BIRKEBEINERRENNET 54 km

by Halldóra

Skíðagangan er ræst í litlum bæ sem heitir Rena (2.300 íbúar). Við tókum rútuna frá Lillehammer klukkan 06:30 en ferðin tók um 2 klst og 30 mín.  Fórum strax í klósettröðina, fundum reyndar klósett með styttri röð við bílaplanið.  Höfðum svo bara rétt tíma til að setja vatn í brúsa, fara með úlpuna í “drop-bag eða „endapokann” og svo aftur á klósettið, en lítil sem engin röð þar.  Gerði ekkert við gönguskíðin, þ.e. „bar“ ekkert á fattið, og spurði heldur ekki ráða. Fór bara á rásstað rétt fyrir ræsingu, en ég var í P17 rásholli sem var ræst klukkan 09:55.  Aðalmunurinn á þessari göngu og Vasagöngunni, er að það er ekki eins troðið í ræsingunni, þar sem ræst er í ráshópum, sem var frábært.   Annar munur er sá að allir þátttakendur þurfa að bera bakpoka, sem er amk 3,5 km að þyngd. Bakpokinn og gönguskíðaleiðin er farin í minningu þess að flúið var með norskan prins (hvítvoðung) á bakinu yfir þessar heiðar og fjöll. Þessi norski prins varð síðar konungur og fyrirskipaði dráp Snorra Sturlusonar.

Strax eftir ræsinguna beið okkar um 15 km ganga öll upp á móti. Svo það var eins gott að vera með gott „fatt“, undir skíðunum, þ.e. miðjunni, svo maður nái góðri spirnu og renni ekki til baka. Mér fannst „fattið“ ágætt, en rennslið (að framan og aftan) ekki eins gott, þar sem það festist svolítið snjórinn undir miðjunni, sem minnkar þá rennslið.  Sara sagði mér þegar ég fór fram úr henni að hún hefði sett meiri áburð, undir skíðin, svo ég ákvað að stoppa á næstu Swix þjónustu, var reyndar búin að fara fram hjá einni slíkri. Rétt áður en ég kom að fyrstu drykkjarstöð þá var Swix þjónusta þar sem ég stoppaði (eftir 1 klst og 5 mín)  og þjónustumaðurinn sagði mér að ég væri með of heitan áburð undir, þ.e. við enduðum að setja tvær umferðir af bleikum í gærkvöldi, sem var greinilega of mikið. Hann setti því bláan, eða bláan extra undir og ástandið var mun betra, þar sem ég fékk aftur smá rennsli á skíðin.

SKRAMSTADSETRA 9 km (1 klst 7 mín 39 sek #135)
Fyrsta drykkjarstöðin var í Skramstadsetra. Þar fékk ég mér Maxim orkudrykk en reyndi svo bara að stoppa stutt og halda áfram, þar sem ég hefði stoppað í dágóðan tíma á Swix stöðinni. Svo var áfram ganga upp, upp, upp, það má segja að það sé enn einn munurinn á Vasaloppet og Birkebeinerennet, þ.e. þessi mikla brekka strax í byrjun. Vasaloppet er frekar flöt og með meiri lækkun en hækkun, sem er öfugt í Birkebeiner, þar er meiri hækkun, en lækkun í heildina.  Svo áfram hélt ég upp, upp og það gekk alveg ágætlega. Fann að ég var samt ekki með sömu orkuna og ég var með í Vasaloppet fyrir tveim vikum. Gerði nefnilega smá mistök, tók 3 æfingar, daginn eftir að ég kom heim úr Vasa, þ.e. styrktaræfingu í Laugum um morguninn, eina hraða og kröftuga Esju með vinkonum mínum seinnipartinn og beint þaðan á gönguskíði í Bláfjöllum og fékk enga smá sýru í lærin eftir Esjuna 😊   Fann að þreytan sat ennþá í mér, svo ég tók þetta bara rólega, þ.e. púlsinn var bara lár og ég ákvað bara að njóta, enda var ég með JUKEBOX þ.e. Anker hátalarann minn í bakpokanum og með tónlistina, þ.e. hjólaplaylistann minn á Spotify frekar hátt stillt, sem var mjög gaman, vakti mikla athygli. Þegar Siggi og Guðmundur Smári sem ræstu á eftir mér tóku svo fram úr mér, gengu bara á tónlistina, þ.e. vissu að ég var með LIVE tónlist og náðu því að kasta á mig kveðju. 😊

Ástæðan fyrir því að skrifa keppnissögur er sú að ég vil gjarnan læra af mistökunum sem ég geri og leyfa öðrum að njóta, þ.e. sem eiga kannski eftir að fara í þessa keppni. Ég til dæmis fór allt of mikið klædd af stað í þessa göngu, var í DeVold Active ullarfötunum mínum, og í Swix skíðagöngubuxunum og hlýrri jakkanum mínum, með buff, húfu og vettlinga (reyndar þynnri vettlingana mína).  Hefði átt að fara bara í Polyester fötunum undir og í þynnri jakkanum, það var það mikil sól og heitt allan tímann.  En auðvitað hugsar maður bara í lausnum og fór því úr jakkanum og tók vettlingana af og setti í bakpokann. En meira um fatnað, orkuinntöku og lærdóm síðar í þessari sögu.

DAMBUA 17 km
Ég skíðaði með strákunum (Guðmundi Smára og Sigga) inn á stöðina í Dambua þegar 17 km voru búnir. Þá hafði Siggi verið búin að stoppa og reyndi að setja áburð undir sjálfur, en hann var í sömu vandræðum og ég með rennslið, þar sem snjórinn festist alltaf undir.  Ég stoppaði þar (eftir um 1 klst 54 mín) og lét Sigga hafa bláa áburðinn minn, því hann hafði bara tekið bleikan og fjólubláan með sér, enda átti að vera hlýrra en það í raun var, kannski að því að snjórinn var svo nýr, veit það ekki.  Þá tók ég líka aftur upp vettlingana, því þó það hefði verið gott á uppleiðinni að fara úr jakkanum og vettlingunum, þá var það of kalt þ.e. hendurnar þegar maður fór niður brekkur.

Við Guðmundur Smári fórum svo áfram á undan Sigga, þar sem við vorum búin að bíða í smá tíma, og hann var ennþá að preppa skíðin. Vissum líka að hann myndi ná okkur.  Við héldum áfram upp brekkurnar, áður en við tóku brekkur niður.  Var nú ekki mjög lengi með Guðmundi þar sem hann fór bæði hraðar en ég upp og ennþá hraðar niður, þar sem ég er mjög varkár. Lenti reyndar í því í tveim bröttum brekkum niður að þar voru keppendur sem „stóðu“ í sporinu á leið niður, þ.e. runnu ekki mjög hratt (fóru ekki í brunstöðu), svo ég þurfti að hægja verulega á mér þar sem ég treysti mér ekki alveg til að skipta um spor á leiðinni niður, þegar hraðinn var orðinn aðeins meiri, “better safe then sorry” hugsaði ég og GLEÐI alla leið.

KVARSTAD 27 km (3 klst 4 mín og 16 sek – #127 /123
Í Kvarstad eins og alls staðar á drykkjarstöðunum var boðið uppá Maxim orkudrykk og vatn en auk þess var boðið uppá Coca Cola, banana, eitthvað brauð og Gilde Birkebeiner skinku. Mjög stór og flott drykkjarstöð, ég fékk mér banana og fyllti á brúsann minn af heitum Maxim orkudrykk sem var mjög góður.

Rétt eftir Kvarstad hitti ég Sigga, sem hafði farið í Swix þjónustu og fengið aðstoð við að bera undir miðjuna. Spurði hann hvað þeir báru undir, en hann vissi ekkert um það, nema hann sagði að það hefði verið hvítur áburður úr bauk 😊  Fékk Sigga til að skafa aðeins undan skíðunum mínum, þurfti þá ekki að fara úr þeim, en það var mjög lítið rennsli hjá mér út af þessu, endalaus snjór sem festist undir, svo Siggi stakk mig bara af og ég ákvað að stoppa á næstu Swix stöð, þar sem ég var ekki viss hvaða bauk ég ætti að setja undir, en ég var með 5 mismunandi bauka á mér (fyrir mismunandi hitastig).

MIDFJELLET 33 km
Eftir Midfjellet fór ég í Swix þjónustuna (4 klst 6 mín)  þar sem ég fékk aftur áburð undir miðjuna, bláan, held bláan extra, en ég fór auðvitað bara á Facebook life til að sýna hversu flott þjónusta þetta væri 😊  Eftir að hafa fengið nýjan áburð var rennslið allt annað og fattið líka, svo mér gekk mjög vel næstu kílómetrana.

SJUSJØEN 41 km (4 klst 36 mín og 12 sek (#130,136)
Stoppaði bara stutt í Sjusjøen, fékk mér samt að drekka og banana, þar sem ég var aðeins farin að finna fyrir smá krampa einkennum í hægri fæti, þar sem tærnar eru ennþá “dofnar” eftir brjósklosið og því fæ ég oft krampaeinkenni í hægra fæti upp eftir kálfa. Það hefur reynst mér vel að fá mér banana til að minnka krampaeinkenni og það gerði það líka þarna, magnesíumið virkar.

Var búin að heyra að síðustu 15 kílómetrarnir væru „easy“ eða bara brekka niður, raunin var svo ekki alveg þannig. Það var mikið meira af flötum köflum og nokkrum stuttum brekkum upp, en ekki bara niður. Hins vegar var það alveg rétt sem ég hafði heyrt um “hræðilegu” brekkurnar, þær voru til staðar og þar var færið orðið mjög þungt, þ.e. grafið og erfitt að skíða. Ég fór mjög varlega þar, sá að margir fóru allt of hratt og áttu í erfiðleikum með að stoppa, þurftu að skíða út af og stoppa þannig í skafli.  Í erfiðustu brekkunni var svo mikið af fólki í vandræðum að ég ákvað bara að stoppa útí kanti og bíða. Þegar ég stóð þar, kom ein kona á fleygiferð og skíðaði mig niður og sagði svo bara “undskyld”. Viðurkenni að ég var nú frekar pirruð, þar sem þetta var vont og ég hafði verið varkár, svo ég sagði henni að hún ætti nú að fara varlega 😊

Að öðru leyti gekk ferðin niður þessar erfiðu brekkur vel, ég fór varlega og datt ekki (fyrir utan þegar ég var keyrð niður) og ég tók EKKI af mér skíðin og labbaði niður (eins og ég hélt ég þyrfti kannski að gera) heldur skíðaði niður allar brekkurnar 😊  

FINISH 54 km 5 klst 37 mín og 35 sek.  #130 sæti í aldursflokki
Öll gönguleiðin er ofboðslega falleg og það var yndislegt að heyra að maður væri að nálgast markið og gaman að koma í mark í Lillehammer á þessum sögufræga stað þar sem að Ólympíuleikarnir voru haldnir í febrúar 1994.

Þegar ég kom í mark eftir 5 klst og 37 mín var ég beðin um að fara í viðtal og var spurð margra spurninga. Ég að sjálfsögðu sótti íslenska fánann sem ég var með í bakpokanum og fékk myndir af mér með fánann og með spyrlinum sem hafði komið nokkrum sinnum til Íslands. Hún spurði t.d. hvernig væri að æfa á Íslandi, þar sem væri mjög takmarkaður snjór og gönguskíðasvæði, en hún hafði komið nokkrum sinnum til Íslands.

Ég er mjög glöð og ánægð þegar ég kom í mark þar sem ég hafði náð öllum mínum markmiðum. Númer eitt að komast að ráslínu, númer tvö að klára, númer þrjú að hafa gaman alla leið og þar sem ég hef aldrei tekið þátt í þessari keppni áður, þá skipti tíminn engu máli, þarf bara að bæta hann næst þegar ég tek þátt 🙂 En held þetta sé ágætur tími m.v. meðaltalið í mínum aldursflokki sem var 5 klst 13 mín 42 sek.

ORKUINNTAKA Á LEIÐINNI:
Ég tók eitt GU gel áður en ég lagði af stað. Tók svo 3 gel á leiðinni, sem er jafnmikið og ég tók í Vasaloppet fyrir tveim vikum. Var með 0,5 líter af vatni með Zero töflu á mér og bætti svo tvisvar á leiðinni í brúsann af Maxim orkudrykknum. Fékk mér samt alltaf að drekka Maxim sport drykk á leiðinni og vatn og eitt skipti fékk ég mér coca cola glas. Fékk mér líka banana nokkrum sinnum og 4 bita af GU gúmmíi, sem er eins og eitt gel í viðbót og eina Red Bull 33 cl. flösku.  Það var mikil orka sem fór í gönguna upp í byrjun og ég held ég hafi látið of langt líða áður en ég tók inn gel þar eða um 1 klst og 30 mín. Maður þarf að passa orkuinntökuna.

FATNAÐUR:
Eins og alltaf er keppnisfatnaðurinn stóra spurningarmerkið fyrir keppni. Ég velti fyrir mér hvort ég ætti að fara í “flotta HH gallanum” sem við fengum lánaðan fyrir keppnina, eða hvort ég ætti að fara í þykkri eða þynnri gönguskíðajakkanum (lúxusvandamál að eiga tvo jakka). Velti einnig fyrir mér hvort ég ætti að fara í Ullarfötunum undir skíðafötunum, eða í Polyester fötum, svipuð umræða var fyrir Vasaloppet skíðagönguna. Úr varð að ég fór í compress sport legghlífunum, uppáhaldshlaupasokkunum mínum, ullarundirfötum og ullartoppi og svo þykkari jakkanum. Var svo með þunna BIRKEN SWIX húfu og þynnri vettlingana mína.

Þetta var ekki alveg rétt val, þar sem það var mjög hlýtt og maður svitnaði mikið upp fyrstu brekkurnar. Fór því úr jakkanum og úr vettlingunum, en var samt að kafna úr hita. Þurfti svo reyndar að setja aftur upp vettlingana, þar sem mér varð of kalt að vera vettlingalaus, þegar ég fór niður brekkurnar og var komin uppá sléttuna á heiðinni.

Hefði frekar viljað vera í polyester undirfötunum, alla vega buxunum og þynnri jakkanum. Það var sól um daginn og sól í kortunum, svo ég hefði átt að vita betur. Svo lengi lærir sem lifir 😊

BAKPOKI:
Það voru allir skyldaðir til að vera með 3,5 kg í bakpokanum sem átti að vera vigt prinsins sem var borinn þessa leið á sínum tíma.  Einnig áttum við að vera með auka jakka, buxur, undirföt (buxur og peysu) auka húfu, buff og vettlinga. Ég var með þetta allt saman sem og 6 gel, 4 GU gúmmípakka, 0,5 l af vatni, eina RedBull flösku og Egils appelsín dós (var drukkin þegar ég kom í mark).  Var líka með Anker JUKEBOX Bluetooth hátalara og spilaði tónlist af símanum mínum meirihlutann af leiðinni, sem var mjög gaman og vakti skemmtilega athygli. 

Þegar ég var búin að setja jakkann minn líka í bakpokann (Salomon hlaupavestið mitt) var hann pottþétt kominn yfir 4 kg, svo ég var í góðum málum, ef ég hefði verið stoppið og hann vigtaður. En refsingin var 15 mín tímavíti ef menn væru ekki með rétta þyngd í bakpokanum.

HVAÐ ÉG MYNDI GERA ÖÐRUVÍSI NÆST?
Ég myndi klárlega fara í SWIX þjónustu og láta preppa skíðin mín, þ.e. ekki gera það sjálf. Eða ef ég myndi gera það sjálf, fara þá í SWIX þjónustubásinn um morguninn og fá leiðbeiningar og aðstoð við að setja niður síðasta lagið á miðjuna, en Óli hafði borið á rennslið áður en ég fór að heiman.  

Myndi pottþétt klæða mig í kaldari/þynnri fatnað og taka orkugel fyrr, þ.e. ekki láta líða of langt á milli gela.

Myndi halda áfram að leggja áherslu á að hafa gaman eins og ég gerði og njóta hverrar mínútu, þakklát fyrir að geta tekið þátt og klárað.

ÞAKKIR:
Kæru ferðafélagar takk fyrir yndislegar samverustundir í Lillehammer um helgina. Það er ómetanlegt að eiga svona yndislega og skemmtilega vini.  Það er ótrúlegt hvað ein helgi (út á föstudegi og heim á sunnudegi) getur orðið skemmtileg og löng, leið eins og ég hefði náð fimm daga endurnærðu fríi, enda félagsskapurinn einstaklega skemmtilegur og góður. Takk elsku Óli fyrir allan stuðninginn og preppið.

Er þakklát að tilheyra frábærum félagsskap Ísbirna sem margir fóru bæði í Vasaloppet og í Birkebeiner á þessu ári. Takk fyrir allar skemmtilegu ferðirnar okkar hvort sem er á gönguskíði, fjallaskíði eða fjallahjól. Hlakka til allra ævintýranna sem eru framundan 😊

You may also like

Leave a Comment