Tindahlaupið í Vestmannaeyjum

by Halldóra

Fór með Laugavegshópi Náttúruhlaupa til Vestmannaeyja í morgun.  Veðurspáin alla vikuna var mjög góð, breyttist samt á síðustu stundu, í rigningu og þoku.

Sameinuðumst í bíla í Olís við Rauðavatn og fórum með Herjólfi frá Landeyjahöfn og það gekk mjög vel.

Ferðin yfir tók bara um 35 mínútur. Þar tóku á móti okkur eðalhjónin Róbert Marshall og konan hans Brynhildur Ólafsdóttir, sem bæði eru fararstjórar hjá Ferðafélagi Íslands og hafa leitt Landvættahóp Ferðafélagsins.

Við byrjuðum svo á að hlaupa frá höfninni í gegnum bæinn og upp á Eldfell. Eftir það fórum við upp á Helgafell og Sæfjall. Eftir Sæfjall tókum við aukakrók upp á Stórhöfða. Síðan var hlaupið að golfvellinum og inn í Herjólfsdal.

Upp úr Herjólfsdal var farið upp á Dalfjall. Við slepptum Blátind i vegna veðurs, en héldum áfram eftir Eggjum, á Molda og niður um Sprönguna. Þar sýndi Róbert Marshall okkur hvernig á að spranga. Hlupum svo um hafnarsvæðið að Heimakletti sem var síðasta fjallið og ansi bratt.

Þegar við komum niður af Heimakletti, hlupum við í sund, þar sem sundtaskan beið okkar.

Eftir sund var kíkt á ölhús Vestmannaeyja og svo borðuðum við saman á Slippnum.

Fórum svo með bát til baka klukkan 19:30.

Frábær dagur í Vestmannaeyjum, en ég þarf klárlega að koma aftur til að upplifa þennan fallega og skemmtilega hring í betra veðri.

You may also like

Leave a Comment