MARKMIÐ 2018
Að klára Vasaloppet, þ.e. ná að komast í mark þessa 90 km án þess að vera stoppuð.
MARKMIÐ 2017
MARKMIÐ 2016
Að klára Vasaloppet, þ.e. ná að komast í mark þessa 90 km án þess að vera stoppuð.
Kláraði á 10 klst 7 mín 28 sek – 1105 sæti kvk – 11.252 allra af 15.800 – 1100 sem klára ekki.
Að klára Vatterrundan 300 km með gleðina að leiðarljósi, engin tímatakmörk sett.
Kláraði á 13 klst 2 mín – engar upplýsingar um sæti eru gefnar.
Að klára Lavaredo hlaupið 118 km með gleðina að leiðarljósi og innan tímamarka.
Kláraði á 26 klst 53 mín og 11 sek – 87 sæti kvk – 762 allra þátttakenda 975 sem klára af 1500.
Klára Svenska Klassikerin – fjórþraut í Svíþjóð 2016 (Vasaloppet/Vätternrundan/Vansbrosimningen/Lidingoloppet)
Kláraði Vansbrosimningen á 00:53:49 sem er langt umfram væntingar.
Að ná lágmarki fyrir Boston maraþonið 2017, einhvers staðar á árinu.
Er komin inn í TDS í Mt.Blanc lok ágúst, ætla ekki að taka þátt.
Í fyrsta skipti síðan í byrjun árs 2012 er ekki búið að skrá neina Ironman keppni á árinu?
ÁRIÐ 2015
SEVILLA MARAÞON 22. FEBRÚAR 2015 = 3:50 sem er 5 mín undir Boston lágmarki.
*Kláraði Sevilla maraþonið þann 22. febrúar 2015 á 04.01.50 (staðfestur flögutími) – PB tími, sjá keppnissögu hér:
MT. ESJA XI 20. JÚNÍ 77 km – 6600 m hækkun = Markmiðið að klára og hafa gaman af því. Kláraði Mt. Esja Ultra á 17 klst fyrst kvenna að fara 11 Esjur – sjá keppnissögu hér:
UltraTrail du Mont Blanc CCC 28 ÁGÚST 101 km 6100 m.hækkun = Fyrsta markmið að komast í keppni og annað að klára með gleði. Kláraði á rétt innan við 25 klst, sjá keppnissöguna hér:
IRONMAN FLORIDA 7. NÓVEMBER = Markmiðið að klára, hafa gaman af því og bæta eigin tíma. Kláraði og hafði gaman af því, bætti ekki eigin tíma, en náði í fyrsta skipti í topp 10% í aldursflokki. Sjá keppnissögu hér:
ÁRIÐ 2014
Hér að neðan eru niðurstöður úr þeim mótum í þríþraut, hjólreiðum og hlaupum sem fyrirmyndarhúsmóðirin tók þátt í á árinu 2014.
Stóra markmiðið í þríþraut á árinu var IRONMAN i KALMAR í Svíþjóð sem haldið var 16. ágúst sl. Fyrirmyndarhúsmóðirin skráði sig í þessa keppni eftir hjólaslysið sem hún varð fyrir í ágúst 2013. Hún gat því ekki hafið æfingar fyrir þennan járnmann fyrr en í upphafi árs 2014. Handleggsbrotið á gönguskíðunum í febrúar tafði svo aðeins meira fyrir því að æfingar hæfust að ráði, svo markmiðið í Kalmar var alltaf númer eitt að klára og númer tvö að hafa gaman af bæði æfingunum og keppninni.
Árangurinn í IM KALMAR fór því fram úr björtustu vonum fyrirmyndarhúsmóðurinnar, en hún kláraði á 11 klst 44 mín og 11 sek. sem var 10 mín betri tími en í IM FRANKFURT árið 2013 og náði 8 sæti í aldursflokki. Sjá nánar um IM KALMAR hér:
Viku eftir IM Kalmar tók fyrirmyndarhúsmóðirin þátt í 1/2 Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka og var mjög nálægt að ná PB. Tveim vikum eftir IM hljóp hún svo 7 tindahlaupið í Mosfellsbæ sem er 40 km fjallahlaup sem hún hljóp á rétt rúmum 6 klst. Eftir það fjallahlaup hófst leitin að fjallahlaupi þar sem hægt væri að slá tvær flugur í einu höggi. Að fá 3 punkta til að skrá sig í Mont Blanc fjallahlaupið 2015 og að komast í 100 km klúbbinn.
Trail Sierra de las Nieves, var því stóra hlaupamarkmið ársins, 102 km fjallahlaup 8. nóvember sem fyrirmyndarhúsmóðirin kláraði á 14 klst 11 mín og 14 sek. Upphaflegt markmið var að klára hlaupið innan tímamarka þ.e. á 24 klst. Fyrirmyndarhúsmóðirin varð í 2-3 sæti, en hún hljóp seinni 50 km hlaupsins með norskri vinkonu sinni, sjá nánar um hlaupið hér:
Stóra hjólreiðakeppni ársins var Jökulmílan sem er 100 mílna eða 162 km hjólreiðakeppni þar sem hjólað er hringinn í kringum strandlengju Snæfellsness frá Grundarfirði. Þessi hjólreiðakeppni gekk mjög vel og kláraði húsmóðirin hana á 5 klst og 54 mín og var 7 konan í mark og í 3 sæti í aldursflokki og 47 af 87 keppendum. Markmiðið með þátttöku var að komast af stað í hjólreiðaæfingum eftir slysin og að klára keppnina og hafa gaman af henni. Sjá nánar um hjólreiðakeppnina Jökulmíluna hér:
HLAUP 2014
HJÓLAMÓT 2014
—————————————————————————————-
ÁRIÐ 2013
Mesta áskorunin árið 2013, var Ironman Europe keppnin sem haldin var í Frankfurt 07.07.2013 (sund 3,8 km, hjól 180 km, hlaup 42,2 km). Fyrirmyndarhúsmóðirin kláraði þennan Ironman á tímanum 11.54.40 sem var bæting um 1 klst og 30 mín frá því í lok nóvember árið áður í Mexíkó. Hún var mjög ánægð með árangurinn þar sem aðstæður voru frekar erfiðar, hitabylgja í Þýskalandi.
IM FRANKFURT
SUND 1:13:50 |
T1 0:05:17 |
HJÓL 06:04:53 |
T2 0:02:57 |
HLAUP 04:27:43 |
SUM: 11:54:40 |
Annað markmið á árinu 2013, var að ljúka Landvættinum, en landvætturinn er fjórþraut, hver í sínum landshlutanum. Fossavatnsskíðagangan á Ísafirði (50 km), Bláalónsþrautin á suðurlandi (60 km), Jökulsárhlaupið á norðurlandi (32,7 km) og Urriðavatnssundið á austurlandi (2,5 km).
Fyrirmyndarhúsmóðirin er Landvættur #8, frekari upplýsingar um Landvættinn er að finna hér:
SKÍÐI 04:15:06 |
HJÓL 02:51:12 |
SUND 0:51:25 |
HLAUP 03:20:51 |
SUM: 11:18:34 |
Þriðja stóra markmiðið árið 2013 var að hjóla Jakobsstíginn. Stígurinn var hjólaður á 9 dögum í júlí 2013, sjá nánari upplýsingar um ferðina hér:
Önnur mót 2013:
Kópavogssprettþraut Þríkó 12.05.2013 – 3 sæti kvenna 40 ára og eldri:
SUND 7:25 |
T1 1:01 |
HJÓL 20:45 |
T2 1:05 |
HLAUP 17:21 |
SUM: 47:38 |
1/2 ÓL þríþraut í Hafnarfirði 16.06.2013 – 3 sæti kvenna 40 ára og eldri:
SUND 13:41 |
T1 0:55 |
HJÓL 37:11 |
T2 0:46 |
HLAUP 23:04 |
SUM: 1:15:40 |
CUBE PROLOGUE 7,2 km
06.05.2013 = 00:11:03
22.05.2013 = 00:12:39
19.06.2013 = 00:08:49
KRÍSUVÍK TT 20 km
08:05.2013 = 00:36:29
LIÐATÍMAKEPPNI 20 km
05.06.2013 = 00:35:27
ÁRIÐ 2012
Hér er tíminn í Ironman Cozumel, eftir flokkum.
Hér er tíminn í öðrum þríþrautarmótum sem húsmóðirin tók þátt í á árinu 2012.
Kópavogs-sprett-þraut | Compress-ionsport 3SH | Hálfur Járnkarl 3SH | Ólympísk þríþraut Laugum | |
Dags. |
12.5.2012 |
3.6.2012 |
22.7.2012 |
12.8.2012 |
Sund |
00:09:03 |
00:16:48 |
00:43:15 |
00:31:52 |
T1 |
00:03:27 |
00:01:09 |
00:01:27 |
00:00:35 |
Hjól |
00:24:04 |
00:40:09 |
03:34:39 |
01:17:07 |
T2 |
00:01:17 |
00:00:00 |
00:02:28 |
00:01:26 |
Hlaup |
00:14:42 |
00:24:06 |
02:08:28 |
00:56:43 |
Samtals: |
00:54:33 |
01:22:12 |
06:30:17 |
02:47:43 |
Sæti í aldursfl | 7. sæti | 5. sæti | 4. sæti | 2. sæti |
Aths. | Fékk 2 mín í víti. | 750/20/5 | 1900/90/21 | 1500/40/10 |