Halldóra Gyða Matthíasdóttir Proppé
  • Heim
  • Daglegt líf
    • Daglegt líf

      Grænland D6 þriðjudagur 29. apríl 2025

      apríl 29, 2025

      Daglegt líf

      Grænland D5 mánudagur 28. apríl 2025

      apríl 28, 2025

      Daglegt líf

      Grænland D4 sunnudagur 27. apríl 2025

      apríl 27, 2025

      Daglegt líf

      Grænland D3 laugardagur 26. apríl 2025

      apríl 26, 2025

      Daglegt líf

      Grænland D2 föstudagur 25. apríl 2025

      apríl 25, 2025

  • Fjallahlaup
    • Fjallahlaup

      ITRA HLAUP FRÁ 2011-2024

      júlí 31, 2024

      Fjallahlaup

      TMR D8 Ferðadagur

      ágúst 4, 2023

      Fjallahlaup

      TMR D7

      ágúst 3, 2023

      Fjallahlaup

      TMR D6

      ágúst 2, 2023

      Fjallahlaup

      TMR D5

      ágúst 1, 2023

  • Keppnissaga
    • Keppnissaga

      Íþróttaferilskrá eftir árum frá 2011

      júlí 31, 2024

      Keppnissaga

      Vasavikan 2024

      mars 6, 2024

      Keppnissaga

      New York City maraþon 2023

      nóvember 5, 2023

      Keppnissaga

      Ironman Italy 2023 16.09.2023

      október 16, 2023

      Keppnissaga

      Berlínarmaraþon 2022

      september 26, 2022

  • Þríþraut
    • Þríþraut

      Ironman Italy 2023 16.09.2023

      október 16, 2023

      Þríþraut

      Kópavogsþrautin 2021 (keppnissaga)

      maí 9, 2021

      Þríþraut

      Bláfjallaþríþraut Relive

      maí 10, 2020

      Þríþraut

      Bláfjallaþríþraut 2020

      maí 10, 2020

      Þríþraut

      50 ÁRA AFMÆLISÁRIÐ 2019

      desember 31, 2019

Halldóra Gyða Matthíasdóttir Proppé
  • Heim
  • Daglegt líf
    • Daglegt líf

      Grænland D6 þriðjudagur 29. apríl 2025

      apríl 29, 2025

      Daglegt líf

      Grænland D5 mánudagur 28. apríl 2025

      apríl 28, 2025

      Daglegt líf

      Grænland D4 sunnudagur 27. apríl 2025

      apríl 27, 2025

      Daglegt líf

      Grænland D3 laugardagur 26. apríl 2025

      apríl 26, 2025

      Daglegt líf

      Grænland D2 föstudagur 25. apríl 2025

      apríl 25, 2025

  • Fjallahlaup
    • Fjallahlaup

      ITRA HLAUP FRÁ 2011-2024

      júlí 31, 2024

      Fjallahlaup

      TMR D8 Ferðadagur

      ágúst 4, 2023

      Fjallahlaup

      TMR D7

      ágúst 3, 2023

      Fjallahlaup

      TMR D6

      ágúst 2, 2023

      Fjallahlaup

      TMR D5

      ágúst 1, 2023

  • Keppnissaga
    • Keppnissaga

      Íþróttaferilskrá eftir árum frá 2011

      júlí 31, 2024

      Keppnissaga

      Vasavikan 2024

      mars 6, 2024

      Keppnissaga

      New York City maraþon 2023

      nóvember 5, 2023

      Keppnissaga

      Ironman Italy 2023 16.09.2023

      október 16, 2023

      Keppnissaga

      Berlínarmaraþon 2022

      september 26, 2022

  • Þríþraut
    • Þríþraut

      Ironman Italy 2023 16.09.2023

      október 16, 2023

      Þríþraut

      Kópavogsþrautin 2021 (keppnissaga)

      maí 9, 2021

      Þríþraut

      Bláfjallaþríþraut Relive

      maí 10, 2020

      Þríþraut

      Bláfjallaþríþraut 2020

      maí 10, 2020

      Þríþraut

      50 ÁRA AFMÆLISÁRIÐ 2019

      desember 31, 2019

Category:

Fjallahlaup

Daglegt lífFjallahlaup

Dagur 1= Ísland – Genf – Chamonix

by Halldóra ágúst 10, 2019

Við flugum frá Íslandi til Genf á laugardagsmorgni. Við vorum 22 í hópnum, en tveir úr hópnum höfðu farið fyrr. Fórum svo með Alpybus frá flugvellinum í Genf til Chamonix en sú ferð tekur um 80 mínútur.

Beta tók á móti okkur í Chamonix með Náttúruhlaupafánanum. Eftir að hafa hent farangrinum uppá hótelherbergi kíktum við í bæinn. Það var frekar skýjað svo það viðraði ekki vel til að taka kláfinn upp í Aiguille du Midi. Kíktum því bara í búðir og skoðuðum bæinn.

Borðuðum svo saman á Pizza stað nálægt hótelinu um kvöldið. Það er 2 klst tímamunur, svo við fórum bara snemma á hótelið, til að undirbúa fyrsta hlaupadaginn og fara yfir hlaupaleiðir næstu daga.

ágúst 10, 2019 0 comment
0 FacebookTwitterPinterestEmail
Daglegt lífFjallahlaup

Fimmvörðuháls júlí 2019

by Halldóra júlí 25, 2019

Við skelltum okkur á fimmvörðuháls í dag. Við Hildur notuðum „styttinguna“ og hættum 13:30 og fórum út úr bænum með Ingu, Guðmundi Smára og Kristínu. Beta, Siggi og Hilmar höfðu farið úr bænum um morguninn, en þau ætluðu að hlaupa Fimmvörðuhálsinn fram og til baka, þ.e. frá Þórsmörk yfir í Skóga. Beta og Siggi ætluðu svo til baka með okkur, en Hilmar á bílnum með Guðmundi Smára á bílnum inní Þórsmörk.

Við lögðum af stað frá Skógum klukkan 16:08 (skv.Garmin), þá var Beta komin inní Skóga, en Siggi og Hilmar á leiðinni niður eftir. Við ákváðum ekki að bíða eftir þeim, heldur leggja af stað, vissum að þau myndu ná okkur.

Ferðin upp gekk ótrúlega vel, auðvitað mikið af ferðamönnum í tröppunum að skoða fossana. Veðrið var frábært, sól og hlýtt og ég bara á hlýrabolnum. Var samt bæði með hnéhlífar og bakbelti þar sem ég var slæm í bakinu. Dóri sjúkraþjálfari í fæðingarorlofi 🙂

Beta og Siggi náðu okkur svo áður en við vorum komin að Baldvinsskála, en Hildur hafði farið á undan okkur og við hittum hana þar. Ég var fegin að það var mjög snyrtilegur kamar þar. Hafði gert þau mistök að fá mér Chia graut á N1 á Hvolsvelli, sem mér leist svo vel á 🙂

Ferðin áfram gekk vel, það var ótrúlega lítill snjór uppá jöklunum (Eyjafjallajökull og Mýrdalsjökull) við Magna og Móða, og snjórinn bara þægilegur yfirferðar. Kom sjálfri mér á óvart hversu óhrædd ég var yfir heljarkamb og Kattarhryggirnir voru bara þægilegir og fallegir.

Við vorum komin inní Þórsmörk ca 19:45 en við vorum 3 klst og 36 mín á leiðinni, heildartími, en tími á ferð var 3 klst og 22 mín. Fór smá tími í að stoppa og taka myndir og njóta 🙂

Yndisleg ferð með frábæru fólki, takk Guðmundur Smári fyrir að skutla okkur að Skógum og sækja okkur í Þórsmörk, en hann hljóp á móti okkur upp að Magna og Móða.

IMG_5210
IMG_5225
IMG_5197
IMG_5211
IMG_5215
IMG_5217
IMG_5218
IMG_5219
IMG_5221
IMG_5222
IMG_5201
IMG_5208
IMG_5197
IMG_5194
IMG_5222
IMG_5175
IMG_5197
IMG_5203
júlí 25, 2019 0 comment
0 FacebookTwitterPinterestEmail
Daglegt lífFjallahlaupFjallgöngur

Laugavegshlaupið 2019

by Halldóra júlí 14, 2019

Laugavegshlaupið er 55 km utanvegahlaup en Laugavegurinn tengir saman Landmannalaugar og Þórsmörk á sunnanverðu hálendi Íslands, tvær sannkallaðar náttúruperlur. Göngugarpar eru venjulega 4 daga á leið sinni um Laugaveginn en hröðustu hlaupararnir fara leiðina á 4-5 klukkustundum.

Laugavegurinn kallast gönguleiðin milli Landmannalauga og Þórsmerkur. Er hún um 54 km löng og fer hæst í um 1050 m.y.s. við Hrafntinnusker. Leiðin er afar vinsæl meðal innlendra sem erlendra göngumanna enda þykir hún ægifögur og bjóða upp á brot af flestu því sem íslensk náttúra hefur upp á að bjóða.

Áfangar á gönguleiðinni eru látnir ráðast af skálum sem á henni er. Ef gengið er frá Landmannalaugum eins og algengast er verður fyrst á vegi manna skálinn í Hrafntinnuskeri, svo Álftavatni, Hvanngili og Emstrum (Botnum), en allir skálarnir eru í eigu Ferðafélags Íslands. Endar gönguleiðin í Þórsmörk þar sem gengið er í Húsadal, Langadal eða Bása (í Goðalandi). Algengast er að skipta leiðinni upp í 3-4 dagleiðir þó svo það sé stundað að hlaupa leiðina á allt frá fimm klukkustundum.

Gönguleiðin milli Landamannalauga og Hrafntinnuskers eru 12 km. Áætlaður göngutími er 4-5 klukkustundir. Hækkunin er mest á þessum kafla leiðarinnar eða 470 metrar. Oftast er þetta fyrsta dagleiðin en sumir leggja snemma af stað og ganga alla leið inn að Álftavatni. Vegalengdin milli Hrafntinnuskers og Álftavatns eru einnig 12 km og er lóðrétt hækkun 490 metrar. Þessi hækkun er jafnari en á fyrsta degi. Áætlaður göngutími er 4-5 klst. Þriðja göguleiðin er inn í Emstrur. Þangað er 15 km ganga og lítil hækkun, 40 m. Göngutíminn er 6-7 klukkustundir. Síðasti dagurinn fer svo í að ganga inn í Þórsmörk og er vegalengdin og áætlaður göngutími sá sami og á þriðja degi. Hækkunin er þó meiri eða 300m.

Fyrsta ferðin sem skráð var á vegum Ferðafélags Íslands á Laugaveginum var 30. september 1978. Árið 1979 var í fyrsta sinn sem Ferðafélag Íslands auglýsti fjögurra daga ferð um Laugaveginn og Þórsmörk og var sú ferð farin 13.-18. júlí 1979. Eftir það hefur fjöldinn allur af fólki og ferðamönnum farið Laugaveginn á vegum Ferðafélags Íslands.

Hér að neðan er að finna myndir af þessari gullfallegu leið sem var tekin í hlaupinu 13. júlí 2019.

IMG_1027
IMG_1028
IMG_1029
IMG_1030
IMG_1032
IMG_1033
IMG_1034
IMG_1036
IMG_1037
IMG_1039
IMG_1040
IMG_1041
IMG_1044
IMG_1047
IMG_1051
IMG_1057
IMG_1072
IMG_1073
júlí 14, 2019 0 comment
0 FacebookTwitterPinterestEmail
Daglegt lífFjallahlaupKeppnissaga

Laugavegshlaup 2019 – keppnissaga

by Halldóra júlí 13, 2019

Ég var glöð þegar ég vaknaði í skálanum í Landmannalaugum í morgun, því ég hafði sofið ágætlega og var fegin að hafa ekki sofið í tjaldi og eiga eftir að pakka því.

Fékk mér góðan morgunmat og fór á salernið í rólegheitum áður en rúturnar komu. Var búin að græja allan keppnisfatnað og dót í hlaupavestið, svo ég var tilbúin frekar tímalega.

Skilaði töskunni sem átti að fara inní Þórsmörk í rúturnar þegar þær komu. Svo var kominn tími á myndatöku hjá Náttúruhlaupahópnum sem var búin að æfa saman undir leiðsögn Elísabetar Margeirsdóttur síðan í vor.

Ég var að fara Laugavegshlaupið í fjórða skiptið, en var í fyrsta skipti í gulum ráshóp, þ.e. fremsti ráshópurinn. Ákvað því að koma mér fyrir aftast í þeim hópi, en það eru um 138 hlauparar í hverjum hóp, gulur, rauður, grænn og blár og þeir eru ræstir með 5 mínútna millibili, þ.e. klukkan 9.00, 9:05, 9:10 og 9:15.

Eftir ræsingu og nokkra metra hlaup, þá þarf að hlaupa yfir brú svo það myndast mikill flöskuháls þar, ég þurfti að bíða nákvæmlega í 2 mín og 51 sek til að komast yfir, þar sem ég var aftast í gulu, svo það var ekki langt í fremstu rauðu þegar ég komst loksins yfir brúna.

Ég lagði af stað með Róberti Marshall og Betu sem hafði líka komið sér fyrri aftarlega þar sem hún var búin að hlaupa Laugaveginn, þ.e. öfugan, frá Þórsmörk uppí Landmannalaugar, hún er ótrúleg hún Beta vinkona mín, en hún lagði af stað klukkan 01:00 um nóttina. Róbert var að taka upp myndband á GOPRO fyrir þáttinn sinn Úti, og þau Beta voru bara að spjalla þarna í byrjun.

Landmannalaugar – Hrafntinnusker
9,95 km = 1:19:56 moving time (1:22:47) mismunur á tíma er örtröðin í byrjun.
(Average moving pace 8:19)
Við Róbert spjölluðum saman á leiðinni upp fyrsta legginn. Ég sagði honum að ég væri partur, eða ein af Marglyttunum, en Brynhildur konan hans er ein af Marglyttunum og Róbert ætlar að fara með okkur yfir Ermarsundið.

Þar sem ég gekk fyrstu 4 km af leiðinni í gær þá var ég búin að taka mikið af fallegum myndum, annars hefði ég ekki staðist freistinguna að stoppa og taka myndir, því það er svo ofboðslega fallegt þarna. Reyndar var Siggi næstum því búin að fá mig til að skilja símann eftir, en við Óli ákváðum að ég myndi vera með hann sem öryggistæki. Mér fannst ferðin upp ganga mjög vel, ég fór alls ekki of hratt, labbaði allar brekkur og skokkaði svo bara létt niður og á jafnsléttu.

Tíminn þegar ég kom í Hrafntinnusker var 1:22:47, en moving time, eða tími á hreyfingu var 1:19:56, svo mismunurinn 00:02:51 var bara tíminn sem tók mig að komast í gegnum þrengingarnar í byrjun.
Ég var búin að taka á leiðinni eitt GU gel og einn GU gúmmíkubb, en ég hafði stillt Garmin Fenix úrið mitt þannig að það minnti mig á að borða (EAT) á 30 mín fresti. Ég var bara með einn drykkjarbrúsa á mér og var ekki hálfnuð með hann þegar ég kom í Hrafntinnusker, svo ég þurfti ekki að stoppa til að fylla á hann, svo ég hélt bara áfram.

Hrafntinnusker – Álftavatn = 11.11 km 1:23:06 (1:22:10) uppsafnað = 2:45:53
LAP TÍMI ÚT 2:46:54 (stoppaði í 1 mín1 sek). (Average moving pace 7:29)
Eftir Hrafntinnusker tekur við snjókaflinn, sem var mun styttri í ár, vegna hlýinda. Veðrið var gott og það var yndislegt að hlaupa niður eftir og yfir snjóskaflana. Ég hljóp með Black Diamond stafina mína sem ég hef alltaf hlaupið með í Laugavegshlaupinu og ég elska þá og myndi ekki vilja hlaupa án þeirra. Þeir halda mér stöðugri í snjóskaflanum og það er mikill stuðningur að vera með stafi upp brekkurnar. Útsýnið í áttinni að og yfir Álftavatn er algjörlega magnað, algjör póstkortamynd.

Róbert náði mér stuttu eftir að ég var lögð af stað frá Hrafntinnuskeri, þar sem hann hafði stoppað við skálann í Hrafntinnuskeri, sem ég gekk bara fram hjá. Við héldum áfram spjallinu og nutum góða veðursins og fallega útsýnisins. Þegar ég var að klífa eina brekkuna, heyri ég kallað Halldóra, Halldóra og vissi ekkert hvaðan á mig stóð veðrið, átti ekki von á neinum þarna. Þá var það yndislega Milla vinkona mín úr Ísbjörnunum sem var að leiðsegja útlendingum og allur hópurinn var farinn að kalla nafnið mitt. Ég fékk að sjálfsögðu stórt orkuknús frá henni, sem var magnað.

Það var líka gaman að koma að Álftavatni og sjá að ég var að bæta mig um ca 9 mín frá því í fyrra. Man að klukkan var 3:00:00 þegar ég kom í fyrra, en þá ræsti ég með rauðum, svo tíminn þá var 2:55:00 ca. Ég stoppaði í um 1 mín, þeir rifu miðann af númerinu mínu, ég fyllti orkudrykk á brúsann minn, fékk mér 3 bananabita og hélt áfram.

Var búin að taka inn GU gel og GU gúmmi reglulega, gelið á 60 mín fresti og gúmmí á 30 mín fresti.

Álftavatn – Emstur = 15,90 km 1:59:54 (1:58:41)
Samanlagt 4:46:48 – 4:47:16 út ..(Average Moving Pace 7:28)

Eftir Álftavatn, koma tvær litlar ár, sem þarf að vaða. Ég notaði tækifærið eftir að hafa vaðið þær, að njóta bananna sem voru mjög kærkomnir.

Það er margar ástæður fyrir því að ég elska Utanvegahlaup, eins og fallegt útsýni, maður sér hluti sem maður myndi ekki sjá annars, það er gott undirlag og eitt það skemmtilegast er að maður eignast góða vini á leiðinni. Ég var búin að hlaupa mikið með Róbert og svo var þarna ungt par að hlaupa á svipuðum stað og ég. Þau tóku reglulega fram úr mér og ég svo fram úr þeim á drykkjarstöðvunum. Það var líka skemmtilegt að hlaupa fram hjá Hvanngili, þar hitti ég marga sem ég kannaðist við og fékk “high-five”. Í fyrrasumar þegar við Gunnur vinkona hlupum Laugaveginn á tveim dögum með Náttúruhlaupurum þá gistum við í Hvanngili. Stoppaði ekki núna til að fara á klósettið í Hvanngili eins og í Laugavegshlaupinu í fyrra, heldur hélt ég bara áfram. Ákvað samt að sækja litla Ipodinn minn, því ég sá það stefndi allt í að ég yrði ein á ferð yfir sandana, þar sem Róbert var farin aðeins á undan mér.

Næst var að vaða Bláfjallakvísl og það gekk mjög vel. Varð að sjálfsögðu að taka upp gsm símann minn og taka SNAP af ljósmyndara Fjarðarpóstsins sem var að taka myndir af mér (sjá myndir í albúmi hér að neðan).

Eftir Bláfjallakvísl er hægt að komast í “drop-bag” töskuna. Ég þurfti ekki á neinu að halda á þessum tímapunkti í töskunni, en þar var ég með auka skó, sokka, samloku, epli, Appelsín, Redbull og auka fatnað. En ég var í góðum gír og hélt því bara áfram.

Hljóp ein yfir sandana og hlustaði á tónlist, því ég var eiginleg alein að berjast á móti vindinum, hefði verið skemmtilegra að hafa félagsskap, en stundum þróast hlutirnir bara svona. Stoppaði og bætti á brúsann á drykkjastöð sem er hinum megin við sandana. Hitti svo frábæru Ísbjarnarvini mína þarna á leiðinni og fékk high-five frá öllum og knús frá Ingu.

Það er alltaf góð tilfinning þegar maður er alveg að koma að síðustu brekkunni niður að Emstrum, svo þá var bara að gefa í og láta sig vaða niður.

Emstrur – Þórsmörk = 15,94 km – 2:12:43 = 6:59:59 uppsafnaður tími .. moving time 6:52:50 (average moving pace 8:16)
Fékk frábærar móttökur í Emstrum, knús frá yndislegri konu sem ég held ég þekki ekki neitt og klapp frá öllum hinum. Stoppaði ekki lengi í Emstrum, fyllti bara orku sem ég þynnti með vatni á brúsann og tók mér 3 bananabita og hélt svo af stað. Ég hitti Cicci úr Ármanni við skálann og hljóðið í henni var ekki gott, en hún hafði hlaupið fram úr mér niður Jökultungurnar. Hún kvartaði yfir bæði maganum og hnénu og var svekkt að sjá fram á að ná ekki markmiðum sínum. Ég hvatti hana bara áfram og sagði að nú væri bara markmiðið að klára og hafa gaman, tíminn skipti engu máli. Hélt svo ein áfram.

Mér leið mjög vel þegar ég hljóp frá Emstrum, þar sem ég hafði hlaupið þetta um daginn með Náttúruhlaupahópnum, þegar við hlupum frá Þórsmörk upp í Emstrur og til baka aftur svo ég þekkti leiðina og gekk mjög vel alla vega fyrst um sinn. Svo kemur mjög langur, flatur kafli áður en maður kemur að Kápunni, þar hægði verulega á mér. Ég datt í félagsskap með þrem öðrum og sá við vorum öll að hlaupa frekar hægt, eða á 7:20 til 7:40 pace. Svo var einn hlaupari sem var alltaf að taka fram úr okkur, hljóp mun hraðar en við, en stoppaði svo alltaf og þurfti að ganga, veit ekki hvort það voru krampar eða eitthvað annað að hrjá hann, svo ég hugsaði með sjálfri mér að það væri þá skárra, að halda bara stöðugt “hægt” áfram, en að hlaupa hratt og þurfa alltaf að ganga þess á milli. Ég lét það aldrei eftir mér að ganga, en hlaupið var ekki mjög hratt á þessum kafla. Eins og Bibba myndi segja: „kallarðu þetta að hlaupa Halldóra“ 🙂 🙂

Fyllti á vatnið í drykkjarstöðinni fyrir Kápuna, hef yfirleitt fengið mér kók og snickers þar en langaði ekkert í það núna. Fékk mér bara síðasta GU gelið mitt og hélt upp kápuna. Það var göngufólk að ganga upp og þau voru á sama hraða og ég, sem sýnir og sannar að ég fór alls ekki hratt upp kápuna.

Mér gekk betur niður í áttina að Þröngá, en fann ég var samt orðin tæp með krampa. Var því búin að vera að drekka gúrkusafanna sem ég var með á mér. Eftir að hafa vaðið Þröngá, sá ég að það var orðið tæpt í að ég næði sub7 eins og mig langaði. Við vorum ennþá þarna nokkur saman og ég var farin að hvetja strákana áfram og tala um að það gæti verið skemmtilegt að reyna að ná sub 7. En eftir Þröngá, eru þrjár brekkur á leið inní Húsadal, þær eru ekki langar eða brattar, en þær eru krefjandi þegar þú ert búin að hlaupa rúmlega 50 km. Ég vissi að það væru 3 km eftir og markmiðið var að ná 6:59 eða sub 7.

Þegar ég var komin upp þessar krefjandi brekkur, gaf ég allt sem ég gat í niðurhlaupið og henti mér fram úr nokkrum hlaupurum. Þurfi að láta vel í mér heyra, svo mér yrði hleypt fram úr, en ég fann og vissi að ég hafði orku og kraft til að gefa í, þarna í lokin. Það var mikið af fólki þarna að hvetja og það var ekki leiðinlegt. Hitti Óskar Daníels og fjsk. hans og gaf verulega í. Tók svo þvílíkan lokasprett og tók ekki einu sinni á móti high-five kveðjum þegar ég var á leið í mark. Heyrði ekkert af því sem María vinkona mín Ingimundardóttir sagði um mig á leið í mark, þar sem augu mín horfðu bara á klukkuna sem var 7.00.13 þegar ég tók Haddýjar hoppið yfir marklínuna. (Sleppti því að sjálfsögðu ekki 🙂 )

Var MJÖG SVEKKT ..svo vægt sé til orða tekið, þar sem ég fór á 7:01:06 í fyrra og ætlaði mér að ná 6:59:59 eða undir 7 klst í ár. Það voru allir að óska mér til hamingju og ég var bara svekkt ha ha ha þangað til að Maja Sæm vinkona mín fór á timataka.net og komst að því að ég var á 6:59:47 samkvæmt flögutíma ha ha ha 😊 Þá tók ég gleði mína á ný.

Endaði hlaupið á 6:59:47 flögutími sem er PB. Varð í 26 sæti af 177 konum sem klára og í 7 sæti af 42 konum í mínum aldursflokki (konur 50-59 ára). Í fyrra var ég í 43 sæti af 182 konum sem klára og í 14 sæti af 73 í aldursflokki (konur 40-49 ára).

Búnaður:
Skór: Hoka Speedgoat 2 (frábærir)
Bolur: Salomon sparibolurinn
Stuttbuxur: Salomon sparipilsið mitt
Sokkar: Uppáhalds DryMax sokkarnir mínir
Legghlífar: Compresssport
Vesti: Salomon 8 lítra – með einum 500 ml. brúsa

Næring: GU gel, 1 fyrir hlaup og svo eitt á 60 mín fresti og GU gummi á móti á 60 mín fresti fyrst eftir 30 mín. Tók 5 eða 6 gel og 1 ½ GU Chomps
Úr: Garmin Fenix 5x Plús (elska það)

Þakkir: Elsku Beta (Elísabet Margeirsdóttir), hlaupaþjálfari kærar þakkir fyrir gott prógramm. Elsku Rúna Rut takk fyrir frábært aðstoðarþjálfarateymi, alltaf gaman að æfa með þér. Kæru NH Laugavegsæfingafélagar – takk fyrir frábært æfingatímabil. Þakka Sigga og Bigga fyrir skemmtilegar samverustundir í Landamannalaugum og svo í Þórsmörk (sjá fleiri myndir um það annars staðar á síðunni).
Takk elsku Óli fyrir endalausa þolinmæði fyrir öllum æfingunum 😊

Laugavegshlaupið er árshátíð utanvegahlaupara. Það er svo gaman þegar maður kemur í mark að hitta alla vini sína og knúsa þá. Hér að neðan eru myndir úr Laugavegshlaupinu 2019.

‘

IMG_1013
IMG_4754
IMG_4758
IMG_4763
IMG_4764
IMG_4775
IMG_4776
IMG_4779 (1)
IMG_4782
IMG_4786
IMG_4787
IMG_4791
IMG_4798
IMG_4800
IMG_4819
IMG_4822
IMG_4824
IMG_4825
IMG_4827
IMG_4829

IMG_4835
IMG_4838
IMG_4840
IMG_4849
IMG_4856
IMG_4870
IMG_4875
IMG_4877
IMG_4881
IMG_4883
IMG_4886
IMG_4887
IMG_4889 (1)
IMG_4911
IMG_4913
IMG_4915
IMG_4923
Ferð-í-Emstrur-og-Fjallabak-0454
Ferð-í-Emstrur-og-Fjallabak-0459
Ferð-í-Emstrur-og-Fjallabak-0460
Ferð-í-Emstrur-og-Fjallabak-0470
júlí 13, 2019 0 comment
0 FacebookTwitterPinterestEmail
Daglegt lífFjallahlaup

Heimsótti Ísland í bítið á Bylgjunni

by Halldóra júlí 11, 2019

Einar Bárðason bauð mér í heimsókn í Ísland í bítið á Bylgjunni í morgun, til að fjalla um Utanvegahlaup í tilefni þess að Laugavegshlaupið er næstkomandi laugardag.

júlí 11, 2019 0 comment
0 FacebookTwitterPinterestEmail
Daglegt lífFjallahlaupFjallgöngur

Everest Maraþon 2020

by Halldóra apríl 26, 2019

Ert þú búin að setja þér markmið fyrir 2020?

Ef þú vilt gera eitthvað „EINSTAKT“ og hefur gaman af fjallgöngum og hlaupum, þá er hérna tækifærið. Við ætlum að taka þátt í Everest maraþoninu, 29. maí 2020.

Everest Maraþon ferðin er samstarfsverkefni Náttúruhlaupa (Arctic Running) og Íslenskra Fjallaleiðsögumanna.

Þetta er 20 daga „einu sinni á ævinni“ ferð og farið verður af stað frá Íslandi 15. maí 2020.

Tenzing Hillary Everest Maraþonið er alþjóðlegur íþróttaviðburður þar sem hlaupið er úr Grunnbúðum Everst, 42 km leið niður í Namche Bazaar, höfuðstað Sjerpana.

Boðið verður upp á 60 km ultra maraþon, 42 km maraþon og 21 km hálfmaraþon. Í ferðinni er gert ráð fyrir góðum tíma til þess að aðlagast hæðinni þegar gengið verður upp í grunnbúðirnar fyrir hlaupið.

Smelltu á linkinn til að fá frekari upplýsingar og skrá þig:

9e5ac6f49f3e2f84a6ab086dc43e3ee8cc89448a
d1e8cb55a65d8f8a672d7f18826bd7f4586bd78e
fda519e559469c985ff8b63b184208b9efafed03
29b905124fa4aa00288c3324cc07c1f9281d365e
9e5ac6f49f3e2f84a6ab086dc43e3ee8cc89448a
29b905124fa4aa00288c3324cc07c1f9281d365e
85b043e11986b490d252fa449e938a5e14fa1a64
apríl 26, 2019 0 comment
0 FacebookTwitterPinterestEmail
Daglegt lífFjallahlaup

Hvað eru náttúruhlaup ?

by Halldóra febrúar 25, 2019

Var á kynningarfundi fyrir næsta Náttúruhlaupanámskeið í kvöld. Það er svo gaman að fara aftur á kynningarfund núna nokkrum árum eftir að ég byrjaði sem aðstoðarmaður hjá Elísabetu í svarta hópnum.

Nokkru síðar stofnuðum við vínrauða hópinn sem ég fékk að leiða í upphafi og þetta ferðalag síðustu árin er búið að vera algjörlega einstakt.

Birkir framkvæmdastjóri og Elísabet kynntu námskeiðið og eftirfarandi puncta sem mig langar að deila með ykkur:

1. EIN BESTA LEIÐIN TIL AÐ SKOÐA NÁTTÚRUNA
Á náttúruhlaupaæfingunum löngu á laugardögum (og fimmtudögum á námskeiðinu) er alltaf farið á mismunandi staði og nýjar leiðir kynntar. Þetta er klárlega ein besta leiðin til að skoða náttúruna, því maður sér svo margt og kemst svo víða á mjög stuttum tíma.

2. NJÓTUM UMHVERFISINS OG HREYFINGARINNAR
Það er mikill munur að hlaupa á malbikinu eða í náttúrunni. Fyrir utan það hvað það fer mikið betur með mann að hlaupa á mjúku undirlagi. Auk þess gefur það manni mikla orku að hlaupa úti í náttúrunni.

3. RÖTUN OG UPPGÖTVUN
Á námskeiðinu höfum við lært að rata og höfum auk þess uppgötvað mikið og margar nýjar og skemmtilegar leiðir.

4. VILJUM HLAUPA SEM VÍÐAST
Við í Náttúruhlaupunum viljum hlaupa sem víðast og það sem kom mér mest á óvart þegar ég byrjaði í Náttúruhlaupunum er hvað það eru margar frábærar leiðir við bæjardyrnar. Nýir staðir sem ég hafði aldrei séð áður en hef nú uppgötvað, meira að segja í bakgarðinum heima hjá mér. 😊

5, KREFJANDI EN FJÖLBREYTT HREYFING
Náttúruhlaup eru krefjandi að því leiti að undirlag er mismunandi, stundum er grýtt, stundum rætur sem standa upp úr stígunum, oftast er undirlagið mjúkt, en stundum hart. Hreyfingin er því mjög fjölbreytt og skemmtileg.

6. GÓÐUR FÉLAGSSKAPUR
Góður félagsskapur er ómetanlegur og í dag eru bestu vinir mínir hlauparar. Við erum alltaf að njóta hreyfingarinnar, höfum gaman og erum stöðugt að læra. Náttúruhlaup eru frábær félagsskapur sem er algjörlega ómetanlegur.

7. FULLT AF SKEMMTILEGUM GRÆJUM
Þar sem ég er algjör græjufíkill, þá er mjög gaman að fá tækifæri til að eignast nýjar græjur t.d. í jólagjöf eða afmælisgjöf sem tengist þessu einstaka áhugamáli mínu og í raun lífsstíl, hlaupaskór, hlaupabakpoki, hlaupajakki, sokkar, hlaupastafir, höfuðljós eða hlaupaúr eru allt skemmtilegar græjur.

Tilgangurinn með Náttúruhlaupum er að bæta heilsu og auka hamingju fólks með því að leiða það inn í nýjan lífstíl og vera farvegur fyrir fólk til að stunda hlaup í náttúrunni í góðum félagsskap.

Náttúruhlaup er hlaupasamfélag þar sem pláss er fyrir alla getuhópa, allt frá algjörum byrjendum í vana, hraðskreiða hlaupara. Hvet þig til að taka þátt og vera með okkur í Hlaupasamfélagi Náttúruhlaupa með því að skrá þig á www.natturuhlaup.is

febrúar 25, 2019 0 comment
0 FacebookTwitterPinterestEmail
Daglegt lífFjallahlaup

Vilt þú koma með til Spánar um páskana?

by Halldóra febrúar 19, 2019

Hver vill koma með mér að hlaupa og njóta lífsins í Bilbao á Spáni um páskana? Nánari upplýsingar hér: (p.s. lágmarksfjöldi eru10 sæti)


febrúar 19, 2019 0 comment
0 FacebookTwitterPinterestEmail
Daglegt lífFjallahlaupKeppnissaga

HK100 2019 – Keppnissaga

by Halldóra janúar 24, 2019

Vorum mætt á rásstað Pak Tham Chung óvenju snemma eða fyrir klukkan 07:00. Fórum öll með Ubernum, nema Siggi fór með Huldu, þar sem það var ekki pláss fyrir Huldu í Ubernum. Fór þrisvar á klósettið, ótrúlega stutt röð, fyrsta skipti sem ég fer á klósettið, þar sem við höfum alltaf verið frekar tæp á tíma og komið á rásstað rétt fyrir keppni.

Strákarnir, Siggi, Guðmundur Smári, Viktor og Þorsteinn voru ræstir klukkan 08:00. Við Rúna Rut og Hafdís vorum í ræsingunni klukkan 08:08, en Viggó var svo klukkan 08:15.

Strákarnir tilbúnir í ræsingu klukkan 08:00.

Við ákváðum að vera aðeins framar í ræsingunni, en ég var vön að vera, þar sem maður lendir alltaf í því að vera fastur í þröngum stíg í gegnum skóginn fyrstu 5 km.

Við stelpurnar tilbúnar í ræsinguna klukkan 08:08 með Huldu og Bekku.

Eftir ræsinguna er um 800 metra kafli á malbiki áður en komið er að skógarstígnum. Ég ákvað að gefa aðeins í svo ég myndi ekki lenda eins og tvö árin áður í kraðaki þegar leiðin fer inn á þrönga stíga og það gekk ágætlega.

Að sjálfsögðu var kraðak, þessa 5 km, en ekki eins mikið og verið hefur. Auk þess var hópurinn sem ég var að hlaupa með að fara aðeins hraðar heldur en fyrri árin, svo það var meira hlaupið en gengið.

Eftir um 5 km, lenti ég á eftir pari, sem tók allan stíginn, svo ég ákvað að reyna að taka fram úr þeim. Það tókst ekki betur en svo að ég flaug á hausinn og lenti illa á báðum hnjánum og lófunum, svo það blæddi mikið úr. En sem betur fer gat ég haldið áfram, stoppaði ekki einu sinni til að þurrka blóðið. En í hugann kom mynd sem ég setti inn í kynningu á árshátíðinni hjá Náttúruhlaupunum um síðustu helgi. „If you ain´t bleeding, you ain´t finished“ þ.e. ef þú ert ekki orðinn blóðugur í fjallahlaupum, þá ertu ekki búinn að klára hlaupið.

Eftir skógarkaflann, kom flatur malbikskafli, þar sem ég var bara fersk, þá hélt ég áfram á ágætu pace-i, og leið bara vel. Passaði bara að taka inn næringu, eftir 1 klst, þar sem ég hafði tekið eitt gel um 15-20 mín áður en ég lagði af stað.

Kort af HK100 leiðinni um Hong Kong.

SP EAST DAM 12 KM TÍMI: 01.18:30 OVERALL POSITION: 428 GENDER POSITION: 73   
Kom að fyrstu drykkjarstöð eftir 1 klst og 18 mín eða klukkan 9:26 á staðartíma. Leið mjög vel og stoppaði bara stutt, eða nákvæmlega 59 sek. inni á drykkjarstöðinni, bætti vatni á brúsann og tók appelsínur til að hafa með og hélt svo áfram. Það reyndist mjög vel í hlaupinu að taka appelsínur með til að borða á milli stöðva.  Framundan var smá brekka svo ég nartaði í appelsínurnar þar og hélt svo áfram.

Hitti Hafdísi rétt eftir seinni ströndina, og þá sagði hún mér að hún hefði farið fram úr Þorsteini. Ég hafði ekki séð hann svo ég hlýt að hafa farið fram úr honum þegar það kom tvískiptur stígur eftir strandarkaflann. Hafdís lagði af stað í hlaupið með slæma flensu, var komin með flensu þegar hún lagði af stað frá Íslandi, svo hún dældi í sig verkjalyfjum og harkaði af sér, algjör hetja.

Drykkjarstöðvar, vegalengd á milli, sem og hækkun og lækkun á milli stöðva og uppsöfnuð.

CP1 HAM TIN 22 KM TÍMI: 02:49:22 OP: 432 GP: 71
Við fórum saman í gegnum CP1 og þá var tíminn kominn í 2 klst og 49 mín. Við stoppuðum ekki lengi þar, eða í um 2 mín, ég bara bætti á vatnsbrúsann, fékk mér appelsínur í pokann og einn banana. Hélt svo beint áfram út af stoppistöðinni, en fór ekki rétt út af stöðinni, og þá var frábært að Garmin úrið pípti á mig, OFF TRACK, svo ég snéri við og fór aftur ON TRACK og við Hafdís héldum áfram upp fjallið.

Verkjalyfin voru greinilega að virka hjá Hafdísi því hún var mjög glöð og hress og við fórum saman á Facebook live á hennar síma og hún tók myndir, því minn sími var kominn á Security Mode, þar sem ég hafði örugglega komið við símann óvart í magabeltinu og slegið inn rangt lykilorð 😊 Það var orðið mjög heitt, yfir 20 stiga hiti og sólin skein, svo ég var dugleg að drekka, en mér leið ekkert sérstaklega vel. Ég var samt dugleg að taka inn salttöflur og næringu til að halda orkustiginu gangandi.  Hafdís var í góðum gír og hljóp á undan mér upp fjallið.

Við Hafdís rétt eftir CP1. Þá var hún í góðum gír, verkjatöflurnar virkuðu, en mér leið ekki alveg eins vel svo hún hljóp á undan mér upp fjöllin.

Þegar ég var rétt að byrja klifrið upp nýja fjallið (viðbót frá því í fyrra), þá hitti ég Guðmund Smára, sem var í vandræðum. Ég gaf honum Immodíum og Bhutan töfluna, til að reyna að hressa hann við og koma honum upp fjallið. Hann var bara alls ekki góður svo við stoppuðum hjá lækni eða aðstoðarfólki á vegum hlaupsins, sem gáfu okkur, magnesíum salttöflu, og þeir hjálpuðu mér að hreinsa óhreinindi og blóðið úr sárunum á hnjánum.  Það voru nefnilega margir búnir að skamma mig og skipa mér að láta hreinsa sárið.  Það var gott að fá smá hvíld, með Guðmundi og hann hélt áfram rólega með mér upp fjallið.

Þegar við vorum komin upp þá vildi hann endilega að ég héldi áfram, en held hann hafi verið búin að skipa mér þrisvar sinnum að halda áfram. Ég neitaði alltaf þangað til á þessum tímapunkti. Hélt svo áfram og var orðin spennt að hitta CREW ICELAND, þ.e. stelpurnar Huldu, Bekku og Ástu.

CP2 HAU TONG KAI 34 KM TÍMI: 04.56:31          OP: 439               GP: 77
Það er eiginlega ólýsanleg tilfinning og erfitt að útskýra með orðum hversu magnað það er að hitta Crew Team Iceland stelpurnar, þær Huldu, Bekku og Ástu. Þær tóku á móti mér í fallegu appelsínugulu peysunum, með íslenska fánann blaktandi og sungu „Öxar við ána“. Það var ekki hægt annað en að taka undir með þeim, svo ég söng hástöfum þegar ég gekk upp brekkuna í átt að þeim og CP2 drykkjarstöðinni.

Ásta og Hulda í brekkunni við CP2.

Þar sagði ég þeim hvernig ástandið hafði verið á Guðmundi Smára og að ég hefði bannað honum að hætta og þær mættu alls ekki leyfa honum að hætta. Hulda hreinsaði sárin á hnjánum á mér aftur, þó það væri nýbúið að því og setti plástur og svo fór ég úr HOKA skónum mínum og setti upp hnéhlífarnar. Ásta sótti plástur og vatn á brúsana og Bekka fann viðbótarnæringuna mína fyrir mig í pokann minn og hita-spreyið til að reyna að spreyja á lærin og kálfana sem voru orðin frekar steikt og stíf eftir alla krampana.

Ég stoppaði samt ekki lengi þarna kannski rúmlega 6 mínútur, snéri samt aðeins við og fékk mér sprey á innanverð lærin líka, því þau voru líka orðin aðeins steikt. Hugsaði þarna og mjög oft í hlaupinu að ég hefði nú átt að vera duglegri í styrktarþjálfun og hefði átt að vera búin að finna mér annan þjálfara í staðinn fyrir Bjössa sem sagði okkur upp 1. desember síðastliðinn. En það eru ekki alltaf jólin 😊

Ég hljóp samt léttari út af þessari drykkjarstöð, eftir þessar yndislegu móttökur.  

Á CP2 – með RedBull, komin í hnéhlífarnar og í góðu stuði.

Þegar ég var komin nákvæmlega 36,6 km (skrítið hvernig maður man svona tölur), þá flaug ég aftur á hausinn og lenti aftur á bjáðum hnjánum, en núna sem betur fer með hnéhlífar á báðum, svo ég skrámaðst ekki neitt, var bara aum, en engar skrámur 😊 Ástæðan fyrir þessari byltu, var krampi sem ég fékk í hægri fótinn og þá bara gaf hann sig svo hnén fengu skellinn 😊 

Þegar ég var komin 39 km þá hitti ég Viktor þar sem hann sat á steini og leit ekki vel út. Ég stoppaði og spurði hann hvort ég gæti eitthvað aðstoðað hann, t.d. með verkjalyf, næringu eða eitthvað. En hann sagðist bara ekki vera góður og þetta væri bara búið og ég gæti ekkert reddað honum ☹  Ég kvaddi hann og reyndi þá að hringja bæði í Bekku og Huldu til að láta þær vita, en báðir símarnir voru utan þjónustusvæðis.

Hélt áfram og kom næst að CP3 drykkjarstöðinni.

CP3 PAK SHA O 43 KM TÍMI: 06:26:20 OP: 444 GP: 77
Það var yndislegt að koma inn á CP3 stöðina, þar sem það stóð hópur sjálfboðaliða og söng og sló saman hvatningarblöðrum og fánar þátttökulandanna voru í tröppunum þegar maður kom inn. Maður er alltaf stoltur að sjá íslenska fánann. Það var búið að breyta stöðinni frá því í fyrra, nú hljóp maður niður tröppur, inn í garðinn og svo út hinum megin, inn á göngustíg. Í fyrra var þessi drykkjarstöð bara rétt við götuna og maður fór inn og út á sama stað og labbaði áfram upp malbikuðu götuna. En ég ákvað að stoppa bara stutt, fékk mér vatn á brúsana, nokkrar appelsínur í pokann og hélt svo áfram. Var aftur í smá vandræðum að finna réttu leiðina út af drykkjarstöðinni. Framundan var um 8 km kafli og ekki mikil hækkun.

CP4 YUNG SHUE O 51 KM TÍMI: 07:46:10 OP: 396 GP:73
CP4 Yung Shue O sem var áður 45km stöð en var núna orðin 51 km. Það tóku yndislegar krakkar á móti mér og buðu mér uppá kók sem ég þáði í bollann minn. Fór svo inn og bætti á vatnsbrúsana, ég var með hreint vatn í hægri brúsanum og með smá GU orku í vinstri brúsanum. Fyllti á báða brúsana og fann að ég var komin með smá ógeð á orkubragðinu. Fékk mér aftur smá appelsínur í poka, en núna voru þær í berkinum, þ.e. bara niðurskornar í báta, en höfðu verið skrællaðar alveg og skornar í báta fram að þessum tíma.  Á þessari drykkjarstöð fór ég í læknatjaldið í fyrra og bað um hitasprey á fótleggina, en núna stoppaði ég ekki lengi, heldur hélt bara áfram. Framundan var um 6 km, þó nokkuð brattur kafli.

Þegar ég var komin aðeins áleiðis, langaði mig að henda mér á FB, klukkan orðin rúmlega 16:00 (rúmlega 08:00 á Íslandi) svo ég fór á Facebook live. Heyrði í Siggu Sig vinkonu á FB live og spjallaði aðeins en það var mjög skemmtilegt, flott tilbreyting. Ákvað svo að einblína á klifrið svo ég myndi ekki detta aftur á hnén 😊

Í klifrinu fékk ég enn og aftur geðveikan krampa í hægri legginn, þ.e. kálfann og fóleggurinn festist alveg, svo ég varð að stoppa og teygja. Rétt á undan mér var hlaupari, líka búin að stoppa og var að teygja. Hann spurði mig hvort ég væri með krampa og hann sagðist vera í sama vanda. Við teygðum bæði á fótunum og reyndum svo að halda áfram upp tröppurnar og fjallið. Ég ákvað bara að setja allt álag á vinstri fótinn, þ.e. setja hann alltaf á undan upp tröppurnar svo ég myndi ekki festast aftur.  Við Mike (Michael Van Ryswyck) fórum að spjalla, hann sagði mér að hann væri frá Suður-Afríku, en hann býr á Spáni og var að taka þátt í HK100 með vini sínum sem býr í Hong Kong. Þeir ætluðu svo í frí til Tælands eftir hlaupið. Hann sagði mér líka að hann hefði tvisvar tekið þátt í Lavaredo 120 km og hann á pottþétt sæti í UTMB á næsta ári eins og ég. Hann sagðist hafa tekið eftir glæsilega og glaðlega íslenska stuðningsliðinu í ræsingunni og í CP2. 

Fjallahlaup eru yndisleg og skemmtileg á margan hátt. Eitt af því er að eignast yndislega vini í hlaupinu og spjalla við fólk hvaðeina af úr heiminum. Þegar við vorum komin uppá topp, þakkaði Mike mér kærlega fyrir spjallið og að hafa dregið sig uppá fjallið með spjallinu. Svo þaut hann fram hjá mér á niðurleiðinni, því bremsuvöðvarnir í lærunum á mér leyfðu mér ekkert að gefa í og hlaupa á eftir honum.

CP5 KEI LING HA 57 KM TÍMI: 09:11:39 OP: 393 GP: 73
Eins og alltaf er yndislegt að komast í CP5. Hlaupið hálfnað og íslenska stuðningsliðið á staðnum. Þegar ég kom inn á stöðina var Mike búin að láta Ástu vita að ég væri að koma inn og hann þakkaði fyrir spjallið og kvaddi.

Nú var allt íslenska stuðningsliðið á CP5, ekki eins og í fyrra þegar Pétur var einn þar.  Ég skipti um föt, fór úr blautum íþróttatoppnum, rennandi blautum bolnum og pilsinu, og fór í fersk og hrein UTMB Compression fötin mín. Skipti samt ekki um sokka, kálfahlífar eða skó þar sem ég var bara í góðum málum. Elska HOKA SPEEDGOAT2 skóna mína, var með auka skópar með mér, alveg eins, þ.e. HOKA SPEEDGOAT 2, ef ég þyrfti að skipta þá hefði ég skipt aftur í HOKA; en þurfti ekkert að skipta.

Ég fékk mér súpu, sótti viðbótar orku sem ég setti í vestið, höfuðljósið, hlýja ullarpeysu, vindjakka og fékk smá nudd á lærin frá Huldu minni. Viktor var komin á stöðina og ég hélt að hann væri búin að ná mér, eins og Börkur í fyrra, nákvæmlega á þessum stað, en þá hafði Bekka sótt Viktor á CP3 svo hann var hættur.

Fékk fréttir af öðrum félögum og var glöð að heyra að Guðmundur Smári hefði haldið áfram og að Rúna Rut og Hafdís væru í góðum málum og að Siggi og Viggó væru eitthvað að glíma við krampa eins og ég. Stoppaði í um 15-20 mínútur á CP5 og hélt svo áfram.

Eftir að hafa farið yfir umferðargötuna og byrjað að klifra var „GEAR CHECK“ eða búnaðarskoðun, þ.e.verið að kanna hvort þátttakendur séu með skyldubúnaðinn á sér. Það sem allir þurfti að sýna núna var álpokinn og gsm sími. Ég að sjálfsögðu gat sýnt það (skátinn með allan skyldubúnað og meira til á sér) og hélt svo áfram. Fór aftur á Facebook live á þessum tímapunkti til að þakka íslenska stuðningsliðinu kærlega fyrir, þeim Huldu, Bekku, Ástu, Pétru og Helgu (vinnufélagi Huldu).  Það byrjaði að rigna stuttu eftir að ég fór út af CP5, en ég ákvað að fara ekkert í peysu eða jakka, þar sem mér leið vel, var fersk eftir að hafa komist í þurr og hrein föt.

Framundan var um 13 km kafli, þó nokkur hækkun sem byrjaði á brattri malbiksbrekku. Heyrðum apaöskur í skóginum allt í kring á leiðinni en sá ekki apa á þessum tímapunkti. Það var komið niðamyrkur eftir um 30 mínútur frá CP5 og því gott að ég var búin að setja upp góða ljósið mitt.

Hæðakort sem sýnir líka drykkjarstöðvar og vegalengd á milli þeirra.

CP 6 GILWELL CAMP 70 KM TÍMI: 12:05:19 OP: 359 GP:69
Gilwell stöðin CP6 er skátastöð og þar eins og annars staðar voru yndislegir sjálfboðaliðar, krakkar sem voru boðnir og búnir að aðstoða. Þau fylltu á vatnsbrúsana hjá mér og ég fékk mér appelsínur, smá kók og hélt svo áfram. Mundi núna eftir stöfunum mínum, þar sem það var mér ofarlega í huga að í fyrra hafði ég gleymt stöfunum á þesari drykkjarstöð og þurfti að snúa við til að sækja þá, sem var ekki góð tilfinning 😊

Frá Gilwell að BeaconHill er um 8 km kafli, sem er svona upp og niður kafli.  Á einkum kaflanum hleypur maður niður malbikaða brekku þar sem er snilldar útsýni yfir alla borgina, ólýsanlega fallegt. Á þeim tímapunkti fannst mér ég hlaupa mjög hratt niður brekkuna. Kíkti svo á úrið mitt og sá að ég var á 8:20 pace og hugsaði, kemst ég ekki hraðar ? Reyndi að gefa í, en komst hraðast í 7:20 pace en datt fljótlega aftur í 8:20. Greinilegt að maður var komin yfir 70 km og allir kramparnir farnir að hafa áhrif og bremsuvöðvarnir í lærunum hættir að virka. Ég man að ég hugsaði líka, ég er þó alla vega að hlaupa ennþá en ekki ganga og þakkaði Afa mínum Jóhannesi heitnum sem er alltaf með mér á hlaupum fyrir stuðninginn.

Tilfinningin núna eins og í fyrra, var að mér fannst ég alltaf ,,alveg að vera komin“ að Beacon Hill. Var orðin svo spennt að heyra partý tónlistina, sem ég vissi að biði mín í CP7.

CP7 BEACON HILL 78 KM TÍMI: 13:50:59 OP: 344 GP:67
Beacon Hill er partý stöðin sem klikkar ekki. Arineldur, sæti, partýtónlist og skemmtun. Var búin að hlakka mikið til að komast þangað og fá mér fransbrauðs samloku (án skorpu) með rjómaosti, sveppasúpu, kaffi og kók.  Það er mjög fyndið hvernig þú ert búin að ákveða í hausnum, hvað þig langar í og ætlar að fá þér og þannig líka búin að undirbúa ekki bara hausinn, heldur líka magann fyrir þeirri næringu sem koma skal. Svo þegar ég kom á CP7, þá var ekki til samloka með rjómaosti, heldur bara sultu, hnetsmjöri og túnfiski og mig langaði ekki í það 😊 Fékk mér þá smá SUSHI grjón og súpu og að sjálfsögðu, kaffið, kók og fyllti á vatnið. Tók með mér appelsínur sem ég borðaði svo þegar ég gekk hægt í burtu út og niður af stöðinni.  Það er líka ótrúlegt hvað kókið hjálpar manni, ég t.d. drekk ekki kók dagsdaglega, mér finnst það virkilega vont og get ekki drukkið það, en í fjallahlaupum, þá er það mjög kærkomin orka.

Frá CP7 að CP8 er um 8 km kafli fyrst mjög bratt niður og svo aðeins upp. Ég fór bara rólega niður. Nú var maður komin á apaslóðir. Um leið og ég komst á malbikaða kaflann, þá sá ég nokkra apa. Ákvað að horfa ekki í augun á þeim, en þegar ég leit til þeirra, glömpuðu í þeim augun, þegar sterka ljósið mitt skein á augun í þeim.  Ef ég gat þá reyndi ég nú alltaf að taka smá „detour“ eða sveig til að þurfa ekki að fara mjög nálægt þeim. Ekki eins og Siggi sem sagði mér eftir hlaupið að hann hefði gefið einum apanum, banana og kastað berkinum út í skóg og sá þá hvar annar api stökk á eftir berkinum 😊

Á leið okkar er svo farið yfir göngubrú, til að komast yfir umferðargötu, og á miðri brúnni voru tveir apar sem hreyfðu sig ekki en horfði kröftuglega á mig. Ég ákvað að slökkva á höfuðljósinu til að minnka glampann frá augunum þeirra sem var ógnvekjandi og gekk yfir brúnna í staðinn fyrir að hlaupa, því ég var alein á brúnni með öpunum 😊

Aparnir eru ekki mikið að ráðast á mannfólkið, nema þeim sé ógnað. Við vorum reyndar hvött til að taka ekki ljósmyndir af þeim og vera ekki með skrjáfpoka því þá eiga þeir það til að stökkva á mennina og taka af þeim myndavélina eða pokann. Það er líka stranglega bannað að gefa öpunum að borða, en fyrir tveim árum, var búið að dreifa mjög mikið af mat á leiðinni handa þeim, veit ekki af hverju eða hverjir gerðu það.

Guðmundur Smári tók á móti mér í brekkunni fyrir ofan CP8 og hljóp með mér niður. Þá komst ég að því að hann hefði hætt í CP4, maginn ekki verið góður. Guðmundur spurði mig hvar ég hefði tekið fram úr Hafdísi og Sigga, en ég hafði ekki séð þau og ég hélt þau væru bara á þessum tímapunkti búin að klára.

CP8 SHING MUN DAM 86 KM TÍMI: 15:17:05 OP: 331 GP:65
Ég fékk mér appelsínur, þurrkaðar apríkósur, smá kaffi og sódavatn á CP8. Skipti um rafhlöðu á höfuðljósinu mínu og fékk mér hlýrri peysu í hlaupavestið, þar sem framundan voru hæstu fjöllin og punktarnir í hlaupinu.  Þegar ég er að fara að leggja af stað kemur Hafdís inn á CP8 og ákveður að halda áfram með mér.

Flensan hjá Hafdísi sagði til sín í hlaupinu og á CP7 stoppaði hún extra lengi til að næra sig vel og þar voru lærin á henni og annar kálfinn líka orðin pikkstíf. Hún var skynsöm og hægði á sér og nærði sig til að koma í veg fyrir vanlíðan.

Við hlupum því saman af stað og þar sem ég var hraðari á slétta kaflanum, fór ég aðeins á undan henni og sagði henni að hún myndi pottþétt ná mér á leiðinni upp, annars pottþétt á leiðinni niður, þar sem hún er miklu hraðar hlaupari en ég, bæði upp og niður fjöllin.

Frá CP8 að CP9 er um 7 km kafli, brattur malbikaður kafli upp og svo niður og upp fjöllin. Þarna er oft mjög kalt og mikið rok, þar sem þú ert að hlaupa eftir fjallabrún og mikið útsýni, en í þetta skiptið var alls ekki kalt og eiginlega blankalogn. Ég t.d.fór ekki í langermapeysu, var bara á stuttermabolnum og leið mjög vel, ótrúlega heitt ennþá þó klukkan væri orðin langt gengin í miðnætti.

CP9 LEAD MINE PASS 93 KM TÍMI: 16:57:19 OP: 295GP: 57
Leið mjög vel þegar ég kom inn í CP9, fyllti vatnsbrúsana og fékk mér appelsínur og hélt svo áfram. Framundan var hæsti toppurinn á leiðinni og um 10 km í mark. Fannst ég ótrúlega fersk (þrátt fyrir stífa vöðva) og gekk ein upp fjallið. Það var enginn í kringum mig. Ég var fyrir alllöngu búin að ákveða að taka upp IPOD tónlistina mína á þessum tímapunkti, því ég hélt þetta yrði það erfitt fyrir hausinn, þetta klifur, en á þessum tímapunkti fannst mér ég ekki þurfa né langa til að hlusta á tónlist, svo ég bara hélt áfram og setti aldrei tónlist eða sögu í eyrun allt hlaupið. 

Aðstæður á fjallinu voru miklu betri en í fyrra og árið á undan. Það var engin þoka og merkingar mun betri. Ógleymanleg þegar við Rúna Rut vorum að villast á þessum kafla fyrir tveim árum síðan. Ég hélt því bara áfram, passaði áfram næringuna, en ég hafði látið klukkuna hringja á 59 mín fresti, en var samt í raun að taka inn næringu á um 45 mín fresti allt hlaupið.  Þá var samt gott að láta klukkuna hringja og minna sig á, en mun stilla á 45 mín næst.  Eftir að hafa toppað fjallið og svo malbikaða bratta kaflann, þá var bara niðurhlaup eftir. Fyrst zikk zakk á malbiki og svo fjallastígur inni í skógi. Mér leið ótrúlega vel á þessum tímapunkti og hljóp fram úr hlaupurum á leiðinni niður, þó lærin væru að sjálfsögðu frekar steikt.

FINISH ROTARY CLUB PARK 103 KM TÍMI: 18:43:56 OP:271 GP: 53
Rétt þegar ég er að koma að markinu, heyri ég Huldu kalla á mig, fáninn Halldóra fáninn. Ég kasta af mér stöfunum, gríp íslenska fánann og hleyp í mark. Hulda tók af mér video og hvatti mig svo að sjálfsögðu til að taka „Haddýjar-hoppið“ sem ég og gerði þó ég væri mjög stressuð yfir því að fá krampa í hoppinu 😊 

Þessi tilfinning og gleði þegar maður kemur í mark eftir rúmlega 103 km fjallahlaup með 5.400 metra hækkun og verulegri bætingu er ólýsanleg. Að hafa yndislega vinkonu að taka á móti sér í markinu er líka ómetanlegt og ég veit ekki hvor okkar var glaðari. Við sóttum Finisher peysuna mína og silfur styttuna og svo skipti ég um buxur, legghlífar og peysu og skreið undir svefnpoka og lagðist á dýnu. Þar biðum við eftir og sáum Sigga og Hafdísi koma í mark, virkilega flott saman.  

Við biðum svo þar til Bekka kom (hún hafði verið með Rúnu og Steina í CP8). Okkur langaði líka mikið til að bíða eftir Rúnu Rut og Steina, en skynsama Bekka skipaði okkur að fara heim í sturtu þar sem Hafdís var lasin og Hulda líka orðin mjög þreytt og Bekka bauðst til að bíða eftir Rúnu og Steina. 

FINISH TIME: 18:43:56
Lokatíminn minn var 18 klst 43 mín og 56 sek. sem er ágætis bæting frá fyrra ári (19:20:17) sérstaklega í ljósi þess að búið er að lengja hlaupið um 6 km og viðbótarhækkun og lækkun um 500 m.  Hér að neðan er að finna tímana mína og sæti frá 2017.

ÁR TÍMI SÆTI ALLS SÆTI KVK
2019 18:43:56 271 53
2018 19:20:17 600 103
2017 23:22:54 1.166 203

ÞAKKIR
Elsku Hulda og Bekka takk fyrir ómetanlegan stuðning bæði fyrir hlaup, í hlaupinu og eftir hlaup. Þið eruð ástæðan fyrir því að maður kemur og tekur þátt í þessari skemmtilegu uppákomu ár eftir ár, þið eruð svo yndislegar, gefandi og skemmtilegar. Takk elsku Hulda fyrir að hýsa okkur og allar yndislegu kvöldstundirnar. Virkilega gaman að hitta sendiherra Íslands í Kína í glæsilegu matarboði heima hjá þér.

Bestu og yndislegustu systur sem ég þekki í heimi. Takk elsku Hulda og Bekka fyrir einstaka upplifun og vináttu.

The Icelandic Crew eða íslenska stuðningsliðið var umtalað sem flottasta og besta stuðningsliðið í hlaupinu. Takk elsku systur Hulda og Bekka, Ásta, Pétur og Helga fyrir aðstoðina í hlaupinu, gleðina og sönginn þið eruð einstök.

Kæru ferðafélagar, Rúna Rut, Hafdís, Siggi, Guðmundur Smári, Viktor, Steini og Viggó og Ásta, takk fyrir yndislegar samverustundir allan tímann í Hong Kong sem og allar þær frábæru æfingar sem við tókum saman fyrir hlaupið. Því svona keppni er bara eitt langt ferðalag. Það hefst með skráningu í hlaup, svo eru allar skemmtilegu æfingarnar fram að hlaupi og þær hindranir sem við verðum fyrir á leiðinni, allt í þá átt að styrkja okkur hvert og eitt fram að því að við komum í mark.
Takk kæru vinir fyrir ógleymanlegar stundir.

Innilega til hamingju með ykkar frábæra árangur Rúna Rut, Hafdís og Steini og Siggi til hamingju með að klára HK100 fjórða árið í röð.

ÞAKKIR HEIM
Það er ómetanlegt að eiga frábæra æfingafélaga, bæði í Hlaupasamfélagi Náttúruhlaupanna, í Hlaupahópi Breiðabliks og Þríkó.  Takk fyrir skemmtilegar æfingar og hvatninguna kæru vinir.

Elsku Beta mín, takk fyrir stuðninginn og hvatninguna og frábæru æfingarferðina okkar til La Palma, ég er fulviss um að hún hefur hjálpað mér mikið til að ná þessari bætingu.

Takk fyrir alla hvatninguna og ,,commentin“ kæru vinir og fésbókarvinir, hvatningin er ómetanleg og ég vona að þessi keppnissaga geti nýst einhverjum í framtíðinni.

Elsku Óli og Kristó, þið eruð BAKLANDIÐ, takk fyrir allan stuðninginn og þolinmæði gagnvart æfingum og keppnisferðalögum. LUV JU.

Siggi, Hulda, Halldóra, Bekka og Hafdís, með silfur stytturnar okkar.

NOKKRAR TÖLFRÆÐIUPPLÝSINGAR ÚR GARMIN ÚRINU MÍNU
Meðalhiti 26 °C
Lágmarkshiti 19°C
Hámarkshiti 32°C
Kalóríur 6.357
Meðalhjartsláttur 134 bpm
Hámarkshjartsláttur 201 bpm
Heildartími 18:43
Tími á hreyfingu 17:05
Average moving pace: 10:12
Average pace: 11:10

HVAÐ MYNDI ÉG GERA ÖÐRUVÍSI EF ÉG VÆRI AÐ FARA AFTUR ?
*Láta næringar-klukkuna pípa á 45 mín fresti ekki 59 mín.
*Fara jafn hratt af stað til að komast í skóginn, en fara svo aðeins hægar eftir skóginn.
*Muna eftir frábæra ráðinu hans Sigga að vera með Zip-loc poka og taka með mér appelsínur af drykkjarstöðvunum.
*Annars myndi ég ekki gera neitt annað öðruvísi, skipta aftur um föt ef ég er orðin svona sveitt, stoppa stutt á drykkjarstöðvunum, nema þar sem stelpurnar eru, hafa gaman alla leið, skipuleggja næringaplan vel fyrir hlaup og áætla tímaplan. Vera í frábæru HOKA Speedgoat 2 skónum mínum.
*Gaman …. gaman … gaman …
*Fyrir keppnina myndi ég vilja vera duglegri í styrktarþjálfun, til að minnka líkur á krömpum og styrkja lærin (bremsuvöðvana) sem voru svolítið að svíkja mig núna, en ekki í fyrra.

janúar 24, 2019 0 comment
4 FacebookTwitterPinterestEmail
Daglegt lífFjallahlaupKeppnis

HK100 2019 – TÖLFRÆÐI

by Halldóra janúar 24, 2019

Hér að neðan er tölfræði eftir Vibram Hong Kong 100 2019 hlaupið og samanburður við 2018 frá hlaupahöldurum.
HK100 hlaupið var núna haldið í 9 skiptið.

Fjöldi sem ræstu: 1842 (2019); 1862 (2018)
Fjöldi sem kláruðu: 1292 (70.1%) (2019); 1518 (81.5%)(2018)
DNF (Did Not Finish): 549 (29.8%) (2019); 344 (18.5%) (2018)
„Elites“ undir 13.5 klst menn: 33 (2019); 79 (2018)
„Elites“ undir 16 klst konur: 27 (2019); 44 (2018)
Gull styttan (undir 16 klst): 142 (7.7%)(2019); 308 (16.5%)(2018)
Silfur styttan (undir 20 klst): 240 (13.0%)(2019); 418 (22.4%)(2018)
Brons styttan (undir 24 klst): 404 (21.9%)(2019); 506 (27.2%)(2018)
Medalía (undir 30 klst): 504 (27.4%)(2019); 286 (15.4%)(2018)
Hlutfall karla og kvenna: 75:25 (2019); 77:23 (2018)
Sjálfboðaliðar: 1000
Lönd/svæði sem tóku þátt: 57 (2019); 60 (2018)

Ný, endurbætt og erfiðari leið og mikill hiti, gerði það að verkum að það varð meira brottfall en árið á undan.

TOPP 10 KARLMENN
1 Shen Jiasheng (China) 10:22:02 Columbia (NEW RECORD)
2 Liang Jing (China) 10:35:50 探路者飛越隊/ toread
3 Zhang Zhenlong (China) 10:41:46 探路者飛越隊/ toread
4 Deng Guo Min (China) 10:52:19 SALOMON
5 Scott Hawker (New Zealand) 10:53:34
6 Gediminas Grinius (Lithuania) 11:11:10 Team vibram
7 Li Kuo (China) 11:40:06 Columbia
8 Li Bo (China) 11:47:19 Hoka one one & vibram
9 Patrick O’Leary (Ireland) 11:51:37 The North Face
10 Wong Ho Chung (Hong Kong) 11:52:39 The north face adventure team

TOPP 10 KONUR
1 Lu Yangchun (China) 11:43:20 adidas TERREX (NEW RECORD)
2 Xiang Fuzhao (China) 12:17:32探路者飛越隊
3 Yang Guangmei (China) 12:43:19 Toread & vibram
4 Xu Meiling (China) 13:02:24
5 Ekaterina Mityaeva (Russia) 13:03:46 adidas TERREX
6 Jasmin Nunige (Switzerland) 13:19:21 adidas TERREX
7 Mariya Nikolova (Bulgaria) 13:51:08
8 Leung Ying Suet (Hong Kong) 14:01:22 MIZUNO
9 Lou Clifton (Australia) 14:33:33
10 Lucy Cant (New Zealand) 14:50:53 Gone Running Joint Dynamics

Hér er myndband eftir hlaupið frá hlaupahöldurum.

2019 香港100赛事视频高清版

2019 vibram香港100赛事视频高清版,制作Lloyd Belcher Visuals

janúar 24, 2019 0 comment
0 FacebookTwitterPinterestEmail
  • 1
  • …
  • 6
  • 7
  • 8
  • 9
  • 10
  • …
  • 13

Nýlegar færslur

  • Grænland D6 þriðjudagur 29. apríl 2025
  • Grænland D5 mánudagur 28. apríl 2025
  • Grænland D4 sunnudagur 27. apríl 2025
  • Grænland D3 laugardagur 26. apríl 2025
  • Grænland D2 föstudagur 25. apríl 2025

Nýlegar athugasemdir

  • Björk Ólafsdóttir um Vasavikan 2024
  • Sif Helgad. um Langjökull þveraður 17.júní 2020
  • Helga Bryndís um New York City maraþon 2023
  • Ingvar Þóroddsson um Free to Run Ambassador í New York maraþoninu 2023

Færslusafn

  • apríl 2025
  • júlí 2024
  • maí 2024
  • apríl 2024
  • mars 2024
  • nóvember 2023
  • október 2023
  • september 2023
  • ágúst 2023
  • júlí 2023
  • apríl 2023
  • janúar 2023
  • desember 2022
  • nóvember 2022
  • september 2022
  • ágúst 2022
  • júlí 2022
  • júní 2022
  • maí 2022
  • apríl 2022
  • mars 2022
  • febrúar 2022
  • janúar 2022
  • desember 2021
  • október 2021
  • september 2021
  • ágúst 2021
  • júlí 2021
  • maí 2021
  • apríl 2021
  • mars 2021
  • febrúar 2021
  • janúar 2021
  • nóvember 2020
  • október 2020
  • september 2020
  • ágúst 2020
  • júlí 2020
  • júní 2020
  • maí 2020
  • apríl 2020
  • mars 2020
  • janúar 2020
  • desember 2019
  • nóvember 2019
  • október 2019
  • september 2019
  • ágúst 2019
  • júlí 2019
  • júní 2019
  • maí 2019
  • apríl 2019
  • mars 2019
  • febrúar 2019
  • janúar 2019
  • desember 2018
  • nóvember 2018
  • október 2018
  • september 2018
  • ágúst 2018
  • júlí 2018
  • júní 2018
  • maí 2018
  • apríl 2018
  • janúar 2018
  • janúar 2017
  • september 2016
  • ágúst 2016
  • júlí 2016
  • júní 2016
  • mars 2016
  • nóvember 2015
  • ágúst 2015
  • júní 2015
  • febrúar 2015
  • nóvember 2014
  • ágúst 2014
  • október 2013
  • september 2013
  • ágúst 2013
  • júní 2013
  • maí 2013
  • apríl 2013

Flokkar

  • Daglegt líf
  • Fjallahlaup
  • Fjallaskíði
  • Fjallgöngur
  • Gönguskíði
  • Hjól
  • Hlaup
  • Ísklifur
  • Kajak
  • Keppnis
  • Keppnissaga
  • Sjósund
  • Skíði
  • Sund
  • Veiðar
  • Þríþraut

Um mig

Um mig

Halldóra Gyða

Halldóra hefur mjög gaman af því að fara út að leika. Markmiðið hjá henni er að njóta lífsins hvern einasta dag, brosa, hafa gaman og hún er þakklát fyrir góða heilsu.

Verum í sambandi

Facebook Twitter Instagram Pinterest Tumblr Youtube Bloglovin Snapchat

Nýlegar færslur

  • Grænland D6 þriðjudagur 29. apríl 2025

    apríl 29, 2025
  • Grænland D5 mánudagur 28. apríl 2025

    apríl 28, 2025
  • Grænland D4 sunnudagur 27. apríl 2025

    apríl 27, 2025
  • Grænland D3 laugardagur 26. apríl 2025

    apríl 26, 2025
  • Grænland D2 föstudagur 25. apríl 2025

    apríl 25, 2025

Um mig

banner
Halldóra Gyða elskar að vera úti að leika. Hér er hún í Dólómítunum í Lavaredo fjallahlaupinu 2016.

Vinsæl innlegg

  • 1

    Eco Trail Reykjavík – 22 km

    júlí 6, 2018
  • 2

    Ironman Texas 2018

    apríl 28, 2018
  • 3

    Buthan – dagur 1 – hæðaraðlögun og skoðunarferð

    maí 26, 2018

Síðustu æfingar

  • Afternoon Ride
    On maí 9, 2025 5:24 e.h. went 5,40 km during 00:37:51 hours climbing 18,00 meters burning 302 calories.
  • Morning Ride
    On maí 9, 2025 10:13 f.h. went 20,80 km during 02:08:57 hours climbing 81,00 meters burning 840 calories.
  • Evening Ride
    On maí 8, 2025 6:13 e.h. went 6,97 km during 00:43:20 hours climbing 18,00 meters burning 484 calories.
  • Afternoon Ride
    On maí 8, 2025 3:49 e.h. went 7,36 km during 00:44:30 hours climbing 17,00 meters burning 361 calories.
  • Afternoon Walk
    On maí 8, 2025 2:00 e.h. went 1,35 km during 00:19:03 hours climbing 2,00 meters burning 109 calories.
  • Facebook
  • Twitter
  • Instagram
  • Linkedin
  • Snapchat
  • Vimeo

@2017 - PenciDesign. All Right Reserved. Designed and Developed by PenciDesign


Back To Top