 sek = 22, 9 km á klst meðahlraði – hámarkshraði 68,9 km/klst)
Eftir að hafa skíðað yfir marklínuna, þ.e. tímatökumottuna, þá skilur maður skíðin og stafina eftir og hleypur í átt að hjólinu. Þar skiptir maður um skó, þ.e. fór úr skíðaskónum og í hjólaskóna, ég skipti um hanska líka (sem var ágætt þessir orðnir frekar sveittir), setti á mig hjálminn, hjólahanskana og svo HOKA bakpokann sem var með hlaupaskónum í. T1 = 2 mín og 27 sek. Henti mér svo á hjólið og náði góðri siglingu niður malbikaða kaflann að beygjunni, tók fram úr tveim keppendum á leiðinni að gatnamótunum. Náði hámarkshraða þar um 69 km á klst skv Garmin. Malarkaflinn var mjög krefjandi en ég fór samt fram úr öllum á fjallahjólum, þar sem CX TREK hjólið er auðvitað mun hraðara en fjallahjól almennt. Fór síðan fram úr tveim keppendum sem var sprungið hjá og hægði á mér og bauð þeim aðstoð. En það voru komnir aðrir keppendur að aðstoða þá báða svo þau sögðu mér bara að halda áfram. Þetta var mjög krefjandi 11 km grófur utanvegakafli, þar sem það eru almennt ekki demparar á CX hjólum og ekki á mínu, svo þetta tók vel á hendur og axlir, en vegurinn var samt skárri en ég hélt að hann væri m.v. lýsingar Siggu frá laugardeginum. Meðalhraði hjá mér var um 21-22 km á þessum erfiða kafla skv. Garmin Fenix 6x úrinu mínu.
Eftir malarkaflann tók við malbikskafli alveg niður að gatnamótum Krísuvíkurvegar og vegarins að Hvaleyrarvatni, eða við Dúfnakofana í Krísuvík. Þar beið okkar sendibíll þ.e. í T2 sem tók hjólið, hjálminn og bakpokan með hjólaskónum og ég henti mér í hlaupaskóna og hljóp af stað.

Elska TREK BOONE CX hjólið mitt, en fyrsta skipti sem ég keppi á því.

HLAUP 3/3
(5,43 km 31 mín og 32 sek. Meðalhraði 5:48 pace eða 10,3 km/klst og hámarkshraði 13,6 km /klst.)
T2 tíminn var 2 mín 7 sek, sem er frekar langur tími m.v. þríþraut, en þetta átti hvort eð er bara að vera skemmtikeppni, þ.e. taka þátt og hafa gaman sem ég og gerði. Hlaupið er utanvega í byrjun og fer svo í gegnum Vellina á malbiki og þaðan inn að Ástjörn þar sem er farinn hringur í kringum tjörnina allt á utanvega stígum.
Var því mjög glöð að vera á HOKA SPEEDGOAT utanvega skónum mínum, en ekki HOKA malbiks skónum. Mér leið ótrúlega vel í hlaupinu, en var auðvitað allt of mikið klædd. Í SWIX gönguskíða undirfatnaði, þykkum hlaupabuxum, legghlífum og í SWIX rúllukragabol og jakka og með buff 🙂 Þannig að ég batt utan um mig jakkann á hlaupunum og renndi niður kraganum á bolnum. Þegar ég var komin á malbiksstíg hinum megin við vatnið og tók beygjuna inná malbikaðan göngustíg, þá sé ég hvar ein stelpa kemur á milljón á eftir mér. Ég gaf því svolítið í og náðu góðum niðurhlaupskafla niður brekkuna, en svo þegar við vorum komin hringinn í kringum Ástjörnina, þ.e. rétt áður en við komum að Haukahúsinu, þá náði hún mér og var rétt á undan mér í mark. Við villtumst reyndar báðar í hraunkaflanum á milli Haukahússins og sundlaugarinnar, sem var bara skemmtilegt 🙂

Haddýjar hopp að sjálfsögðu tekið í markinu.

LOKATÍMI = 2 klst 37 mín 2 sek skv. tímataka.net – 2 klst 36 mín 59 sek. skv. Garmin – næstum því á pari. Vegalengdin samtals: 41,29 km.
Þrátt fyrir að hafa misst Berglindi Gunnarsdóttur fram úr mér á lokasprettinum, þá náði ég 3 sæti kvk af öllum 24 konunum sem kláruðu keppnina. Var á eftir Karen Axelsdóttur, sem var í 2. sæti og Kristrúnu Guðnadóttur, gönguskíðadrottningu í Ulli sem var í 1 sæti.
Ég varð í 1 sæti í aldursflokki 50 ára og eldri og var í 12 sæti yfir alla keppendur af 40 sem kláruðu. Þessi niðurstaða kom mér skemmtilega á óvart, þar sem markmiðið var alltaf bara að fara og hafa gaman sem ég og gerði.

Óska ULLI til hamingju með glæsilega Bláfjallaþríþraut. Þakka öllum sjálfboðaliðum fyrir þeirra frábæra starf og hvatningu. Þetta var einstaklega skemmtileg keppni og gaman að taka þátt í henni og styrkja frábært starf Ullar í Bláfjöllum.
#HOKAONEONE #TREK #ÖRNINN #SPORTÍS #FISCHER #GARMIN #FENIX6X

Konur 50 ára og eldri. Með Sæunni Gísladóttur til vinstri (2.sæti) og Guðrúnu Guðmundsdóttir (til hægri, 3.sæti)

maí 10, 2020 0 comment
0 FacebookTwitterPinterestEmail
Daglegt lífFjallahlaupFjallaskíðiGönguskíðiKeppnissagaSjósundSundÞríþraut

50 ÁRA AFMÆLISÁRIÐ 2019

by Halldóra desember 31, 2019

MARKMIÐ
Það var í lok árs 2018 sem við Siggi Kiernan grínuðumst með það að það væri gaman að gera eitthvað skemmtilegt eða út fyrir þægindahringinn í hverjum mánuði á árinu 2019, þar sem þá myndum við bæði fagna 50 ára eða hálfrar aldar afmæli. Þó þetta hafi byrjað sem grín, þá má segja að þetta hafi eiginlega orðið raunin og árið 2019 verður pottþétt eitt eftirminnilegasta ár ævi minnar og ólíklegt að ég muni einhvern tíma toppa það, nema kannski þegar ég verð 100 ára 🙂

Hér að neðan ætla ég að fara yfir árið eftir mánuðum og rifja upp allt það skemmtilega sem ég tók þátt í með yndislegum og skemmtilegum vinum, en það er það sem skiptir öllu máli. Ég var líka svo lánsöm að byrja í nýrri og skemmtilegri vinnu og eignaðist yndislega vinnufélaga, sem er líka algjörlega ómetanlegt.

JANÚAR 2019
Ég byrjaði þetta magnaða ár, með nýársgöngu á Esjuna ásamt frábærum vinum sjá hér. Það er alltaf einstaklega skemmtilegt og hátíðlegt. Annars var ég dugleg að hlaupa bæði með Hlaupasamfélagi Náttúruhlaupa, hljóp með vinum mínum nokkra ríkishringi og Digraneströppunar (himnastigann) þar sem við vorum að æfa fyrir HK100. Hlaupið í Hong Kong, þ.e. HK100 fór svo fram 19. janúar og það gekk mjög vel. Kláraði á 18 klst 43 mín og 56 sek, þessa 103 km og kom fyrst Íslendinganna í mark. Sjá nánar um HK100 keppnissöguna hér. Þetta var þriðja árið í röð sem ég tók þátt í HK100 og minn langbesti tími frá upphafi. Alltaf gaman að toppa sjálfan sig á 50 ára afmælisárinu 🙂
Annars þakka ég yndislegu vinkonum mínum í HK, þeim Huldu og Rebekku fyrir frábærar móttökur og aðstoð í HK100, þær eru einstakar heim að sækja og þær ásamt vinum mínum ástæðan fyrir því að ég hef tekið þrisvar sinnum þátt í þessu sama hlaupi.

Strax eftir heimkomu frá Hong Kong byrjuðu gönguskíðaæfingar og ég var ótrúlega heppin með veður. Fram að HK100 hafði verið ótrúlega snjólétt og þægilegt til að æfa fjallahlaup og strax eftir heimkomu fór að snjóa mikið og ég náði að æfa bæði í Bláfjöllum og í Heiðmörkinni gönguskíðin.

FEBRÚAR 2019
Náttúruhlaupa – hlaupasamfélagsæfingar héldu áfram í febrúar sem og gönguskíðaæfingar þegar færi og tími gafst. Við Óli fórum svo til Brighton aðra helgina í febrúar með Kjöthúsinu (vinnustaður Óla) en okkur var boðið í þessa glæsilegu árshátíðarferð Kjöthússins sem var mjög skemmtileg. Í lok febrúar fórum við svo til Trysil til að taka þátt í þriðja skiptið í Vasaloppet veislunni. Fórum 2017 í Nattvasan og 2016 í Vasaloppet keppnina sem er 90 km skíðaganga í sænsku dölunum.

MARS 2019
Vasaloppet 90 km skíðagangan með Ísbjörnunum vinum okkar var svo 3. mars. Þrátt fyrir mikið vesen á leiðinni með bindingarnar, sem voru alltaf að losna og ég þurfti á endanum að henda þeim og fá nýjar, þá var ég bara sátt við, í fyrsta lagi að hafa klárað gönguna og á allt í lagi tíma eða 10 klst 23 mín og 42 sek. Það fór mikill tími í að reyna að redda bindingunum. Gangan sjálf var líka mun betri hjá mér heldur en þegar ég tók þátt í fyrsta skipti. Sjá myndir frá Vasaloppet 2019 hér, en ég gleymdi að skrifa keppnissöguna 🙂

Þegar ég kom heim héldu skíðaæfingar áfram ásamt Náttúruhlaupaæfingum, þar sem næsta keppni var bara tveim vikum seinna eða 16. mars, Birkebeinerennet, sem er 50 km skíðaganga í Noregi. Keppnin er mjög skemmtileg, mjög ólík Vasa, að því leiti að fyrst er mjög löng brekka upp fjallið og svo eru margar hraðar brekkur niður. Vasaloppet er mun flatari og meiri lækkun en hækkun, öfugt við Birken. En keppnin var krefjandi en mjög skemmtileg og ég náði að klára á 5 klst 37 mín og 35 sek. Sjá nánar um Birkebeinerennet keppnina hér:

APRÍL 2019
Í byrjun apríl flugum við Óli til San Fransisco með Eddu og Eið vinum okkar. Við höfðum keypt þennan flugmiða fyrir punkta fyrir rúmlega ári síðan, eða þegar ég var í Ironman Texas, þá fékk ég póst frá Icelandair um að punktarnir okkar væru að renna út. Ég spurði þá Pétur, Sædísi og Irinu hvert við ættum að fara til Bandaríkjanna og þau mæltu með San Fransisco og Kaliforníu. Þegar við Edda vorum svo að plana ferðina þá kom í ljós að það var San Fransisco Rock and Roll 1/2 maraþon í SF á sama tíma og við vorum úti. Úr varð að ég skráði mig í hlaupið og hljóp það 7. apríl. Það var mjög skemmtilegt að hlaupa á Golden Gate brúnni, en við vorum líka búin að sigla undir hana svo það var skemmtileg upplifun að hlaupa líka yfir hana. Sjá nánar um hlaupið hér á Relive myndbandi, engin keppnissaga.

Í ferðinni okkar fórum við líka til Los Angeles og til Las Vegas en við keyrðum um 2.000 km í þessari ferð og það var mjög gaman að sjá þessar fallegu en ólíku borgir. Við sigldum líka útí Alcatras og skoðuðum fangelsið. Undir lok ferðarinnar þá manaði Eiður mig í að fara í fallhlífarstökk með honum. Það þurfti reyndar ekki mikið að mana mig, því fallhlífarstökk var alltaf „on my bucket list“ svo það var magnað að geta upplifað það þann 12. apríl. Sjá nánar um fallhlífarstökkið og myndband úr þeirri flugferð hér:

Mamma varð 70 ára 20. apríl 2019 og við vorum búnar að ákveða að fara saman til Bilbao og fagna því. Ívar Trausti bjó til ferð og hvatti mig til að bjóða öðrum að koma með mér og njóta fjallahlaupa í fjöllunum í kringum Bilbao. Það var einstakt ævintýri en leiðinlega við það, var að mamma komst ekki með (hún ætlaði nú ekki að hlaupa, heldur bara njóta borgarinnar), en ákvað á síðustu stundu að fara ekki út þar sem heilsan hans Helga (maðurinn hennar) hafði hrakað og hún hafði áhyggjur af honum. En ég fór í yndislega páskaferð með yndislegu fólki, fórum út á skírdag og heim á annan í páskum og ég get 100% mælt með fjallahlaupaferð til Bilbao á Spáni.
Í lok apríl eða 29. apríl byrjaði ég svo að þjálfa Hóp1 hjá Stjörnunni og fékk frábærar móttökur frá æfingafélögum.

MAÍ 2019
Maí verður eftirminnilegur fyrir það að ég fékk nýja vinnu og byrjaði 15. maí að vinna hjá Reykjavíkurborg á Velferðarsviði sem framkvæmdastjóri Samstarfsnetsins. Fékk yndislegar móttökur frá frábæru samstarfsfólki í Borgartúni og það er búið að vera virkilega skemmtilegt að vinna að undirbúningi að stofnun Samstarfsnetsins sem fer formlega í loftið núna 1. janúar næstkomandi.

Hvað hreyfingar varðar þá var ég dugleg að hlaupa bæði með Náttúruhlaupurum og þá sérstaklega með Laugavegshópi NH, svo byrjaði ég að synda í sjónum, þar sem ég hafði samþykkt að taka þátt í Marglyttuævintýri um haustið, þ.e. að synda boðsund (sex manna lið) yfir Ermasundið. Ég synti þó að mestu í galla í maí þar sem sjórinn var frekar kaldur. Stærstu verkefnin hvað hreyfingar varðar í maí voru fjallaskíðaferðir, á Snæfellsjökul með Guðmundi Smára og Guðmundi Tryggva 22. maí í gullfallegu veðri, gengum upp á stuttermabolum, bara eftir vinnu. Sjá nánar hér:

Fór svo líka á Hvannadalshnúk á gönguskíðum með Sigga Kiernan og Guðmundi Tryggva 30. apríl, líka í mjög góðu veðri, sjá nánar hér: Frábærar fjallaskíðaferðir báðar tvær.

Sjósund og fjallaskíði voru því ný verkefni, bæði þó nokkuð út fyrir þægindahringinn í maí.

JÚNÍ 2019
Ég hélt áfram að hlaupa utanvega með Laugavegshópi Náttúruhlaupa, hljóp með Hópi 1 í Stjörnunni og hjólað smá og synti í júní. Tók þátt í Hvítasunnuhlaupi Hauka 10. júní og náði 4 sæti í aldursflokki, 26 sæti overall kvk og náði PB í tíma.

Stærsta ævintýri JÚNÍ mánaðar var svo auðvitað á sjálfan afmælisdaginn 20. júní, 50-50-50. Fékk hugmyndina frá Siggu vinkonu sem hljóp 50 km (5*10 km hringi) þegar hún varð 50 ára fyrir nokkrum árum. Ákvað því að hjóla 50 km, hlaupa 50 km og synda 50 metra á sjálfan afmælisdaginn og bjóða vinum mínum að taka þátt með mér. Það komu 9 manns að hjóla með mér (um miðja nótt í miðri viku), en ég hafði ákveðið að leggja af stað í hjólið, á miðnætti og hjóla nokkra Álftaneshringi út á Bessastaði og svo Ásahring þar til ég næði þessum 50 km. Við þurfum bara að fara 3 hringi og ég fékk frábæran félagsskap yndislegra vina með mér. Bauð þeim svo uppá súkkulaðiköku, Hleðslu og banana um nóttina eftir hjólaævintýrið, en þetta var svo björt og falleg og yndisleg nótt.

Svo klukkan 06:30 byrjuðu morgunhlaupin, Fékk líka yndislega vini mína til að hlaupa með mér og var búin að teikna upp þennan 7,8 km hring og hljóp 4 hringi alltaf í frábærum félagsskap. Miðnæturhlaup Suzuki var 20. júní og það var hægt að hlaupa 10 km eða 21,1 km (hálft maraþon), ég ætlaði fyrst að hlaupa bara 10 km þar og 4 * 10 km hringi heima áður, en svo breytti ég planinu og hljóp 4 * 7,8 km um daginn og svo 21,1 km í Miðnæturhlaupi Suzuki. Það voru áfram frábærir vinir sem hlupu með mér um kvöldið þetta skemmtilega hlaup. Eftir hlaupið fór ég svo í Laugardalslaugina og þar beið mamma og fleiri vinir sem syntu með mér 50 metrana yfir laugina. Sjá nánar um 50-50-50 hér:

Á milli hlaupanna heima og Miðnæturhlaupsins var ég með opið hús (hamborgara-grillpartý) þar sem Óli minn grillaði fyrir fjölskyldu og vini og ég fékk Hrafnkel Pálmason til að koma og syngja fyrir okkur. Mikið var þetta var yndislegur dagur og ég er einstaklega þakklát Óla, fjölskyldunni og vinum sem gerðu þennan dag svona eftirminnilegan og einstakan.

JÚLÍ 2019
Æfingar fyrir Laugavegshlaupið héldu áfram í júlí og þetta skemmtilega æfingatímabil með skemmtilegum æfingafélögum var toppað með því að hlaupa sjálft Laugaveghslaupið 13. júlí. Ég kom sjálfri mér á óvart og náði mínum besta árangri í Laugavegshlaupinu, (PB), en þetta var í fjórða skiptið sem ég tek þátt. Sjá nánar hér:

Eftir Laugavegshlaupið tóku við fleiri sjósundsæfingar, því það styttist í 2 klst æfinguna, sem ég kveið verulega fyrir. Vissi að ég væri ekki að fara í Ermasundið nema ég myndi ná að klára þá þrekraun, þ.e. að vera 2 klst í einu í sjónum í Nauthólsvík. Ég var ekki alveg með nógu mikið sjálfstraust í þessum efnum, þar sem tilhugsunin um kuldann í sjónum var mín helsta hindrun, en ég notaði ávallt möntruna mína, #jákvæð og #grjóthörð til að hvetja mig áfram og komast fram hjá þessari hindrun sem var föst í huga mínum. Þann 22. júlí syntum við svo þetta 2 klst sund í Nauthólsvík. Hitastigið var 14 gráður. Sjá nánar um þetta sund, sem var LANGT ÚT fyrir minn þægindahring hér:

ÁGÚST 2019
Ágúst byrjaði hjá okkur Óla með mjög skemmtilegri fjallahjólaferð inná Fjallabak með vinum okkar, Ísbjörnunum um verslunarmannahelgina. Á frídegi verslunarmanna skutlaðist ég vestur í Grundarfjörð með Marglyttunum Þórey og Birnu, þar sem við hittum Marglyttuna Brynhildi. Syntum svo boðsund yfir Grundarfjörð og lentum í árshátíð alvöru Marglyttna sem brenndu okkur allar. Eftir á að hugsa var þetta fín æfing og þá sérstaklega að vera búin að lenda í alvöru Marglyttum, sjá nánar hér.

Fór svo með frábærum hópi utanvegahlaupara í fjallahlaupaferð í hringinn í kringum Mt. Blanc (Tour Mont Blanc TMB), en ég var farastjóri með Elísabetu Margeirsdóttur. Ferðin var frá 11.-16. ágúst og var algjörlega mögnuð, félagsskapurinn svo skemmtilegur og leiðin falleg. Við hlupum um 140 km á þessum 6 dögum.

Synti svo hið fræga Viðeyjarsund föstudaginn 23. ágúst með Marglyttunum mínum en við lögðum af stað í beinni útsendingu á Stöð 2, sjá nánar hér: Þetta var enn eitt ævintýrið sem var langt út fyrir minn þægindahring, enda sjórinn verulega kaldur, undir 10 gráður.

Daginn eftir Viðeyjarsundið tók ég þátt í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka þ.e. 24. ágúst og eftir maraþonið skokkaðu ég frá miðbæ Reykjavíkur heim í Garðabæinn til að ná 50 km, enda var ég með númerið 50 á þessu 50 ára afmælisári. Tók ákvörðun um að skrá mig í þetta maraþon með 3ja daga fyrirvara, sjá nánar hér:

Í lok ágúst flaug ég svo til Genfar í Sviss þar sem ég fór á fund á vegum Þríþrautarsambandsins og var auk þess fararstjóri íslenska hópsins sem tók þátt í aldursflokkakeppni í þríþraut í Lausanne í Sviss.

SEPTEMBER 2019
Þríþrautarkeppnin fór fram 1. september í Lausanne í Sviss, en ég tók þátt í Ólympískri vegalengd og gekk mjög vel. Virkilega skemmtilegt að fá að taka þátt og synda í Genfar vatni. Sjá nánar hér:

Flaug svo beint frá Sviss til Englands, þar sem ég hitti Marglyttur vinkonur mínar en til stóð að synda yfir Ermasundið þann 4. sepember. Vegna veðurs þá dróst það fram á síðasta dag, en þann 10. september náðum við Marglytturnar að synda yfir Ermasundið frá Dover í Englandi til Calais í Frakklandi, sjá nánar hér: Þetta var algjörlega magnað ævintýri og mjög eftirminnilegt.

EFtir að ég kom heim hélt ég áfram æfingum með Stjörnunni, Náttúrúhlaupunum og tók nokkrar Esjur með vinum mínum. Við Siggi og Viggó tókum svo magnaða næturæfingu, 27. september, þegar við fórum fimm ferðir upp að Steini á Esjunni, á ofboðslega fallegu Norðurljósakvöldi. Hins vegar var ég frekar óheppin á niðurleiðinni í fjórðu ferðinni, flaug ég á hausinn og brákaði á mér nokkur rifbein og gerði gat á hnén á buxunum og var líka blóðug á höndum. Eftir smá aðgerð, þ.e. hreinsun á sárum á bæði hnjám og höndum fór ég samt og kláraði fimmtu ferðina (reyndar mjög rólega).

OKTÓBER 2019
Þetta fall mitt í Esjunni, hafði smá áhrif á æfingar fram að keppni. Fann þó nokkuð fyrir rifbeinunum og æfði ekki mjög mikið í lok september eða fyrstu dagana í október. En það sem ekki drepur þig, herðir þig og því fór ég kokhraust í langt ferðalag til Reunion Island (frönsk eyja í S-Afríku, Indlandshafi) þann 14. október og lagði svo af stað í þetta 100 mílna fjallahlaup, eitt erfiðasta fjallahlaup í heimi þann 17. október. Kláraði hlaupið á 56 klst 34 mín og 14 sek sjá nánar hér: Þetta er klárlega lengsta og erfiðasta hlaup sem ég hef tekið þátt í og klárað.

NÓVEMBER 2019
Eftir Reunion hlaupið tóku bara við mjög þægilegar æfingar með Stjörnunni og Náttúruhlaupum. Fór til dæmis 14. nóvember í yndislegt Powerarde með einum Stjörnuhlaupara sem var að fara í fyrsta skipti í Powerade.

Árlegur fundur 100 km félaga og inntaka nýrra félaga fór fram 13. nóvember. Það er svo sem ekki í frásögur færandi, nema þar hitti ég Rúnu Rut vinkonu og hlaupafyrirmyndina mína sem var að fara til Fíladelfíu að hlaupa maraþon 24. nóvember. Ég kastaði því svona fram eftir fundinn, meira í gamni, en alvöru, hvort ég ætti ekki að henda mér með henni í þetta maraþon. Fór á netið og sá að það var ennþá laust í hlaupið og í flug. Daginn eftir hringdi svo RRR í mig og spurði hvort mér væri alvara. Til að gera langa sögu stutta, þá skráði ég mig með viku fyrirvara í þetta hlaup og hljóp svo maraþon í Fíladelfíu með Rúnu Rut vinkonu minni þann 24. nóvember. Náði að sjálfsögðu ekki neinum sérstökum tíma, en kláraði með bros á vör sem var markmiðið. Sjá nánar hér:

Þann 30. nóvember fór ég svo í skemmtilega Rjúpnaveiðiferð með Óla og Sigga Kiernan. Sáum engan fugl, en gönguferðin var yndisleg. Hélt áfram æfingum með Stjörnunni og Náttúruhlaupum, bara mjög rólegar æfingar, enda þó nokkur þreyta í fótunum eftir langa Reunion hlaupið.

DESEMBER 2019
Fékk fleiri Stjörnur með mér í desemberhlaup Powerade og það voru þrjár Stjörnur að fara í fyrsta skipti í Powerade þann 12. desember. Synti svo Þorláksmessusund með mömmu að morgni Þorláksmessu og gaman að ná mínum besta árangri PB í þessu sundi frá upphafi, en ég hef tekið fimm sinnum þátt. Sjá nánar hér:

Þessu magnaða 50 ára afmælisári, var svo slúttað í frábærum félagsskap Stjörnuhlaupara sem „Ólafur“ á gamlársdag 31. desember. Hver er þessi Ólafur ? Það er von að þú spyrjir því ég spurði sömu spurningar, en hann er snjókarlinn í bíómyndini Frozen. Þar sem ég hafði ekki séð þessa mynd, ákvaðum við Óli að leigja hana núna um helgina og nú veit ég allt um Elsu, Önnu og Ólaf og ævintýri þeirra í Frozen og söng og spilaði lagið „Let it GO“ allt gamlárshlaupið og kom glöð í mark, síðust af öllum Stjörnunum.

AUÐMÝKT OG ÞAKKLÆTI
Ég er einstaklega þakklát fyrir að hafa heilsu til að gera allt það sem ég hef gert á þessu 50 ára afmælisári. Ég er einnig þakklát að eiga yndislega vini sem hafa tekið þátt með mér í þessum ævintýrum. Fjölskyldunni þakka ég líka fyrir þolinmæðina og hvatninguna, ef baklandið er ekki til staðar er ekki hægt að láta alla þessa drauma verða að veruleika.


desember 31, 2019 0 comment
0 FacebookTwitterPinterestEmail
Daglegt lífKeppnissagaÞríþraut

ITU Grand Final ólympísk þríþraut

by Halldóra september 1, 2019

Í ITU Grand Final keppnum er sundið ræst út eftir kyni og aldursflokkum. Yngsti hópurinn er ræstur út fyrst um morguninn, svo Sædís og Dagný voru ræstar út fyrstar og þurftu að mæta fyrstar niður eftir. Hitastigið á Genfar vatninu var 23 gráður, svo það mátti ekki keppa í „wet-suit“ eða sundgalla. Hafdís var líka ræst út á undan okkur og tók strætó á undan okkur í bæinn.

Við (Gúa, Hildur, Leifur, Finnbogi og Óskar, ásamt Gerði) tókum strætó saman klukkan rúmlega 07:00 eða tveim tímum fyrir ræsingu. Við þurftum fyrst að fara að skiptisvæðinu þ.e. hjólinu okkar, þó við hefðum skilið það eftir, til að setja vatn á brúsann, pumpa í hjólin og koma á það næringu. Átti líka eftir að skilja eftir hjálminn og bæði hjóla- og hlaupaskóna, númerabeltið og derhúfuna fyrir hlaupið.

Það var skemmtileg tilviljun að við sáum Sædísi koma upp úr sjónum og hlaupa að T1 og hún leit mjög vel út. Veðrið var líka svo súper gott, ekki of mikil sól og ekki of heitt.

Við gengum svo að sundsvæðinu sem var í um 1 km fjarlægð og fórum inn í hólfið og í klósettröðina. Hildur var svo fyrst af okkur, síðan Leifur og svo við Gúa og að lokum Finnbogi og Óskar.

SUND: 36 mín og 7 sek
Aldursflokkurinn minn (Konur 50-54 ára) voru með bláar sundhettur og við vorum ræstar klukkan 09:20. Ég hafði ákveðið að hita ekkert upp áður, nema bara með teygju upphitun, svo mér yrði ekki kalt áður en ég færi út í. Sundið gekk mjög vel, en það sem kom mest á óvart var hversu mikil alda var í sjónum. Gúa hafði reyndar nefnt það við mig áður en við fórum út í, en ég hélt þetta væri ekki neitt. Sundið er einn 1,5 km hringur og fyrst er synt beint út, komið að rauðri bauju, þar sem maður beygir til vinstri. Ég hugsaði með mér að eftir baujuna myndi þetta skána, en nei, aldan hélt áfram og var ekkert skárri. Við tók langur kafli fram hjá hvítri bauju, svo aftur að annarri rauðri. Maður átti að hafa rauðu baugjuna vinstra megin við sig, og hvítu baugjuna hægra megin. Eftir næstu rauðu, þá kom önnur vinstri beygja, svo beinn kafli, önnur rauð og beygt til vinstri. Þar var hvít baugja sem maður átti að hafa hægra megin við sig, en við höfðum séð keppendur taka short-cut þar. En núna var komin kajak ræðari, svo það gat enginn stytt sér leið þar í gegn.

Eftir síðustu hvítu baugjuna var appelsínugult mark framundan og sundið búið. Leið samt alveg vel og nokkuð ánægð með tímann 36 mín og 7 sek – en ég synti líka 1.683 metra (ekki 1500 M) (2:08/100 metra).

T1: 3 mín 40 sek. Vegalengdin í T1 var um 550 metrar, þ.e. frá sundinu, að hjólinu og með hjólið út. Hjólið mitt var staðsett á milli F og G rekka og ég sem betur fer fann það strax. Þrátt fyrir að þetta væri bara ólympísk vegalengd, þá vildi ég fara í sokka, svo ég fengi ekki sár á fæturna fyrir Ermasundið. Þar sem ekki var synt í wet-suit var maður bara fljótur að klæða sig í sokka og skó, festa á sig hjálminn og taka svo hjólið af rekkanum og hlaupa með það út fyrir svæðið og út fyrir línuna, þar sem þú mátt fara á hjólið. En ég viðurkenni að ég hljóp nú ekkert hratt með hjólið smá sýra ennþá í fótunum eftir maraþonið síðustu helgi.

HJÓL: 1 klst 26 mín 01 sek. Ég vissi að hjólaleiðin væri erfið, en vegalengdin er 40 km, þ.e. tveir 20 km hringir. Við vorum búin að fara mestan hluta af leiðinni og vissum að það væri brött brekka sem var með um 7% halla upp. Í hjólabrautinni var líka hræðilega brekka niður sem var með um 12% halla. Þegar við fórum og fylgdumst með sprettþrautinni og Tómasi í gær, þá voru bara 5 hjólarar sem fóru á vegginn, þar sem þeir fóru allt of hratt niður þessa brekku. Við vorum öll ákveðin í því að lenda ekki í því.

Hjólaleggurinn byrjar upp brekku hjá Mövenpick hótelinu, þessi 7% halli og ég fann að ég var með sýru í lærunum, svo ég fór ekki hratt upp brekkuna, en ég alla vega gekk hana ekki. Sá svolítið eftir að hafa ekki farið út frekar með racerinn minn, heldur en TT hjólið, því hann er bæði með léttari kassettu og rafmagnsskiptum og það hefði hentað mun betur. En þetta hafðist. Svo tók smá sléttur kafli og niður aðra brekku, snúningur á hringtorgi og aftur upp brekku, sem var ekki eins brött en löng og aflíðandi. Ég tók eitt gel á leiðinni upp þessa brekku og fann strax hvernig orkan skilaði sér í líkamann. Svo var komið að því að fara niður bröttu brekkuna og ég bara fór strax á bremsurnar – ætlaði sko ekki að hitta „VEGGINN“. Við lékum okkur skemmtilega að þessum orðaleikjum, eins og að hitta vegginn, að dansa á línunni, þegar við fylgdumst með sprettþrautinni í gær, þar sem næstum allir Mexíkanarnir hlíddu ekki skipunum að fara af hjólinu áður en þeir komu að línunni, þegar þeir hlaupa með hjólið inn í T2. Þeir dönsuðu ekki á línunni, heldur fóru eiginlega alltaf yfir hana.

Brekkan niður gekk vel hjá mér og svo tók við smá beinn kafli, svo reyndar nokkrar krappar beygjur, til vinstri og til hægri og svo tekin undirgöng og farið í gegnum garðinn, aftur mjög bratta brekku, sem við vorum ekki búin að hjóla. Þá var ekkert annað að gera, en að standa bara hjólið og koma sér upp þessa bröttu brekku. Það hafðist líka og svo var hægri beygja og aftur snúningur til baka og þá kom langur hraður kafli frekar mikið niður. Sá ég náði þar hámarkshraða yfir 50 km á klst. Hugsaði alveg með mér, að ég myndi ekki vilja detta eða að það myndi springja hjá mér núna 🙂 En síðan hjóluðum við fram hjá hótelinu okkar og áfram í austur. Við höfðum farið þennan kafla tvisvar áður sem var gott og þarna hittum við Tómas og Mæju sem hvöttu mig áfram, sem var mjög gaman. Svo var snúið við, smá brekka upp og síðan langur beinn kafli, áður en við þurftum að fara nokkrar beygjur og hæga kafla niður í bæinn aftur og þá búin með fyrri hringinn.

Síðari hringurinn gekk mjög vel, nema þegar ég kom að hraða hraða kaflanum, sem ég hafði náð 50 km hámarkshraða þá fékk ég flugu í augað, var ekki búin að setja skyggnið fyrir augun og það var mjög óþægilegt að berjast við hana og reyna að ná henni úr auganu á mér, en hafðist að lokum.

T2: 3 mín 16 sek.
Ég passaði mig vel þegar kom að línunni, að fara ekki yfir hana eins og Mexíkanarnir höfðu gert í gær 🙂 Hljóp svo á hjólaskónum með hjólið að rekkanum mínum, hengdi upp hjólið, losaði hjálminn, fór úr hjólaskónum og í hlaupaskóna og setti á mig númerabeltið og derhúfuna og greip tvö gel sem lágu hjá skónum. Velti fyrir mér hvort ég ætti að drekka RedBull dósina sem ég var með, en ákvað svo að gera það ekki 🙂

HLAUP: 55 mín og 59 sek.
Það var orðið frekar heitt þegar ég hljóp af stað, sólin skein og ég var fegin að hafa tekið derhúfuna hvítu. Meðalhitastig í hlaupinu voru 27°C. Það voru drykkjarstöðvar á 2 km fresti og ég tók alltaf fullt glas af vatni og helti yfir derhúfuna mína og yfir mig sjálfa. Það voru miklar brekkur í hlaupinu, ég vissi af brekkunni sem var mjög brött við hliðna á Ólympíusafninu, en vissi ekki af hinum tveimur 🙂 Notaði tímann þegar ég gekk upp brekkuna að fá mér gel, og drakk svo bara vatn með. Það voru ótrúlega margir sem hvöttu mann áfram, sáu ISL og kölluðu áfram Ísland. Hitti líka nokkra vini mína úr þríþrautarsamfélaginu sem hvöttu mig áfram.
Hlaupaleiðin voru tveir 5 km hringir (5,2+4,8 km) og þrjár brekkur í hvorum hring. En falleg og skemmtileg leið.

LOKATÍMI: 3 klst 5 mín og 4 sek.
Ég var með úrið stillt á þríþrautarstillingu, svo ég var ekkert að spá í tímanum. Var búin að ákveða fyrir keppnina að vera skynsöm og passa að taka ekki of mikið úr mér, þar sem Ermasundið er áætlað bara rétt rúmum tveim dögum eftir þríþrautina. Það var yndislegt að sjá stelpurnar Sædísi, Hafdísi og Dagnýju hvetja mig áður en maður hljóp inn á bláa dregilinn í markið. Að sjálfsögðu tók ég Haddýjar hoppið í markinu. Lokatími 3 klst 5 mín og 4 sek.
(60 kona í aldursflokki kvk 50-54 ára)

ÞAKKIR
Kæru ferðafélagar takk fyrir yndislegar og skemmtilegar samverustundur í Lausanne. Innilega til hamingju öll með ykkar frábæra árangur. Gaman að kynnast ykkur öllum og hópurinn var einstaklega vel samstilttur.
Það var virkilega leiðinlegt að Guðlaug Edda náði ekki að klára, því það var mjög gaman að hvetja hana, bæði á hjóla- og hlaupaleggnum. Svo biðum við Hildur lengi eftir henni við markið með fánann.

september 1, 2019 0 comment
0 FacebookTwitterPinterestEmail
Daglegt lífKeppnisKeppnissagaÞríþraut

Ironman Texas 2018

by Halldóra apríl 28, 2018

Vaknaði klukkan 04:00 og fór í sturtu og fékk mér morgumat, kaffi á fastandi maga og ristað brauð með osti og sultu. Aðalmálið eins og alltaf að ná að gera númer 2 😉  Pétur keyrði okkur svo niður í bæ, þar sem við höfðum komið hjólunum okkar fyrir. Var mjög fegin að hann skutlaði okkur, því þá þurftum við ekki að hafa áhyggjur af því hvar við fyndum bílastæði fyrir bílinn, enda bannað að leggja á mörgum stöðum, eins og við verslunarmiðstöðina og annars staðar.

Pumpaði í dekkin á hjólinu, maður verður að passa sig að setja ekki of mikið, þar sem þrýstingurinn eykst þegar sólin kemur upp og hitastigið eykst. Setti svo vatnsbrúsana á hjólið, gelin í hnakktöskuna og allt ready. Fór svo bæði í Running pokan og Hjóla pokann, og setti fanta dós og redbull dós í pokana og kom líka auka fötum fyrir ef ég myndi vilja skipta um föt og ef eitthvað kæmi fyrir. Hjálparsveitar Halldóra er alltaf með í undirmeðvitundinni.

Hittum Breiðabliks strákana á skiptisvæðinu og löbbuðum með þeim yfir að sundsvæðinu. Funduð gáma-klósett á leiðinni sem var ekki eins mikil röð við og hentum okkur í það. Þegar við komum að sundstartinu, var ennþá myrkur og ágætis tími til að fara enn og aftur á klósettið og svo var ekkert annað að gera, en að body-glæda sig og koma sér í wet-suitið.  Svo bara að koma skónum, úlpunni og öðrum fötum sem við vorum í utanyfir í hvíta pokann sem maður fær þegar maður kemur í mark. Þá var maður ready í wet-suiti með sundgleraugu, sundhettu og eyrnatappa og vatnsbrúsa sem ég myndi svo henda á leiðinni út í vatnið. Framundan 3,8 km sund.

SUND = 3,8 km Tími 1 klst 23 mín og 23 sek.
Ræsingin í sundið var svokölluð fljótandi ræsing. Þú raðaðir þér í þann hóp sem þú taldir að þu myndir ráða við. Við fórum inn í hópinn á milli 1 klst og 20 mín og 1 klst og 25 mín.  Fyrsti hópur ræsti klukkan 06:40 og svo var stöðugt verið að ræsa til klukkan 07:00. Það var búið að vera mikil umræða síðustu daga um hvort vatnið yrði of heitt til að mega synda í því, en svo var ákvörðun tekin um að það mætti. Það voru samt mjög margir sem syntu í ermalausu wet-suiti. Ég er nú svo mikil kuldaskræfa og fannst þetta ekkert sérstakleag heitt, enda mun kaldara en sundlaugin 🙂  Vatnið var auk þess mjög brúnt, mikill leir og drulla í því og ekki bragðgott. Ég var samt fegin að hafa mætt á æfinguna sem var í gær, en á ákveðnum tima máttum við synda í vatninu, ákveðinn hluta leiðarinnar.  Var einnig frekar stressuð yfir því að fá krampa, því ég hef verið að fá krampa í vinstri fætinum á sundæfingum, þar sem leiðnin var, eftir brjósklosið og þar sem dofnu tærnar eru.

Sundið gekk nokkuð vel framan af. Sama baráttan svo sem og alltaf og slagsmálin, en ég er orðin vön því, ef ég fæ á hann þá bara olnbogast ég á móti og ef einhver vogar sér að toga í fæturna á mér, þá sparka ég á móti. Komst fram hjá fyrstu snúningsbaugunni og svo var bara að halda áfram til baka. Rétt áður en ég kom svo að beygjunni til hægri þá byrjaði ég að krampa. Sá hvar einn keppandinn var við bakkann og stóð þar og var að laga sundgleraugun sín, svo ég synti til hans og náði að botna þar og lemja fætinum nokkrum sinnum niður í drulluna, eins og ég var vön að gera í sundlauginni og þá leið mér betur og hélt áfram.

Kom svo að beygjunni þar sem synt var inn kanalinn. Það var gaman að sjá húsin og fólkið á bakkanum og svo var síðasta snúningsbaugjan og að bryggjunni. Sundið búið, „thank God“ hugsaði ég en ég synti 4.070 m. skv Strava og kláraði á 1 klst 23 mín og 23 sek. og var bara mjög sátt við það. Var í 40 sæti í aldursflokki eftir sundið, kona númer 298 og 1370 af öllum þátttakendum.

 

T1 = 6 mín og 16 sek.
Fékk aðstoð við að komast upp úr vatninu, svo settist maður bara á grasið og fékk aðstoð við að toga mann út úr gallanum. Varð í staðinn fallega brún á rassinum ha ha ha, sá marga svoleiðis líka á undan mér.  Hljóp og tók hjólapokann minn, fór inn í tjaldið og fékk mér að drekka, þurrkaði fæturnar, fór í sokka og skó (fékk enga aðstoð, allir aðstoðarmenn uppteknir), en það var allt í lagi, tók hjálminn minn, henti wet-suitinu, sundgleraugun og sundhettu í pokann og skilaði honum til næsta aðstoðarmanns. Fékk svo sólarvörn á hendurnar og fæturnar á leiðinni út.  Hljóp að hjólinu, greip það og kveikti á garmin græjunni og hljóp með það út fyrir línuna, þar sem maður má fyrst fara á hjólið. T1 tími samanlagður 6 mín og 16 sek.

HJÓL = 5 klst 51 mín 23 sek. (ath Garmin Sagan ??)
Það var yndislegt að komast á hjólið, en skrítið að þekkja ekki leiðina. Höfðum hvorki keyrt hana né hjólað, svo ég vissi ekkert hvert ég ætti að fara, hef alltaf kynnt mér leiðina áður, en ekki núna, en það var allt mjög vel merkt, svo ég vissi að ég myndi ekki týnast 🙂  Það var yndislegt að hjóla í þessu góða veðri, þó það væri mjög heitt, þá er góð vindkæling á hjólinu. Mér leið mjög vel og passaði mig alltaf að halda góðu bili í næsta hjólara og þurfti því oft að hægja á mér þegar stórir hópar komu fram hjá mér.  Fyrstu hjólaði maður einhvern hring þarna inn í bænum og svo fór maður út á hraðbraut í áttina að flugvellinum. Þegar ég var komin þangað og komin aðeins upp eftir, fór maður að sjá fyrstu hjólarana koma á móti manni og það sem kom mér á óvart var að þeir voru allir í stórum hópum og enginn að dæma „draft“ á þá. Man ég hugsaði hvað þetta var skrítið.   Ég var stöðugt að hægja á mér þegar hraðari hjólarar komu og tóku fram úr mér, því ég ætlaði sko alls ekki að láta dræma drafting á mig, samt sá ég aldrei mótorhjól, man ég hugsaði að þau hlutu að fara að koma fram úr mér.

Rétt við flugvöllinn er snúið við á keilu.  Á leiðinni er maður oft að fara yfir svona stórkostlegar brýr og það var hækkun í þeim. Það var kannski það sem kom mest á óvart, að hjólaleiðin væri ekki marflöt, því það var búið að tala um það að hún væri algjörlega flöt.  Svo kom snúningspunktur eftir 45 km, fjórðungur búinn, nú var að hjóla alla leið niður eftir til baka, og svo aftur upp að keilu og snúa aftur við.  Það var gaman að sjá að það voru hjólarar á eftir mér, þegar ég hjólaði niður eftir. En það voru tveir hjólarar sem vöktu mestu athygli, en þeir voru að hjóla leiðina á svokölluðu „fatbike“ hjóli, sem er ekkert smá afrek að mínu mati.  Bakið á mér var alveg að finna fyrir hjólinu, svo ég var bara dugleg að rétta úr mér og hjóla frekar upprétt, hélt þá bara í letingjana og náði að rétta vel úr mér, en fékk bara vindinn í fangið í staðinn.  Þegar ég var kominn x km þá varð ég að stoppa og henda mér á klósettið. Það eru margir sem geta pissað á sig á hjólinu, en ég er ekki ein af þeim. Ég hef reynt að æfa það, en algjörlega án árangurs. Mér var farið að líða það illa, og mikið mál að ég vissi að það væri betra að eyða nokkrum mínútum í að stoppa og pissa, heldur en að bíða þar til ég væri komin í T2.  Það var líka rétt, mér leið mun betur eftir pissustoppið sem skilaði sér í betri líðan á hjólinu. Ég var ekki að borða mikið, en ég var með tvo brúsa með orkudrykk í á mér og greip banana á leiðinni og tók inn 2 gel allt hjólið.

Kláraði hjólið á 5 klst 51 mín og 23 sek, með pissustoppinu, samkvæmt Strava var ég xxx.  Eftir hjólið var ég komin í 35 sæti í aldursflokki, þ.e. búin að vinna mig upp um 5 sæti. Var í 248 sæti af öllum konum (upp um 50 sæti frá sundinu) og 1.267 overall.

T2 = 10 mín og 34 sek.
Steig af hjólinu áður en ég kom að línunni og aðstoðarmaður kom og tók við hjólinu og fór með það, frekar næs, því oftast þarf maður að hlaupa sjálfur með hjólið og skila því á rekkann. Ég sá Pétur og Sædísi þar sem ég kom inn og hljóp til þeirra og knúsaði og gaf „high-five“. Hljóp svo á hjólaskónum (ekki beint þægilegt) í gegnum allt hjólasvæðið að hlaupapokunum. Greip pokann minn og hljóp inn í tjald. Fór úr hjólaskónum í hlaupaskóna, skilaði hjálminn setti upp derhúfu og meira af sólarvörn á mig og fékk mér Fanta að drekka. Fór svo á klósettið áður en ég skilaði pokanum af mér.  Tími í T2 var því 10 mínútur og 34 sek. sem er frekar langur tími.  (eftir hjól hugsar maður gott nú get ég bara klikkað ekki hjólið hahah)

HLAUP = 4 klst 43 mín 38 sek. 

Svo byrjaði hlaupið, þá fyrst byrjaði ballið. Það var ógeðslega heitt, vægt til orða tekið, svo planið var að stoppa bara á hverri einustu drykkjarstöð og þar var derhúfan fyllt af klökum, fenginn nýr ískaldur svampur sem var settur inn á bringu og einnig var troðið klökum inn á bak og bringu. Drakk RedBull á hverri drykkjarstöð, sem og vatn og kók eftir þörfum.

Reyndi að halda samt stöðugt áfram að hlaupa, þó ég fór ekki hratt, því ég vissi að ef ég myndi byrja að ganga þá væri erfitt að byrja að hlaupa aftur.  Þegar ég var komin rúmlega helming með minn fyrsta hring þá kom Viðar Bragi fram úr mér en hann var að klára þriðja og síðasta hringinn sinn. Það var gaman að hitta hann, en Guð hvað ég öfundaði hann, og vildi að ég væri að klára.  En þetta var fjölbreytt og skemmtileg hlaupaleið en þvílíkur hiti og sólinn voru að steikja mig. Man ég bað til Guðs um að skýin færu nú fyrir sólina, en varð ekki að ósk minni allt hlaupið. Eftir að hafa klárað fyrsta hring, hitti ég Pétur og Sædísi, wow hvað það var gaman að ná að gefa þeim high-five og fá hvatninguna. Það kom mér áfram. Fór svo á salernið enn og aftur þegar ég kom að sundstaðnum, en þurfti svo ekkert að pissa þegar til kom, þurfti greinilega bara að taka inn meira salt, en ég var samt að reyna að vera dugleg að taka inn salt.  Kom samt bara niður einu geli í mig í þessu maraþoni, en tók inn banana, og sítrónur og appelsínur með klökunum á drykkjarstöðvunum og RedBull og ennþá meira RedBull var bara málið í þessum geðveika hita.

Það var góð tilfinning að leggja af stað í þriðja og síðasta hringinn í hlaupinu, en það hafði fækkað verulega áhorfendum við gangstéttirnar, og fólk minna að bera virðingu fyrir því að halda þeim auðum fyrir hlauparana 🙂  Síðasti snúningspunkturinn og ég hringdi bjöllunni og sá sem stóð vaktina, þar vissi áður en ég kom að ég væri á síðasta hring, veit ekki hvernig eða af hverju hann mundi eftir mér,  en maður fær ekki svona teygjur á hendurnar þarna eins og í Evrópu, en það eru auðvitað tímatökumottur um allt, svo það er ekkert hægt að stytta sér leið.  En já hann gaf mér high-five, ég hringdi bjöllunni og nú var lítið eftir.  Úrið sagði 200 metrar, en samt var ég ekkert farin að sjá í marklínuna. Endaði svo reyndar á að hlaupa 4 x…. km  Hitti Pétur og fékk hjá honum íslenska fánann minn. Og þá byrjaði endorfínið að kikka inn. Náði að hlaupa meðfram áhorfendum fyrst niðureftir með íslenska fánann og ég hélt ég væri að koma í mark, nei þá var þar snúningspunktur og hlaupið aftur uppeftir, wow hvað þetta var gaman, ég öskraði og leyfði íslenska fánanum að blakta.

Tók svo að sjálfsögðu Haddýjar stökkið þegar ég kom í mark og þulurinn kallaði „Halldora from Israel – You are an Ironman“ 😉 Var sko alveg saman þetta var svo yndisleg tilfinning að koma í mark. Hljóp maraþonið á 4 klst 43 mín og 38 sek. og samanlagður tími var 12 klst 15 mín og 14 sek.

Var í 25 sæti í aldursflokki (upp um 15 sæti frá sundi), 200 sæti af öllum konum (upp um 98 sæti frá sundinu) og 992 sæti overall (upp um 378 sæti overall frá sundinu) og er bara nokkuð ánægð með það.

ÞAKKIR

Keppni eins og Ironman er bara punkturinn yfir i-ið á löngu og skemmtilegu ferðalagi. Elsku Irina takk kærlega fyrir allar skemmtilegu og yndislegu æfingarnar okkar sem og ferðlagið allt saman, það var virkilega gaman að vera með þér. Elsku Sædís og Pétur, takk fyrir að taka svona vel á móti okkur og fyrir allan stuðninginn allan keppnisdaginn, þið eruð yndisleg og einstök, takk kærlega fyrir okkur vinkonurnar, þið eruð þvílíkir höfðingjar heim að sækja <3 <3 <3

MYNDBAND HÉR:

 

apríl 28, 2018 0 comment
0 FacebookTwitterPinterestEmail
KeppnisÞríþraut

KEPPNISSAGA Sprettþraut 3N 2016

by Halldóra ágúst 27, 2016

Tók þátt í dag í frábærri Sprettraut 3N í Reykjanesbæ.

Sprettþraut gengur út á að synda 400 metra hjóla 10 km og hlaupa 2,5 km.

Við syntum í innisundlauginni í Vatnaveröld, hjóluðum svo 4 * 2,5 km hringi og hlupum svo einna 2,5 km hring.

Keppnin var ræst í tveim hollum, þar sem um metþátttöku var að ræða.

SUND 00:08.27
Ég synti á braut númer 6 í síðara hollinu. Sundið gekk mjög vel, en við vorum 7 á brautinni.

T1 = 00:01:12
Ég ákvað að fara í peysu yfir þríþrautargallann og var því frekar lengi í T1 eða rúmlega 1 mínútu, sem er ekki góður tími 😉

HJÓL = 00:19:51 (30,23 km á klst)
Hjólið gekk mjög vel, mér leið vel allan tímann og tók fram úr tveim hjólurum á leiðinni.
T2 = 00:01:19
Var aftur allt of lengi á skiptisvæðinu, lenti í vandræðum að komast í skóna, þó ég væri með skóhorn, og fór úr jakkanum, verð að velja þægilegri og einfaldari skó næst, en skó með reimum 😉

HLAUP = 00:11:56 (pace 4,46)
Hlaupið gekk mjög vel, mér leið vel allan tímann og tók fram úr nokkrum á leiðinni. Var samt alltaf undir 180 í púls svo ég hefði örugglega getað hlaupið hraðar, næg orka allan tímann. Enda tók ég góðan endasprett í lokin.

SAMTALS = 00:42:58
Heildartími var 42 mínútur og 58 sek sem er bara ágætis tími held ég, sérstaklega í ljósi þess að ég á klárlega inni rúmlega 1 mínútu samtals í T1 og T2 því ekki hægt að kvarta. Varð í 40 sæti í heildina og í 9 sæti af öllum konum og 5 sæti af konum í aldursflokki 40-49 ára.

ÞRÍKÓ gekk mjög vel í dag og náðum við flestum stigunum þó við hefðum tapað með 14 stigamun fyrir 3SH í heildarstiga-keppninni. Ætlum okkur klárlega að ná þeim á næsta ári.

ágúst 27, 2016 0 comment
0 FacebookTwitterPinterestEmail
  • 1
  • 2

Nýlegar færslur

  • IRONMAN CASCAIS 2026 – KEPPNISSAGA ❤️🏊‍♀️🚴‍♀️🏃‍♀️
  • KEPPNISSAGA IRONMAN KAUPMANNAHÖFN 2026
  • Laugavegur Ultra 2026 11. júlí = Níunda Laugavegshlaupið mitt
  • Puglia by UTMB 100 km flokkur – 85 km utanvegahlaup
  • Reykjavíkurmaraþon og Menningarnótt 2025

Nýlegar athugasemdir

  • Björk Ólafsdóttir um Vasavikan 2024
  • Sif Helgad. um Langjökull þveraður 17.júní 2020
  • Helga Bryndís um New York City maraþon 2023
  • Ingvar Þóroddsson um Free to Run Ambassador í New York maraþoninu 2023

Færslusafn

  • október 2026
  • ágúst 2026
  • júlí 2026
  • nóvember 2025
  • ágúst 2025
  • júlí 2025
  • júní 2025
  • maí 2025
  • apríl 2025
  • júlí 2024
  • maí 2024
  • apríl 2024
  • mars 2024
  • nóvember 2023
  • október 2023
  • september 2023
  • ágúst 2023
  • júlí 2023
  • apríl 2023
  • janúar 2023
  • desember 2022
  • nóvember 2022
  • september 2022
  • ágúst 2022
  • júlí 2022
  • júní 2022
  • maí 2022
  • apríl 2022
  • mars 2022
  • febrúar 2022
  • janúar 2022
  • desember 2021
  • október 2021
  • september 2021
  • ágúst 2021
  • júlí 2021
  • maí 2021
  • apríl 2021
  • mars 2021
  • febrúar 2021
  • janúar 2021
  • nóvember 2020
  • október 2020
  • september 2020
  • ágúst 2020
  • júlí 2020
  • júní 2020
  • maí 2020
  • apríl 2020
  • mars 2020
  • janúar 2020
  • desember 2019
  • nóvember 2019
  • október 2019
  • september 2019
  • ágúst 2019
  • júlí 2019
  • júní 2019
  • maí 2019
  • apríl 2019
  • mars 2019
  • febrúar 2019
  • janúar 2019
  • desember 2018
  • nóvember 2018
  • október 2018
  • september 2018
  • ágúst 2018
  • júlí 2018
  • júní 2018
  • maí 2018
  • apríl 2018
  • janúar 2018
  • janúar 2017
  • september 2016
  • ágúst 2016
  • júlí 2016
  • júní 2016
  • mars 2016
  • nóvember 2015
  • ágúst 2015
  • júní 2015
  • febrúar 2015
  • nóvember 2014
  • ágúst 2014
  • október 2013
  • september 2013
  • ágúst 2013
  • júní 2013
  • maí 2013
  • apríl 2013

Flokkar

  • Daglegt líf
  • Fjallahlaup
  • Fjallaskíði
  • Fjallgöngur
  • Gönguskíði
  • Hjól
  • Hlaup
  • Ísklifur
  • Kajak
  • Keppnis
  • Keppnissaga
  • Sjósund
  • Skíði
  • Sund
  • Veiðar
  • Þríþraut

Um mig

Um mig

Halldóra Gyða

Halldóra hefur mjög gaman af því að fara út að leika. Markmiðið hjá henni er að njóta lífsins hvern einasta dag, brosa, hafa gaman og hún er þakklát fyrir góða heilsu.

Verum í sambandi

Facebook Twitter Instagram Pinterest Tumblr Youtube Bloglovin Snapchat

Nýlegar færslur

  • IRONMAN CASCAIS 2026 – KEPPNISSAGA ❤️🏊‍♀️🚴‍♀️🏃‍♀️

    október 22, 2026
  • KEPPNISSAGA IRONMAN KAUPMANNAHÖFN 2026

    ágúst 17, 2026
  • Laugavegur Ultra 2026 11. júlí = Níunda Laugavegshlaupið mitt

    júlí 15, 2026
  • Puglia by UTMB 100 km flokkur – 85 km utanvegahlaup

    nóvember 11, 2025
  • Reykjavíkurmaraþon og Menningarnótt 2025

    ágúst 23, 2025

Um mig

banner
Halldóra Gyða elskar að vera úti að leika. Hér er hún í Dólómítunum í Lavaredo fjallahlaupinu 2016.

Vinsæl innlegg

  • 1

    Eco Trail Reykjavík – 22 km

    júlí 6, 2018
  • 2

    Ironman Texas 2018

    apríl 28, 2018
  • 3

    Buthan – dagur 1 – hæðaraðlögun og skoðunarferð

    maí 26, 2018

Síðustu æfingar

  • Þjálfa NH 🧡með Önnu Siggu - skemmtileg leið og allt hvítt - fallegur morgunn🤩
    On nóvember 28, 2026 8:56 f.h. went 9,29 km during 01:30:08 hours climbing 210,00 meters burning 686 calories.
  • Night Yoga
    On nóvember 27, 2026 10:58 e.h. during 00:20:27 hours burning 29 calories.
  • Night Yoga
    On nóvember 26, 2026 9:16 e.h. during 00:45:52 hours burning 81 calories.
  • Þjálfa í Krikanum 💚🧡🙏🏆💪
    On nóvember 25, 2026 7:40 e.h. went 3,63 km during 00:29:51 hours climbing 6,00 meters burning 273 calories.
  • Þjálfa Blika sem létu ekki grenjandi rok og rigningu stoppa sig 💚💪🏆🤩
    On nóvember 25, 2026 5:32 e.h. went 7,20 km during 00:49:53 hours climbing 128,00 meters burning 646 calories.
  • Facebook
  • Twitter
  • Instagram
  • Linkedin
  • Snapchat
  • Vimeo

@2017 - PenciDesign. All Right Reserved. Designed and Developed by PenciDesign


Back To Top