Í dag var frjáls dagur, gátum bæði farið um svæðið á ferðaskíði eða farið uppá fjallið fyrir ofan
Við Óli fórum ásamt hluta hópsins á ferðaskíðin, uppá Grjótárhnjúk og smá hring til baka um 9 km.
![](https://halldora.is/wp-content/uploads/2022/05/23F7B541-3051-4995-91E3-776A1C0A4242-819x1024.jpeg)
Eftir hringinn, fengum við okkur gómsætan hádegismat og kaffi áður en við héldum uppá fjallið á ferðaskíðum.
Færið var stórkostlegt og það var glaðasti hundur í heimi sem kom niður eftir fjallaskíðaferðina uppá fjallið ofan við Snæfellsskálann.
![Svona er glaðasti hundur í heimi þegar hann kemur niður ...](https://halldora.is/wp-content/uploads/2022/05/0BD4E224-25CF-4BD2-B155-18F1A3DF459A-819x1024.jpeg)
Áttum svo yndislega kvöldstund í skálnum og borðuðum gómsætan bolognese rétt sem strákarnir elduðu undir leiðsögn kokksins á svæðinu 🙂