Tók þátt í IMOC (Icelandic Masters Open Championships) 2022 um helgina með mömmu og félögum mínum í Breiðablik.
Garparnir eru frábær félagsskapur og nokkur ár síðan ég bauð mömmu með á fyrstu æfinguna og hún missir ekki úr æfingu (mætir miklu betur en ég) og ég veit hún saknaði sundsins og félaganna mest þegar hún var í krabbameinsmeðferðinni sl haust.
Náði að bæta árangur minn í öllum greinum sem ég tók þátt í á föstudagskvöldinu en gat ekki tekið þátt í gærmorgun, en þá hljóp ég 1/2 fjallamaraþon (4 tindar) í Mosó svo árangurinn í sundgreinum eftir hádegi var aðeins lakari
En mikið stuð og gaman og yndislegt að fá að taka tvisvar þátt í boðsundi með mömmu og báðar boðsveitir fengu gull
En 4 gull, 1 silfur og 1 brons í aldursflokki í safnið eftir helgina , þar af tvö Íslandsmet í bringusundi 🙂