Á ferðalagi okkar Óla um Austurland, ákváðum við að koma að Kárahnjúkum og sjá breytinguna sem hefur orðið á þessum stað á síðustu árum, enda mjög langt síðan við vorum hérna síðast. Yfirleitt höfum við verið á þessum slóðum á hreindýraslóðum, en núna vorum við bara í sumarfríi og því gaman að ganga hér um og taka myndir.
Daglegt líf
Forsavarsmenn Jökulsárshlaupsins ákváðu að hlaupið verður ekki haldið aftur. Því ákváð ég að skrá mig og taka þátt í þessu síðasta hlaupi, þar sem þessi leið er ein fallega hlaupaleiðin á landinu. Fór samt ekki löngu vegalengdina, því ég er búin að hlaupa ansi mikið síðustu vikur. Hér eru myndir sem ég tók á leiðinni.
Við Óli keyrðum eftir að hafa toppað Herðubreið beint inní Dreka þar sem við tjölduðum topptjaldinu okkar. Gengum svo daginn eftir inní Drekagil og keyrðum að Öskju. Þar fengum við frábæra leiðsögn hjá Landverðinum henni Tótu um Öskju, Öskjuvatn og Víti. Algjörlega frábær kynning. Tókum mikið af flottum myndum sem eru hér að neðan.
DREKAGIL OG DREKI
Drekagil er djúpt og hrífandi gil í austurhluta Dyngjufjalla, í öræfalandslagi norðan Vatnajökuls. Gilið dregur nafn sitt af forvitnilegum klettamyndunum sem minna á höfuð og háls dreka, og þykir það eitt af einkennum svæðisins. Gilið hefur myndast við rof og jarðfræðilega virkni í gegnum tíðina og er dæmigert fyrir hrjúft og tært landslag hálendisins.
Innst í Drekagili er skáli Ferðafélags Akureyrar, sem nefnist Dreki. Hann var reistur árið 2004 í stað eldri skála sem stóð þar frá 1968. Dreki þjónar sem aðalupphafspunktur ferða inn að Öskju og er mikilvægur viðkomustaður fyrir ferðalanga sem leggja leið sína um Dyngjufjöll og Ódáðahraun. Þar er að finna tjaldsvæði, aðstöðu fyrir ferðamenn, og þjónustu á sumrin, svo sem salerni og upplýsingamiðlun.
ASKJA
Askja er megineldstöð í Ódáðahrauni, norðan Vatnajökuls, umlukin Dyngjufjöllum. Í austurhluta fjallanna er op sem kallast Öskjuop og gefur eldstöðinni nafn sitt.
Stórt sprengigos hófst í Öskju 29. mars 1875. Gosið, sem kallað er Öskjugosið 1875 eða Dyngjufjallagos, olli miklu öskufalli, einkum á Austurlandi. Áhrif gossins voru slík að margir fluttu af svæðinu og leituðu nýrra heimkynna í Vesturheimi. Eftir gosið seig landið verulega og myndaði öskju sem fylltist af vatni – Öskjuvatn. Á norðurbakka vatnsins myndaðist sprengigígurinn Víti. Talið er að hluti öskunnar í gosinu hafi komið upp þar.
Í tengslum við Öskjugosið varð einnig hraungos í Sveinagjá á Mývatnsöræfum. Þá rann hraunið sem kallað er Nýjahraun. Síðasta eldgos í Öskju varð árið 1961.
ÖSKJUVATN
Öskjuvatn er næstdýpsta stöðuvatn Íslands, staðsett í Dyngjufjöllum, innan Vatnajökulsþjóðgarðs. Það myndaðist í kjölfar Öskjugossins 1875 þegar land seig og myndaði djúpa öskju sem fylltist af vatni. Vatnið er um 11 km² að flatarmáli og náði lengi vel mestri dýpt meðal íslenskra vatna – allt að 220 metrum. Hins vegar hafa nýjustu mælingar sýnt að Jökulsárlón er nú dýpsta vatn landsins, um 280 m á dýpt.
VÍTI
Víti er sprengigígur sem myndaðist í norðurhluta Öskju í kjölfar gossins 1875. Gígurinn er um 150 metrar í þvermál og inniheldur volgt, bláleitt vatn sem stundum er baðað í. Hitinn í vatninu er mismunandi eftir árstíðum og eldvirkni í nágrenni. Víti er vinsæll viðkomustaður ferðamanna vegna sérkennilegs litar og myndrænna landslagsforma í kringum gíginn.
HOLUHRAUN
Holuhraun er nýlegt hraunsvæði norðan Dyngjufjalla, milli Bárðarbungu og Öskju. Þar varð mikið eldgos frá 29. ágúst 2014 til 27. febrúar 2015. Gosið var stærsta hraungos á Íslandi frá því í Skaftáreldum árið 1783–84 og skapaði um 85 ferkílómetra stórt hraun. Gosið kom upp í sprungukerfi tengdu Bárðarbungu og olli einnig jarðskjálftum og landbreytingum á svæðinu. Hraunið úr Holuhrauni er dæmigert basalthraun og minnir í útliti á hraun úr fyrri gosum í svæðinu.
Herðubreið er 1686 metra hátt móbergsfjall norðan Vatnajökuls innan Vatnajökulsþjóðgarðs. Hún er í Ódáðahrauni og er oft nefnd „Drottning íslenskra fjalla“ vegna þess hve mörgum finnst hún formfögur. Fjallið myndaðist við eldgos undir jökli. Á toppi þess eru hraunlög og hefur gosið því náð upp úr jöklinum. Slík fjöll, þ.e.a.s. móbergsfjöll með hraunlögum að ofan, kallast stapar. Herðubreið var valin þjóðarfjall Íslendinga í kosningu árið 2002.
Fyrst var gengið á Herðubreið með vissu árið 1908 en fram að því hafði hún verið talin ógeng. Það gerðu Sigurður Sumarliðason og þýski jarðfræðingurinn Dr. Hans Reck í ágúst það ár nánar tiltekið 13. ágúst 1908. Þann 21. apríl 2009, 101 ári seinna, fór Björn Böðvarsson vélsleðakappi úr Mývatnssveit á topp Herðubreiðar á vélknúnu ökutæki fyrstur manna, er hann náði toppnum á vélsleða sínum.
fds
Herðubreiðarlindir eru gróðurvin og lindasvæði í Ódáðahrauni innan Vatnajökulsþjóðgarðar. Svæðið var friðlýst 1974. Herðubreið rís við himinn 4-5 km suðvestan við lindirnar. Svæðið er að mestu þakið hraunum. Aðalhraunið er komið frá Flötudyngju og er tiltölulega ungt. Gígur hennar er vestan við Herðubreið og hraunið umkringir fjallið. Lindirnar streyma fram í lækjum og tjörnum í hrauninu og sameinast í á sem nefnist Lindaá. Hún rennur meðfram hárri hraunbrún til norðurs og fellur síðan í Jökulsá á Fjöllum. Í Herðubreiðarlindum er Þorsteinsskáli, hús ferðafélags Akureyrar.
Víða í og við Herðubreiðarlindir eru minjar hamfarahlaupa í Jökulsá en það eru gífurleg flóð sem hafa komið úr Kverkfjöllum hugsanlega í tengslum við eldsumbrot. Talið er að Fjalla-Eyvindur hafi hafst við í Herðubreiðarlindum um tíma. Eyvindarkofi er um 100 m norðvestur af Þorsteinsskála. Hann er hlaðinn yfir lind og er gerður úr hraunhellum meðfram hraunkambi og með hraunhellum í þaki.
Það er alltaf gaman að vera á Akureyri um Verslunarmannahelgina í tjaldbúðum hjá foreldrum Sigga Kiernan í Eyjafirði og því tilvalið að taka þátt í Súlum Vertical. Það er engin keppnissaga með þessari færslu, bara myndir. Mér leið ekki vel í þessu hlaupi og í raun bara þakklát að hafa tekið þátt og klárað. Sjá myndir hér að neðan.
Nokkrum dögum fyrir Kerlingarfjöll Ultra, sá ég miða til sölu í Kerlingarfjöll Ultra hlaupið. Í boði voru þrjár vegalengdir, 60 km, 22 km og 12 km. Miðinn sem var til sölu var í 22 km hlaupið. Siggi, Heiða og Viktor vinir mínir voru líka nýlega búin að kaupa sér miða, svo það var tilvalið að skella sér í helgarferð í Kerlingarfjöll með Óla.
Þegar líða fór á vikuna versnaði heilsan hjá Óla, svo mikið að hann treysti sér ekki til að fara. Jói bróðir hafði ekki tíma til að skella sér með mér svo ég heyrði í Sigga og þá kom í ljós að Heiða var að aka ein í bíl uppí Kerlingarfjöll, þar sem Siggi kom að norðan. Því var tilvalið að heyra í Heiðu og fá að skella sér með henni og hún var líka mjög ánægð að fá félagsskap. Rúna Rut vinkona hafði svo samband við mig tveim dögum fyrir hlaup og var að spyrja mig um hjólaskó. Þegar ég fór svo að spyrja hana um hlaup því ég vissi að hún tók þátt í fyrra, þ.e. hvort ég ætti að vera með stafi og slíkt. Það spjall leiddi svo til þess að Rúna reddaði sér miða og skellti sér með okkur Heiðu og úr varð yndisleg dagsferð í Kerlingarfjöll með Heiðu og Rúnu Rut.
KERLINGARFJÖLL ULTRA 22 KM
Þegar maður heyrir og les, 22 km, þá hugsar maður, þetta eru bara 22 km. En samanlögð hækkun er 1.120 m og hæsti punktur er 1.290 metrar og lægsti 700 metrar. Rúna sagði mér að hún hefði verið 3 klst 45 mín með þessa vegalengd í fyrra svo ég gerði ráð fyrir að ég yrði kannski 4 klst og 15 mín eða 4 klst og 30 mín og hlóð á mig næringu miðað við það.
NÆRING OG BÚNAÐUR
Ég fór með 6 BioTech Energy gel sem ég elska frá Bætiefnabúllunni og 3 pakka af Enervit gúmmí svo var ég líka með Enervit carbontöflur og salttöflur og saltabíla og meira saltnammi. Tók eitt gel áður en ég lagði af stað og borðaði tvo banana um morguninn, enda vaknaði ég snemma. Borðaði líka rúnstykki með skinku og osti og eitt ristað brauð áður en ég fór að heiman.
Þar sem fötin voru mjög þægileg í Laugavegshlaupinu, var algjör óþarfi að breyta. Fór aftur í Salomon UltraGlide 3 skónum og það var góð ákvörðun. Þeir eru með frábært grip, svo ég datt ekki í drullunni, eins og margir. Líka góð dempun og þeir eru rúmir svo mér leið mjög vel í þeim. Ég var í svarta Salomon stuttermabolnum, með svartar ermar, í gömlu Fusion stuttbuxunum og með hnéhlífarnar. Eina sem var breytt frá því í Laugavegshlaupinu, var að núna var ég í bleikum sokkum, með bleika Salomon derhúfu og bleikt buff, var líka með bleika hárteygju, bleikt naglalakk og bleikan varalit. Allt til að styrkja bleika Esjudaginn, Riddarar kærleikans, sem Sigrún B M hélt sama dag, sjá nánar um hann hér:
Hlaupið byrjar strax í mikilli hækkun á einstigi, og það er enginn möguleiki að taka fram úr. Ég var því fegin að vera ekki of framarlega og var líka mjög fegin að hafa farið með hlaupastafina mína. Ég var bara að ganga upp fjallið á þægilegum hraða. Leið eins og ég væri á leið uppí Hrafntinnusker, því fyrstu kílómetrarnir eru bara upp, upp og aftur upp. Smá niðurbrekkur á leiðinni, en að mestu uppá topp.
Hér kemur lýsing frá hlaupahöldurum á leiðinni: ,,Haldið er frá hótelinu beint í suður upp brattan stíg sem liggur um Ásgarðshrygg, sem gengur fram á milli tveggja gljúfra. Áfram er haldið að Hveradalahnúk og bullandi Snorrahver og niður í stórbrotna Hveradali þar sem fyrri drykkjarstöð leiðarinnar er að finna, eftir 5 km hlaup. Þaðan er haldið upp og yfir Kerlingarskyggni þar sem útsýnið er hreint út sagt frábært. Svo þarf að feta sig varlega í Hverabotn sem kúrir á milli fjallanna Mænis, Ögmundar og Hattar. Þá tekur við lækkun niður í djúpt gil og svo aftur upp snarbratta skriðu að sjálfri Kerlingunni sem er 25 metra hár hraundrangur utan í Kerlingartindi. Skammt þar frá, eða eftir 14 km hlaup, er síðari drykkjarstöð leiðarinnar. Þaðan er svo hlaupið austanmegin við Skeljafell, undir Tindabikkju og yfir fremri Ásgarðsá, upp á grýtt holt og aftur að Ásgarðshrygg og að endamarki fyrir neðan hótelið. Á drykkjarstöðinni í Hveradölum er boðið upp á vatn, orkuduft, banana, saltstangir og súkkulaði. Við drykkjarstöðina hjá Kerlingu er aðeins boðið upp á vatn og orkuduft.“
Þegar maður er komin uppá Hveradalahnúk, er stórbrotið útsýni og gullfallegir litir. Ég var búin að vera að elta Matthildi, sagði henni einmitt að hún væri frábær héri, fór á þægilegum hraða. Á þessum fallega útsýnisstað tókum við myndir, ég af systrunum Matthildi og Valgerði og Matthildur tók mynd af mér í Haddýjarhoppi. Stórkostlegt útsýni þarna.
Svo tók við mjög krefjandi drullukafli niður í Hveradali. Þar var ég líka mjög fegin að vera með stafi, svo ég gat látið mig vaða þarna niður, en vá hvað það var mikil drulla og skórnir mínir voru mjög þungir af allri drullunni. Ég stoppaði lítið sem ekkert á drykkjarstöðunni í Hveradölum, nema ég fékk mér nokkrar saltstangir. Eftir drykkjarstöðina var aftur mikil ganga upp og yfir Kerlingarskyggni, líka æðislegt útsýni. Ég gaf mér alveg tíma í að stoppa og taka myndir, en vá hvað ég hefði viljað vera með drónann með mér. Mun klárlega fara aftur þessa leið með Óla þegar við förum í sumarfrí.

Eftir að hafa náð hæsta punkti þarna, þá tók við lækkun niður í djúpt gil, þar leið mér eins og ég væri á söndunum, það var endalaus sléttur kafli, reyndar yfir nokkrar ár, en þessi kafli í gilinu var svona endalaus eins og sandarnir að Emstrum. Síðan tók við grýtt niðurhlaup og að lokum mjög brattur en stuttur kafli að Kerlingunni, auvðeldara en ég átti von á, enda var ég nýbúin að taka gel áður en ég fór upp þennan bratta kafla.
Eftir Kerlingu, var hlaupið í hliðarhalla að næstu drykkjarstöð, en ég hljóp bara fram hjá henni, þar sem ég átti ennþá ópnaðan Powerade drykk í vestinu, sem ég var búin að bera með mér alla leiðina. Leit á úrið þegar ég opnaði brúsann og þá voru komnir 19 km. Eftir drykkjarstöðina var mjög grýttur slóði og þar kom Valgerður og tók fram úr mér. Eftir þennan grýtta kafla kom aftur niðurhlaup, áður en maður fór yfir vað og síðan aftur upp brekkur, kannski eins og Kápan í huganum, en alls ekki jafn brött. Á þeim kafla kom Matthildur og við hlupum að mestu restina saman.
Þessi hlaupahringur í Kerlingarfjöllum er bæði mjög fallegur, skemmtilegur og krefjandi. Í lokin kemur maður aftur inná bratta kaflann sem maður byrjaði á svo lokakaflinn er mjög skemmtilegt niðurhlaup. En þar sem ég var ennþá að finna fyrir tognuninni í rassvöðvanum, sem tognaði í maí, þá var ekki í boði fyrir mig að negla eitthvað niðurhlaup, heldur þurfti ég allan tímann að hlusta á líkamann og taka inn panodil þegar rassinn kvartaði mikið. Ég var samt mjög glöð og fegin að inni fyrir smá lokaspretti á slétta kaflanum í lokin og hélt í humátt eftir Matthildi í markið og tók Haddýjar hoppið að sjálfsögðu þar.

Hitti svo Gullu í markinu, en hún var að kom í mark í 11 km hlaupinu og tókum við mynd af okkur saman. Fór svo í heita spaið, sturtu og fengum okkur að borða áður en við keyrðum aftur í bæinn.
Þessi hlaupaleið er stórkostleg, sjálfboðaliðar og veitingar eftir hlaup og spaið, var líka óaðfinnanlegt. Eina sem ég saknaði og hefði viljað sjá, væri að fá medalíu þegar ég kom í mark, þar sem ég er medalíusafnari 😉
Takk kæru vinir, Heiða, Rúna Rut, Siggi, Viktor, Gurrý og þið öll sem voruð í Landmannalaugum fyrir yndislega samveru og til hamingju öll með ykkar stórkostlega árangur í hlaupinu. Mun klárlega koma aftur í Landmannalaugar Ultra að ári.
