Halldóra Gyða Matthíasdóttir Proppé
  • Heim
  • Daglegt líf
    • Daglegt líf

      Grænland D6 þriðjudagur 29. apríl 2025

      apríl 29, 2025

      Daglegt líf

      Grænland D5 mánudagur 28. apríl 2025

      apríl 28, 2025

      Daglegt líf

      Grænland D4 sunnudagur 27. apríl 2025

      apríl 27, 2025

      Daglegt líf

      Grænland D3 laugardagur 26. apríl 2025

      apríl 26, 2025

      Daglegt líf

      Grænland D2 föstudagur 25. apríl 2025

      apríl 25, 2025

  • Fjallahlaup
    • Fjallahlaup

      ITRA HLAUP FRÁ 2011-2024

      júlí 31, 2024

      Fjallahlaup

      TMR D8 Ferðadagur

      ágúst 4, 2023

      Fjallahlaup

      TMR D7

      ágúst 3, 2023

      Fjallahlaup

      TMR D6

      ágúst 2, 2023

      Fjallahlaup

      TMR D5

      ágúst 1, 2023

  • Keppnissaga
    • Keppnissaga

      Íþróttaferilskrá eftir árum frá 2011

      júlí 31, 2024

      Keppnissaga

      Vasavikan 2024

      mars 6, 2024

      Keppnissaga

      New York City maraþon 2023

      nóvember 5, 2023

      Keppnissaga

      Ironman Italy 2023 16.09.2023

      október 16, 2023

      Keppnissaga

      Berlínarmaraþon 2022

      september 26, 2022

  • Þríþraut
    • Þríþraut

      Ironman Italy 2023 16.09.2023

      október 16, 2023

      Þríþraut

      Kópavogsþrautin 2021 (keppnissaga)

      maí 9, 2021

      Þríþraut

      Bláfjallaþríþraut Relive

      maí 10, 2020

      Þríþraut

      Bláfjallaþríþraut 2020

      maí 10, 2020

      Þríþraut

      50 ÁRA AFMÆLISÁRIÐ 2019

      desember 31, 2019

Halldóra Gyða Matthíasdóttir Proppé
  • Heim
  • Daglegt líf
    • Daglegt líf

      Grænland D6 þriðjudagur 29. apríl 2025

      apríl 29, 2025

      Daglegt líf

      Grænland D5 mánudagur 28. apríl 2025

      apríl 28, 2025

      Daglegt líf

      Grænland D4 sunnudagur 27. apríl 2025

      apríl 27, 2025

      Daglegt líf

      Grænland D3 laugardagur 26. apríl 2025

      apríl 26, 2025

      Daglegt líf

      Grænland D2 föstudagur 25. apríl 2025

      apríl 25, 2025

  • Fjallahlaup
    • Fjallahlaup

      ITRA HLAUP FRÁ 2011-2024

      júlí 31, 2024

      Fjallahlaup

      TMR D8 Ferðadagur

      ágúst 4, 2023

      Fjallahlaup

      TMR D7

      ágúst 3, 2023

      Fjallahlaup

      TMR D6

      ágúst 2, 2023

      Fjallahlaup

      TMR D5

      ágúst 1, 2023

  • Keppnissaga
    • Keppnissaga

      Íþróttaferilskrá eftir árum frá 2011

      júlí 31, 2024

      Keppnissaga

      Vasavikan 2024

      mars 6, 2024

      Keppnissaga

      New York City maraþon 2023

      nóvember 5, 2023

      Keppnissaga

      Ironman Italy 2023 16.09.2023

      október 16, 2023

      Keppnissaga

      Berlínarmaraþon 2022

      september 26, 2022

  • Þríþraut
    • Þríþraut

      Ironman Italy 2023 16.09.2023

      október 16, 2023

      Þríþraut

      Kópavogsþrautin 2021 (keppnissaga)

      maí 9, 2021

      Þríþraut

      Bláfjallaþríþraut Relive

      maí 10, 2020

      Þríþraut

      Bláfjallaþríþraut 2020

      maí 10, 2020

      Þríþraut

      50 ÁRA AFMÆLISÁRIÐ 2019

      desember 31, 2019

Author

Halldóra

Halldóra

Daglegt lífHjólKeppnissaga

KIA Silfurhringur 2020

by Halldóra júlí 11, 2020

Tók þátt í KIA Silfurhringnum í fyrsta skipti frá því ég datt og slasaði mig í KIA gullhringnum 2013.
Það var því smá hrollur sem fór um mig í ræsingunni og ég ákvað að halda mér frekar aftarlega og hjóla þetta bara þægilega þar sem þetta er þraut númer 2 af 4 þrautum í Víkingaröðinni.

Það kom því skemmtilega á óvart að ná 1 sæti í aldursflokki og 10 sæti overall kvk af 89 sem tóku þátt.

Allt skipulag og utanumhald var til mikillar fyrirmyndar og mjög gaman að taka þátt.

júlí 11, 2020 0 comment
0 FacebookTwitterPinterestEmail
Daglegt lífFjallgöngur

Hornstrandir 2020 – Dagur 4 – heimferð

by Halldóra júlí 9, 2020

Það var ekki ljóst fyrr en um 10 leytið hvort við myndum sigla heim klukkan 13 eða 16, það færi eftir því hvort það væru farþegar að fara í dagsgöngu um Hornbjargið.

Við fórum því bara í tvær léttar gönguferðir eftir að hafa pakkað niður tjaldi og búnaði. Gengum fyrst upp að húsinu á Horni og fossinum og til baka.

Gengum svo alla strandlengjuna og sáum marglyttur sem höfðu skolast í land.

Siglingin heim var svo guðdómleg um 79 km löng þar sem við sigldum mjög fallega útsýnissiglingu.

júlí 9, 2020 0 comment
0 FacebookTwitterPinterestEmail
Daglegt lífFjallgöngur

Hornstrandir 2020 – Dagur 3

by Halldóra júlí 8, 2020

Gengum frá Höfn í Hornvík út á Horn við Hornbjarg, þ.e. í gegnum Ystadal. Fórum þaðan uppá og yfir Miðfell (Miðdalur) og þaðan fór hluti hópsins uppá toppinn á Kálfatindum. Við fórum þetta allt undir frábærri leiðsögn Esterar refamömmu og heyrðum skemmtilegar sögur frá Hornströndum.

Að sjálfsögðu voru teknar reglulega nestispásur og fylgst með refunum og sáum líka yrðlinga. Frábært að ganga bara með léttan dagpoka, eftir að hafa gengið með þunga bakpoka síðustu tvo daga.

Guðdómlegt veður, frábær félagsskapur og magnað útsýni.

Gengjum samtals 23 km á 12 klst og 880 metra samanlögð hækkun.

júlí 8, 2020 0 comment
0 FacebookTwitterPinterestEmail
Daglegt lífFjallgöngur

Hornstrandir 2020 – Dagur 2

by Halldóra júlí 7, 2020

Þegar við vöknuðum voru 5menningarnir sem gengu frá Fljótavík í Hornvík, komnir á staðinn, en þau höfðu gengið mjög krefjandi göngu deginum á undan. Þau lögðu af stað á laugardeginum og gengu Hlöðuvík, Aðalvík, Aðalvík-FLjótavík og svo Fljótavík-Hornvík.

Það var ótrúlega heitt alla nóttina þar sem sólin skein alla nóttina. En það var orðið aðeins skýjað um morguninn þegar við vöknuðum. Eftir morgunmat var tjaldinu pakkað og haldið áfram og lá leiðin til Hornvíkur þar sem við ætluðum að hitta restina af hópnum.

Þegar við komum kvöldið áður í Hlöðuvík, leist okkur ekkert á fjallið sem blasti við okkur, þ.e. gönguleiðin á degi 2. Hins vegar þegar við vorum lögð af stað og komin uppá fjallið þá var það mun einfaldara að klífa en það leit út í upphafi. Leiðin var mjög falleg yfir Atlaskarð og við hittum leiðsögumann frá FÍ á leiðinni, sem var að snúa við í skálann í Hlöðuvík.

Við gengum samtals 11 km með 529 metra hækkun. Tíminn var 5 klst og 20 mín.

Þegar við komum að Hornvík (Höfn) þá var ég ekki viss um hvort við ættum að hitta hópinn þar eða útí Horni þar sem eru tvö hús. Fann ekkert um það í tölvupóst samskiptum. Kíktum því í bragga-tjald sem var þarna við ströndina og þar var merkið BOREA ADVENTURES og hvað við vorum glöð að þurfa ekki að ganga með bakpokana alla leið út í Höfn 🙂

Fengum frábærar móttökur frá starfsmönnum Borea þar sem okkur var boðið uppá kaffi og súkkulaðikex. Eftir að hafa tjaldað, þá velti ég fyrir mér að ganga á móti hópnum sem var að koma úr Veiðileysufirði, en Ester hafði farið á móti þeim, áður en við komum. Svo bara kom hópurinn, léttur og glaður og það var gaman að hitta þau öll.

Ég var svo farin að hafa áhyggjur af 5menningunum sem höfðu lagt af stað frá Hlöðuvík á eftir okkur, svo ég ákvað að fara á móti þeim. Hitti þau eftir um 1 km göngu þar sem þau voru að fara upp og niður kaðal smá skarð sem þurfti að klífa, svo það var ágætt að geta aðstoðað þau og gaman að hitta þau aftur.

Fengum svo frábæran pastakvöldmat hjá Borea og ostaköku í desert, yndislegt kvöld.

júlí 7, 2020 0 comment
0 FacebookTwitterPinterestEmail
Daglegt lífFjallgöngur

Hornstrandir 2020 – Dagur 1

by Halldóra júlí 6, 2020

Við sigldum með Sjóferðum Hafsteins og Kiddýjar og Hafsteinn var skiptstjórinn í ferðinni, ásamt Stíg. Við sigldum frá Ísafirði klukkan 09:00. Um borð voru nokkrir farþegar ásamt tveim Kayökum.

Við fengum 3 klst útsýnistúr, þar sem við sigldum alla Jökulfirðina. Fyrsta stopp var í Grunnavík, annað stopp í botni á Hrafnsfirði, þriðja stopp við Drápsvík og svo átti að fara á Hesteyri, en þá kom neyðarkall frá Landhelgisgæslunni um vélavana bát, þar sem sækja þurfti farþega. Svo snúið var við áleiðis til Bolungarvíkur og farþegar teknir um borð. Eftir það var hægt að sigla til Hesteyrar og við komum þangað um klukkan 12:00.

Veðrið var einstaklega gott, sól og blíða og blankalogn og hiti. Við byrjuðum á að fá okkur kaffi og skoða Læknishúsið á Hesteyri (þekkt úr bókinni Ég man þig, eftir Yrsu) og fylltum á vatnsbrúsa. Lögðum svo af stað um klukkan 13.00 frá Læknishúsinu.

Það var mikill snjór á leiðinni en mjög fámennt af fólki. Vorum yfirleitt bara tvö á allri leiðinni. Við stoppuðum reglulega til að taka af okkur bakpokana, en við vorum með um 15 og 20 kg bakpoka á bakinu, þ.e. almennilegt tjald, dýnur, svefnpoka, auka fatnað, mat og drykki.

Ganga frá Hesteyri til Hlöðuvíkur var um 15 km löng, 560 metra hækkun, og heildargöngutími 6 klst og 40 mín. Þessi fyrsti dagur var alveg krefjandi, enda þarf að venjast því að ganga með svona þungan bakpoka, en leiðin var virkilega falleg.

Tjölduðum svo í Hlöðuvík og kvöldið var gjörsamlega guðdómlegt að horfa á sólina setjast á sjóinn, var algjörlega magnað.

Komin um borð í Sæferðir á leið á Hesteyri.

Flott veður í útsýnistúrnum sem við fengum.

Spegilsléttur sjórinn 🙂

Fyrsti farþegi út í Grunnavík.

Næstu farþegar út í botni Hrafnsfjarðar - og tveir með Kayak.

Farþegar sóttir við Drápsvík.

Stígur skutlar mannskapnum í land, erum komin á Hesteyri.

Falleg strönd við Hesteyri.

Falleg húsin á Heysteyri.

Læknishúsið (1901) á Heysteyri með ábúendum. Þar er hægt að kaupa kaffi og pönnukökur.

Kveðjum ströndina á Hesteyri og höldum uppá fjallið í átt að Hlöðuvík.

Gekk á hlýrabolnum og stuttbuxum allan daginn - mjög hlýtt og bankalogn.

Fórum yfir marga snjóskaflana á leiðinni.

Fallegar vörður - vörðuðu leiðina.

Þungir bakpokar - 15 og 20 kg - því þarf að taka pokana reglulega niður og fá sér nesti. Nýbakaðar flatkökur frá Gamla Bakaríinu með hangikjöti.

Falleg vörðuð leið.

Mikill snjór á leiðinni, en alls ekki óþægilegt að ganga hann, þurfti enga brodda. Fallegt að horfa niður á firðina.

Niðurleiðin með þunga poka er ekki einfaldari en uppleiðin ..

Geggjað tjaldstæðið og útsýnið við Hlöðuvík.

Mikið af rekaviði á Hornströndum, gott að nota sem sæti.

Gordjöss kvöldstund við Hlöðuvík.

Magnþrungið kvöld ..

júlí 6, 2020 0 comment
0 FacebookTwitterPinterestEmail
Daglegt líf

Vestfirðir 2020 – Dagur 8

by Halldóra júlí 5, 2020

Það var sól og blíða þegar við vöknuðum á tjaldstæðinu í Tungudal á Ísafirði. Fengum okkur kaffi og smá sólbað áður en ég skellti mér í 14 km létt utanvega skokk um Ísafjörð.

Eftir skokkið fórum við í að gera bakpokana fyrir Hornstrandaferðina ready fyrir siglinguna á mánudagsmorgun.

Fórum svo að leita að USB hleðslupungum, þar sem við treystum ekki á rafmagnið á sólarsellugræjunni, hafði ekki verið að hlaða nógu hratt á Vestfjörðum.

Fórum í Nettó að leita að USB og hittum þá hana Veigu kayakræðara sem fór hringinn í kringum Ísland. Hún bauðst til að lána mér svona USB charger svo við fórum heim með henni og fengum þetta lánað.

Síðan borðuðum við á Asíska staðnum hjá Nettó sem er geðveikt góður og vel útilátinn. Gott að hlaða vel fyrir átökin.

júlí 5, 2020 0 comment
0 FacebookTwitterPinterestEmail
Daglegt líf

Vestfirðir 2020 – Dagur 7

by Halldóra júlí 4, 2020

Kíktum í miðbæinn á Ísafirði, ætluðum að kíkja á Bobba í Craft búðinni, en það var lokað vegna sumarfría. Við fórum í Bónus og versluðum fyrir Hornstrandarferðina og svo kíktum við í Gamla Bakaríið og pöntuðum flatkökur til að smyrja með okkur á mánudagsmorgninum.

Gengum um allan bæinn og rúntuðum líka.

Fórum líka til baka göngin til Flateyris og kíktum á gömlu bókabúðina. Fórum í sund á Suðureyri og fengum kaffi og frostpinna í heita pottinn. Kíktum svo í Bolungarvík og keyrðum uppá Bolafjall og ókum í gegnum Hnífsdal á leiðinni til baka.

Áttum svo yndislega kvöldstund á Húsinu með vinum okkar þeim Hrönn og Jóni Örvari, frábær matur og félagsskapur.

júlí 4, 2020 0 comment
0 FacebookTwitterPinterestEmail
Daglegt líf

Vestfirðir 2020 – Dagur 6

by Halldóra júlí 3, 2020

Kvöddum fallega bústaðinn á Bíldudal með þökkum. Keyrðum svo áleiðis til Þingeyris og komum við og gengum upp að fossinum Dynjanda. Mikið ofboðslega er hann fallegur.

Lögðum svo við íþróttamiðstöðina á Þingeyri, þar sem var strandblak keppni í gangi í bongó blíðu.

Við hjóluðum svo Vesturgötuna, 56 km, sem var mjög krefjandi en falleg leið. Þegar við komum að tanganum á milli Arnarfjarðar og Dýrfjarðar, þá komu fram úr okkur 7 mótorhjólamenn allir á Triumph mótorhjólum, ótrúlegt að þeir hefðu hjólað þessa grófu leið, þ.e. bara í fjörunni.

Við rétt náðum í sund fyrir lokun þ.e. klukkan 21:00 og hittum þar Hrönn og Jón Örvar sem voru að hjóla sömu leið fyrr um daginn. Við ætluðum svo að fá okkur að borða og tjalda, en þá var búið að loka öllum eldhúsum á Þingeyri. Það var því ekkert annað í boði en að aka á Ísafjörð og fá okkur að borða þar og tjalda þar.

júlí 3, 2020 0 comment
0 FacebookTwitterPinterestEmail
Daglegt líf

Vestfirðir 2020 – Dagur 5

by Halldóra júlí 2, 2020

Þar sem við ókum beint á Bíldudal frá Patreksfirði í gær, þá ákváðum við að kíkja á Tálknafjörð í dag.

Kíktum á búðina xxx sem selur Galdrakremin og hittum frumkvöðulinn og eigandann hana Öllu. Keyptum að sjálfsgöðu af henni galdrakrem. Fórum svo og fengum okkur samloku og kaffi hjá Dagnýju í xxxx .

Enduðum svo daginn á að fara í Pollinn sem er á leið út Tálknafjörðinn.

Gistum svo aftur á Bíldudal.

júlí 2, 2020 0 comment
0 FacebookTwitterPinterestEmail
Daglegt líf

Vestfirðir 2020 – Dagur 4

by Halldóra júlí 1, 2020

Gistum aðra nótt á Rauðasandi og það var aftur bongó blíða þegar við vöknðum.

Eftir morgunkaffi og morgunmat, hjóluðum við um Rauðasand. Kíktum á Saurbæjarkirkju og töluðum við dóttir bóndans á xxxxdx.

Skelltum okkur svo aftur á ströndina fyrir neðan tjaldstæðið þar sem við tókum drónamyndir, þar sem ég bæði synti í sjónum og hljóp berfætt á stHjóluðum um Rauðasand og fórum svo í sund á Patró, borðuðum þar og keyrðum svo á Bíldudal og gistum í gullfallegum sumarbústað.

júlí 1, 2020 0 comment
0 FacebookTwitterPinterestEmail
  • 1
  • …
  • 19
  • 20
  • 21
  • 22
  • 23
  • …
  • 41

Nýlegar færslur

  • Grænland D6 þriðjudagur 29. apríl 2025
  • Grænland D5 mánudagur 28. apríl 2025
  • Grænland D4 sunnudagur 27. apríl 2025
  • Grænland D3 laugardagur 26. apríl 2025
  • Grænland D2 föstudagur 25. apríl 2025

Nýlegar athugasemdir

  • Björk Ólafsdóttir um Vasavikan 2024
  • Sif Helgad. um Langjökull þveraður 17.júní 2020
  • Helga Bryndís um New York City maraþon 2023
  • Ingvar Þóroddsson um Free to Run Ambassador í New York maraþoninu 2023

Færslusafn

  • apríl 2025
  • júlí 2024
  • maí 2024
  • apríl 2024
  • mars 2024
  • nóvember 2023
  • október 2023
  • september 2023
  • ágúst 2023
  • júlí 2023
  • apríl 2023
  • janúar 2023
  • desember 2022
  • nóvember 2022
  • september 2022
  • ágúst 2022
  • júlí 2022
  • júní 2022
  • maí 2022
  • apríl 2022
  • mars 2022
  • febrúar 2022
  • janúar 2022
  • desember 2021
  • október 2021
  • september 2021
  • ágúst 2021
  • júlí 2021
  • maí 2021
  • apríl 2021
  • mars 2021
  • febrúar 2021
  • janúar 2021
  • nóvember 2020
  • október 2020
  • september 2020
  • ágúst 2020
  • júlí 2020
  • júní 2020
  • maí 2020
  • apríl 2020
  • mars 2020
  • janúar 2020
  • desember 2019
  • nóvember 2019
  • október 2019
  • september 2019
  • ágúst 2019
  • júlí 2019
  • júní 2019
  • maí 2019
  • apríl 2019
  • mars 2019
  • febrúar 2019
  • janúar 2019
  • desember 2018
  • nóvember 2018
  • október 2018
  • september 2018
  • ágúst 2018
  • júlí 2018
  • júní 2018
  • maí 2018
  • apríl 2018
  • janúar 2018
  • janúar 2017
  • september 2016
  • ágúst 2016
  • júlí 2016
  • júní 2016
  • mars 2016
  • nóvember 2015
  • ágúst 2015
  • júní 2015
  • febrúar 2015
  • nóvember 2014
  • ágúst 2014
  • október 2013
  • september 2013
  • ágúst 2013
  • júní 2013
  • maí 2013
  • apríl 2013

Flokkar

  • Daglegt líf
  • Fjallahlaup
  • Fjallaskíði
  • Fjallgöngur
  • Gönguskíði
  • Hjól
  • Hlaup
  • Ísklifur
  • Kajak
  • Keppnis
  • Keppnissaga
  • Sjósund
  • Skíði
  • Sund
  • Veiðar
  • Þríþraut

Um mig

Um mig

Halldóra Gyða

Halldóra hefur mjög gaman af því að fara út að leika. Markmiðið hjá henni er að njóta lífsins hvern einasta dag, brosa, hafa gaman og hún er þakklát fyrir góða heilsu.

Verum í sambandi

Facebook Twitter Instagram Pinterest Tumblr Youtube Bloglovin Snapchat

Nýlegar færslur

  • Grænland D6 þriðjudagur 29. apríl 2025

    apríl 29, 2025
  • Grænland D5 mánudagur 28. apríl 2025

    apríl 28, 2025
  • Grænland D4 sunnudagur 27. apríl 2025

    apríl 27, 2025
  • Grænland D3 laugardagur 26. apríl 2025

    apríl 26, 2025
  • Grænland D2 föstudagur 25. apríl 2025

    apríl 25, 2025

Um mig

banner
Halldóra Gyða elskar að vera úti að leika. Hér er hún í Dólómítunum í Lavaredo fjallahlaupinu 2016.

Vinsæl innlegg

  • 1

    Eco Trail Reykjavík – 22 km

    júlí 6, 2018
  • 2

    Ironman Texas 2018

    apríl 28, 2018
  • 3

    Buthan – dagur 1 – hæðaraðlögun og skoðunarferð

    maí 26, 2018

Síðustu æfingar

  • Leiðin að bata - styrkur á tognaðan rassvöðva d1
    On maí 13, 2025 7:36 f.h. during 00:16:35 hours burning 58 calories.
  • Gengið rólega um Köben - menningarganga
    On maí 12, 2025 10:25 f.h. went 11,20 km during 02:50:15 hours climbing 80,00 meters burning 1.136 calories.
  • Morning Walk
    On maí 11, 2025 10:48 f.h. went 12,55 km during 02:45:34 hours climbing 48,00 meters burning 1.180 calories.
  • CPH maraþon - fyrsta DNF í maraþoni og í fyrsta skipti sem ég ákveð að DNFa fyrir ræsingu - langaði bara að byrja en er með tognaðan rassvöðva - því er maraþon ekki mögulegt ;-)
    On maí 11, 2025 10:04 f.h. went 6,23 km during 00:37:35 hours climbing 14,00 meters burning 411 calories.
  • Morning Ride
    On maí 9, 2025 10:13 f.h. went 20,80 km during 02:08:57 hours climbing 81,00 meters burning 840 calories.
  • Facebook
  • Twitter
  • Instagram
  • Linkedin
  • Snapchat
  • Vimeo

@2017 - PenciDesign. All Right Reserved. Designed and Developed by PenciDesign


Back To Top