Grænland D3 laugardagur 26. apríl 2025

by Halldóra

Það var smá stress í loftinu, fyrri dagur keppnirnar og ég hafði áhyggjur af því að komast þessa 7,5 km. En í dag átti keppnin að vera 3 * 2,5 km og skotið tvisvar, einu sinni í liggjandi stöðu „prone“ og einu sinni í standandi. Ástæðan fyrir því að ég var stressuð var sú að ég var með tognun í rassi, en ég tognaði á Yasso æfingu á miðvkudagsmorgun, sama dag og við áttum að fljúga til Grænlands. Önnur ástæða fyrir smá stressi, var að það var mjög mikið af brekkum í brautinni, við séum það þegar við vorum að æfa okkur í gær. Það var ekkert að gera, en að leggja af stað og sjá hvernig ég yrði.

Eftir morgunmat þá sótti Símon okkur og skutlaði okkur að staðnum, þangað sem við áttum að mæta með byssurnar og skíðn. Einar var búin að redda okkur skutli uppeftir, þurftum að hringja nokkur símtöl í gær, til að finna skutl. En „Óli“var maðurinn sem var til í að skutla okkur.

Við komum að ratsjárstöðinni, þar voru sleðar og troðari til að taka allar byssurnar og farangurinn, þ.e. bæði byssur, skíði sem og bakpoka. Við Mikki fengum svo far upp eftir með sleða, sem var með kerru með öllum skíðunum. Það var mjög næs ferð upp og ég gat tekið meira að segja myndband á leiðinni.

Þegar við komum upp þá var farið strax í það að „calibera“ eða „skjóta inn“ byssurnar, þ.e. stilla aftursigtið. Ég fékk fyrst frá xxx Slettemark (sonurinn) til að aðstoða mig en svo var ég í veseni með byssuna, enda var ég líka að prófa bara í annað skipti „slinginn“ þ.e. festingu sem festir byssuna við upphandlegginn. Hélt svo áfram að skjóta og skjóta og hitti illa og þá kom systir hans hún Ukaleq Slettemark og breytti stillingunni. Þá fór ég alveg í panik, var viss um að hún hefði breytt réttri stillingu í ranga ha ha ha og vildi láta hana breyta til baka. Þá kom mamman, hún Uiloq Slettemark og kenndi mér þvílík að nota slinginn. Ýtti honum langt upp undir handakrikann, sagði að hann ætti að vera þarna. Þrengdi svo vel í bandinu undir rifflingum, leiðrétti svo á mér höndina undir bandið og BANG BANG með þessu (var reyndar alveg smá ákveðin) þá steinlá riffillinn í hendinni á mér og haggaðist ekki. Þvílíkur munur, vá hvað ég lærði mikið á þessu fikti.

En nú var kominn tími til að ræsa þessa keppni og fyrst ætlaði hópurinn að fara upphitunarhring. Þá fann ég ekki Mikka sem var með skíðaskóna mína í bakpokanum sínum, svo þegar ég fann hann og var kominn í skóna, þá fann ég ekki skíðastafina mína og á endanum var ég búin að missa af öllum sem fóru upphitunarhringinn og einhver sagði mér að ég gæti bara sleppt honum. Fannst það reyndar ágætt, þar sem mér var illt í rassinum, og þetta voru miklar og krefjandi brekkur sem við höfum farið í gær, svo ég var mjög sátt við að fara ekki neitt þennan upphitunarhring.

Svo var ræst, krakkarnir fyrst, svo konurnar og svo karlarnir. Ég var síðasta konan til að ræsa svo fremstu karlar voru mjög fljótir að hringa mig. Hringurinn var 1,7 km langur (sem betur fer styttur, þ.e. ekki 2,5 km) og allir voru á sma tíma í brautinni. Við skutum einu sinni liggjandi og einu sinni standandi. ‘Eg hitti 3 af 5 liggjandi og þurfti því að fara 2 refsihringi en hitti 0 af 5 standandi svo þá fór ég 5 refsihringi. En á milli liggjandi og standandi var skíðað svo þess vegna skíðuðum við 3 * 1,7 km. Þegar ég kom að rifflinum mínum í bæði skipti þurfti ég að bíða í fyrra skiptið var mottan upptekið, þar sem Arna var að skjóta á henni og í síðara skiptið var riffillinn minn upptekinn, svo ég beið samtals í rúmar 2 mínútur sem voru teknar af tímanum mínum.

Þetta gekk allt miklu betur en ég átti von á, en ég var samt fegin að fá far niður eftir með snjósleðanum, hefði ekki treyst mér til að skíða eða ganga.

Eftir skíðunina kíktum við í bæinn og borðuðum um kvöldið á Hereford en lítið um steikur, ég var sú eina sem fékk mér kjöt, lítið nautakjöt á grillteini.

You may also like

Leave a Comment